16.8.07

Nokkrir góðir dagar án..Mömmu

Jæja, þá er maður fluttur aftur heim. Reyndar bara yfir helgina því ég er með unglingana í minni umsjá meðan kynmóðir okkar er í saumaklúbbaferð í Amsterdam. Ekkert djamm fyrir mig um helgina. Bara gera eitthvað sem húsmæður gera.
Ég er alveg komin með to do lista og allt.
  • Ryksuga
  • Viðra hundinn
  • Þrífa skjaldbökubúrið - hefur víst ekki verið gert síðan í maí að mér skilst
  • Þvo þvott
  • Þrífa heima hjá mér
  • Fara í genbrug
  • Gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi með unglingunum
Spennandi helgi frammundan eins og þið sjáið. En hvað gerir maður ekki fyrir yfirvaldið.

Ég hefði kannski átt að hafa hærra um það að ég eldi ekki. Tók mig til í gær og eldaði þessa líka dýrindis máltíð fyrir okkur systur. Hafði einfaldlega ekki í mér að bjóða unglingnum (Unglingur B er í næturgistingu) uppá serjós í kvöldmatinn. Þannig að það var skundað útí Rema 1000 og keypt kjúlla og eitthvað sem ég gat hugsað mér að malla með. Þegar heim var komið var þetta steikt, sullað í eldfast mót og hálftíma seinna var komin þessi líka dýrindis réttur. Maður er ekki lengi að hrissta kræsingarnar fram úr erminni þegar maður tekur sig til. Ónei.
Mamma heldur að ég hugsi ekki nógu vel um systkini mín þegar að ég er með þau svona í nokkra daga í einu. Þess vegna tók ég video og myndir til þess að sanna að ég leggji mig virkilega fram í að vera góð við þau greyin.
Ég kann ekki að setja myndbönd á netið þannig að myndirnar verða að duga.


Kveikt á kertinu góða


Að fá sér


Afvelta


Fróði vildi ólmur smakka

Annars vil ég bæta því við að Móðir mín í föðurætt á afmæli og vil ég nýta tækifærið og senda henni hamingjuóskir í tilefni dagsins. Orðin heilum 9 árum eldri en ég. Geri aðrir betur.
Hún ákvað að svara ekki símum í tilefni dagsins, eða allavega ekki svara mér svo kveðjan er netvæn í ár.


Pabbi og afmæliskonan

14.8.07

Íslensk Kjötsúpa

Myndi gefa annan handlegginn ef ekki meira fyrir venjulegan heimilismat núna. Ég held svei mér þá að ég hafi ekki fengið almennilega eldaða máltíð í meira en mánuð. Svona ef maður telur ekki sveittu borgarana og fýlu pullurnar sem var étið í Eyjum með. Enda var það nú ekki matur fyrir 5 aura.
Mér dettur samt ekki til hugar að elda mér eitthvað. Frekar held ég áfram að éta túnfisk í dós og Cheerios-ið sem ég hafði mikið fyrir að taka með frá Íslandi. Get líka alveg hætt að tuða. Allur veturinn framundan á þessu mataræði, svo það er bara eins gott að maður fari að venjast þessu.

Annars langar mig að vita eitt. Af hverju þurfa fartölvur að vera svona marglitar alltaf. Ég þoli það ekki. Aldrei hægt að fá alveg svartar tölvur, verður allt að vera með gráu lyklaborði, hvítum ramma og einhverjum krúsídúllum.
Annað, er ekki hægt að fá töff fartölvutöskur? Allar ljótar, eða bara svona venjulegar. Mig til dæmis langar ekki í svarta venjulega. Var búin að finna eina frá Samsonite, en hún er auðvitað uppseld núna. Blehh

Geng í málið á morgun. Ætli ég endi ekki bara með skræpótta tölvu og svarta tösku..

13.8.07

Hver er Alli?

Það hefur nú ýmislegt á daga mína drifið síðan ég fékk hugmyndina hér að neðan. Ég er til að mynda hætt að vinna í Samskip. Það var alveg hrottalega fínt að ganga þaðan út í síðasta skipti. Enda er þetta búið að vera mitt annað heimili í sumar og ég komin með snert af ógeði.
Á föstudaginn skellti ég mér svo í útilegu á Snæfellsnes með Svanhvíti, Stjána, JP, VP, Ásdísi systur þeirra og famelíu. Og reyndar einhverju öðru fólki líka. En við vorum samt svo ógeðslega hress að við þurftum ekkert á öðru fólki að halda.
Ég var reyndar löngu búin að ákveða að vera bara heima með Pabba gamla á föstudaginn, en síðan ákvað ég að láta undan hópþrýstingi og kíkja með. Þetta var eiginlega þannig að Svanhvít bara ruddist inn heima hjá mér, tók undir handlegginn á mér, bar mig útí Prinsinn og brunaði af stað. Ok, kannski ekki alveg, en þetta hefði getað verið þannig.
Eníveis það var mjög gaman í þessu litla roadtrippi okkar og skemmtilegt að fara svona í útilegu líka. Varðeldur, Gítar, hefði verið nikka líka ef einhver hefði ekki beilað, áfengi, skemmtilegt fólk og frábært veður.
Brunað í bæinn um hádegi á laugardag til þess að geta eytt deginum með fjölskyldunni. Á gaypride.
Það var reyndar helvíti fínt. Katla kippti sér ekkert upp við þetta, en sölku fannst þessi ganga æði. Einhverra hluta vegna hélt hún að þetta væri Skátaskrúðganga og skátafánar og skátalög. Síðan fórum við að reyna að útskýra þetta fyrir henni að þetta væri gaypride gangan og jaríjarí. En hún nennti ekkert að hlusta á það. Bara hélt áfram að horfa á skátana og drotninguna..krúttrassgat þetta barn.
Pabbi fór svo með okkur Sölku á Fridays í Smáralind þar sem mér tókst að hrynja á rassgatið fyrir framan staffið þar. Þeim til gleði og yndisauka. Mér fannst þetta takmarkað fyndið og fékk marblett.
Þetta kvöld var svo allt mjög hræðilegt. Dó næstum úr sjálfsvorkun þegar að ég var að pakka. Svo að kveðja alla. Það var viðbjóður og grenjaði ég alveg hellings þá.
Síðan var haldið útá flugvöll og hangið þar í því gleðilandi til kl.01.00 þá fórum við í loftið. Ætlaði aldeilis að sofa, enda sama og ekki neitt sofið nóttina áður, en nei. Voru ekki öll heimsins organdi ungabörn í flugvélinni og þar á meðal eitt við hliðiná mér sem sparkaði ítrekað í mig og lét öllum illum látum.
Skil ekki hvað fólk er að pæla með að taka börnin sín með sér í svona næturflug.. auðvitað sofa þau ekkert bara allan tíman þegar búið að er rótast svona með þau. Síðan voru þau orðin alveg trítilóð þegar að við vorum að ná í töskurnar og bætti það ekki að seinu danirnir gátu ekki komið töskunum á bandið fyrr en að verða 2 tímum eftir lendingu. Þá átti ég eftir 3 tíma lestarferð, gat ekkert sofið þar heldur svo ég var orðin VEL pirruð þegar ég komst loksins heim til mín. Svaf þá í 21.klst nánast samfleytt.

Í morgun vaknaði ég svo, mjög hress en var komin hálfa leiðina í skólann þegar að ég gerði mér grein fyrir að ég hefði ekki stillt klukkuna á danska tímann og var því ekki nema 2 tímum of sein fyrsta daginn. Gaman af því.

8.8.07

Fékk þá frábæru hugmynd að taka strætó frá Samskip uppí Rúv, eftir að faðir minn hafði læst mig úti og skilið bílinn eftir heima.
Var fljót að hætta við þegar ég sá á Bus.is að það myndi taka mig 56 mín. og kosta mig 280kr.

Af hverju velja ekki fleiri þennan frábæra ferðamáta?

7.8.07

Vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að blogga um helgina.
En samt bara á morgun.

Þangað til.. "HVAR ER PER??"

(Það er eitthvað lítið um myndir vegna rafhlöðuleysis. Þannig að orð verða að duga)

2.8.07

Artífartí Þjóðhátíð

Sjáiði hvað ég er sjúklega frumleg og artý á Myspace. Var að breyta til. Snjóhúsið var ekki alveg að gera sig og ég ákvað að skipta yfir í egg vegna þess að ég er nú einu sinni að vinna í þessu yndislega mötuneyti í Samskip. Love my job!!
Jájá, þetta er svona gaman af þessu.
Allt að verða klárt fyrir Þjóðhátíð 07. Ég er búin að vera óþolandi þessa vikuna, ekki búin að tala um annað og búin að blasta "Í brekkunni" 24/7. Miða við hversu mikið og hátt þessi diskur hefur verið spilaður í Kórsölum eru nágrannarnir eflaust líka bara komnir í Þjóðhátíðargírinn.
Faðir minn röflaði yfir þessari tónlist í nokkur skipti. Síðan tilkynnti hann mér að hann ætli að koma "með" til eyja. Segist vera að fara að vinna, en ég trúi því ekki. Gæti reyndar verið að hann sé bara svona hræddur um frumburðinn, rúllandi fullann í brekkunni..
Ég skreið um háaloftið hjá ömmu og afa í gær og fann til sjógalla (ekki nema 8 sett) og annan nauðsynlegan búnað. Síðan er bara að henda gúmmítúttunum og lopasokkunum í tösku og þá er maður klár. Móðir mín búin að fara í ríkið fyrir mig og þar með búin að garentera að ég verði þunn fram í september.
Ég gerðist voðalega séð og fékk símadömurnar í Samskip til þess að hnýsast aðeins fyrir mig hverjir frá fyrirtækinu væru að fara á Þjóðhátíð. Þar sem ég þarf að mæta í vinnuna á þriðjudag og miðvikudag eftir Þjóðarann þá vil ég vita hversu mikið ég get gert af mér og hversu mikið ég get drukkið. Ætla ekki að vera búin að hrauna yfir forstjórann og síðan kemur hann í mat á þriðjudaginn. Vandræðalegt.
Símakonurnar eru hins vegar ekki að standa sig. Þær eru búnar að hafa alla vikuna til þess að finna þetta út, en einungis búnar að segja mér frá einum strák sem er að fara. Fyrir vissi ég um einn ungann mann og einhverja pjakka úr vöruhúsinu. Þetta er nú allt karlkyns, svo ekki fer ég að ræða við svoleiðis, hversu drukkin sem ég nú verð.

Annars er planið samt að haga sér vel, enda er það ég sem þarf að hafa vit fyrir Stjána, JP og helvítis útlendingnum.
Vona að ég komist lifandi frá þessu öllu saman, annars bið ég ykkur bara vel að lifa, þetta hefur verið skemmtilegur tími hérna á jörðinni og ykkur er öllum boðið í jarðaförina.

Bless.

31.7.07

Búin að finna sjálfa mig

Það virðist vera mikið í tísku að fara og finna sjálfan sig. Fólk er að taka árs leyfi frá skóla, ferðast og leika sér. Allt á þeim forsendum að finna sjálfan sig.
Ég þurfti ekki að fara lengra en í Samskip í nokkrar vikur. Ég er Control freak.
Hef bara aldrei tekið eftir þessu áður. Skrýtið. Ég sem er alltaf svo ljúf og góð :)

29.7.07

Fundinn og Ferming

Mikilvæg skilaboð til eina myndarlega karlmansins á Íslandi:

Ég sá þig í bænum á laugardagskvöldið en þorði ekki að tala við þig. Þú varst klæddur í brúnan leðurjakka og hvíta converse skó.

Hringdu: 848-5313

Eða msn-aðu: kristinalma@hotmail.com

Og ef þið lesendur góðir hafið séð þennan mann, vitið hver hann er eða hafið einhverjar upplýsingar um hann þá megið þið líka vera í bandi.

Annars var ógeðslega gaman á staffadjammi BabySam á laugardagskvöldið. Takk kærlega fyrir frábært kvöld, stelpur. Þið bættuð nokkrum stigum við geðheilsu mína.

"Who the fuck is Kormákur?"

---

Systur mínar, Vilborg Unnur og Sigríður Soffía fermdust í dag. Vil óska þeim innilega til hamingju með það.


Man eftir því þegar ég fermdist að ég hló þegar ömmurnar og afarnir komu til mín eftir atöfnina og sögðu mér að þau hefðu bara ekki getað haldið aftur tárunum, þetta var allt svo fallegt og þeim fannst svo stutt síðan að ég var ósjálfbjarga ungbarn í vögg og eitthvað jaríjarí.


Ég held að ég hafi verið sú eina sem grenjaði í kirkjunni. Finnst hræðilegt að þær séu orðnar svona stórar. Reyndar táraðist ég mest þegar ég kom inn í andyrið á Garðakirkju og sá þær standa þar. Svo glæsilegar og fallegar.

Eníveis, þá er ótrúlega fyndið hvað þær eru ólíkar. Mamma talar alltaf um að þær séu ólíkastar af okkur 5 systkinunum. Sem er rétt. Bæði í útliti og persónuleika. Til að mynda var önnur þeirra í strigaskóm í dag og hin í hælum ;)

Veislan var ótrúlega skemmtileg. Ingibjörg Elín, litla systir okkar söng og veitingarnar ekki af verri endanum. Enda er það yfirleitt ekkert slor þegar Óskar er annars vegar. Hérastubbur félagi minn sá svo um kökurnar, sem voru ekki þessar týpísku marsípan ógeðskökur, heldur bountykökur. Sjúkt gott.

Frábær dagur.









26.7.07

Vó

Voðaleg sprengja varð allt í einu inná síðuna. Næstum 200 fleiri heimsóknir í gær heldur en aðra daga. Er ég að missa af einhverju?
Var amma Stína að læra á refresh takkan?

25.7.07

Þetta er dásamlegt.
Nú bíð ég bara eftir að það komi frétt um það að ég sé að passa kisuna þeirra.

(Stal þessu frá DiscoDóra)

23.7.07

Dáin

Hafiði lent í að segja eitthvað sem á að vera ógeðslega fyndið við manneskju sem misskildi djókinn og horfði á ykkur eins og þið væruð holdsveik, en ekki bara ófyndin? Og ykkur langaði að deyja? - Kom fyrir mig í morgun.
Ég lendi oft í þessu (er ekki fyndin manneskja og á ekki að reyna að segja djóka, hvað þá ef mér finnst þeir fyndnir..), en aldrei fyrr virkilega reynt að snúa mig úr hálslið til að komast útúr aðstæðunum.

Hafiði lent í því að segja eitthvað ógeðslega asnalegt eða hallærislegt við einhvern, vegna þess að þið frusuð á staðnum þegar viðkomandi yrti á ykkur? - kom fyrir mig áðan.
Lendi líka stundum í þessu - frekar óþægilegt.

Ég er farin að strauja á mér tunguna.

20.7.07

Í fréttum er þetta helst:

Flíspeysumálið ógurlega: Peysan fannst loksins eftir að hafa verið týnd í 3 vikur. Þóra fann hana í skottinu á bílnum hennar SóleyjarTó. Ég hef ekkert verið að væflast þar, þannig að þetta er dáldið dularfullt mál.

Þjóðhátíð: Búið að borga í dallinn, förum út á föstudeginum og komum "uppá land" á mánudeginum. Íris og Garðar eru búin að beila þannig að ég verð eina stelpan. Hópurinn samanstendur af: Mér, Stjána, JP, Danska gaurnum og Villa bróðir (held ég). Verður áhugavert. Ég er búin að pannta að sofa í miðjunni - og núna er ekki hægt að setja mig í annað herbergi..
Þetta verður feiknar fjör og er mikil tilhlökkun. Ég og sá danski erum að fara í fyrsta skipti svo þetta verður þvílíkt ævintýri fyrir okkur, túristana.
Kvíði reyndar pínu fyrir einu og það er að miða við hvað strákarnir eru búnir að tala mikið um hvað þeir ætla að gera í Eyjum er ég hrædd um að ég komi lesbísk heim. Það á nefninlega að fara í Dalinn og finna sér KJÉLLINGAR. Ég verð annað hvort að gjöra svo vel að fara með, þar sem að ég er kjúklingur og þori ekki að vera ein í kringum svona fullt fólk sem ég þekki ekki eða bara vera heima í tjaldi og prjóna. Því ekki fer ég á fyllerí eða kallafar, (Er það orð til?) Geri ekki svoleiðis.

Ferming: Nú er famelían mín öll komin til landsins og fermingarstúlkurnar þylja trúarjátninguna, faðirvorið, ritningarorðin og boðorðin alveg útí eitt, bæði á Íslensku og dönsku. Fermingarfötin eru tilbúin og allt að verða klappað og klárt.
Ég reyndar get ekki með nokkru móti fundið föt á mig. Mér finnst allt ljótt og asnalegt, enda eru þessar heimsku útsölur í gangi núna og bara eintómt drasl á þeim eins og vanalega. Ég er búin að þræða hverja einustu búð í bænum og finn ekki neitt. Þetta hlýtur að reddast.

Vinnan: Það er svona líka þrælskemmtilegt í vinnunni alltaf hreint. Eða ég lýg því að mér að minnsta kosti. "Góðan daginnnn Gjössoveeeeel" Okkur Óskari semur alveg fínt, ennþá allavega. Konurnar í vinnunni duglegar að ota að mér sonum sínum og segja mér frá hvað þessi Siggi í Innflutningi sé agalega huggulegur og á lausu. Fengu svo taugaáfall þegar ég sagði að ég væri nú meira fyrir hann Gunna í landflutningum. Þá hljóðuðu þær upp yfir sig að hann væri að verða þrítugur og væri fráskilinn. Baneitraður greinilega.

Fjölskyldan: Það dró aldeilis til tíðinda í gær. Litli frændi minn Almarsson fékk nafn. BALDUR FREYR. Baldur í höfuðuð á afa og Freyr er víst bara Freestyle að mér skilst.
Gaman að segja frá því að ef að ég hefði verið strákur þá hefði ég verið skírð Baldur. Ég hefði orðið góður Baldur. En litli frændi ber þetta nafn svo sannarlega vel, enda er hann miklu myndarlegri en ég.
Til hamingju með þetta fallega nafn.

Helgin: Frænkufyllerí á morgun, hlakka mikið til. Síðan er það afslöppun útí eitt.

Þessi færsla: Er alveg ógeðslega leiðinleg. Með þeim leiðinlegri, enda er löngu komin háttatími á mig og ég er því ekki alveg í sambandi í hausnum.

Ble

19.7.07

17.7.07

Mánudagur til..mæðu?

Mér finnst að það ætti að vera mynd af mér við orðið "heppni" í orðabókinni. Einnig fyndist mér réttast að það væri mynd af mér við orðið "kaldhæðni."

Það er einhver sem er farinn yfir móðuna miklu sem er að bögga mig alveg hræðilega. Síðan ég kom til Íslands fyrir tæpum mánuði síðan þá hafa ótrúlegustu hlutir horfið, sporlaust.
Byrjaði voða saklaust, fyrst fann ég ekki sokkana mína, hárspennur, húslykla og þess háttar. Þá var mér sama. En manni finnst þetta lélegur djókur þegar að splunkuný cintamani peysa sem kostaði ekki nema rúmar 12.000 kr týnist og fleira af svona stærri og dýrum hlutum (sé samt mest eftir fu.. peysunni, nú dey ég úr kulda í Eyjum).
Þetta bara gufar upp, gjörsamlega. Einn daginn eru hlutirnir á sínum stað og svo bara búmm, horfnir.

Ekki láta ykkur bregða þó að ég hverfi bráðum, miða við áhuga þessa "félaga" míns á dótinu mínu þá hlýtur hann að fara að taka mig með sér bráðum.

16.7.07

Mánudagur

Í dag er mánudagur. Um helgina var gott veður, það er nokkuð ljóst. 90% af fólkinu sem ég er búin að hitta síðan ég vaknaði klukkan 06:15 er eins og það hafi lennt í sinueldinum á Grundartanga.
Þekkja Íslendingar ekki sólarvörn?

15.7.07

Á morgun fáum við úr því skorið hvort ég sé góð í að keyra bíl. Ökumatið ógurlega og ég kvíði svo fyrir að ég þarf næstum að æla.
Æfði mig pínu í dag með að keyra Lincolnin hennar ömmu útum allt í dag. Hann talar við mann, voða fínt fyrir fólk eins og mig sem á enga vini ;)

Má ekki vera að því að blogga, þarf að fara að læra munin á hægri og vinstri..

12.7.07

11.7.07

Pæling dagsins

Verða endur aldrei sjóveikar?

10.7.07

Hvað segiði, engin stemmari fyrir TOTO?

Ef þið látið mig fara eina þá ætlar Pabbi að afneita mér, sem væri svosem í lagi nema hvað að þá missi ég stærstu jóla og afmælisgjafirnar.


Toto - Africa Lyrics

I hear the drums echoing tonight
But she hears only whispers of some quiet conversation
She's coming in twelve-thirty flight
Her moonlit wings reflect the stars that guide me towards salvation
I stopped an old man along the way
Hoping to find some old forgotten words or ancient melodies
He turned to me as if to say: "Hurry boy, it's waiting there for you"

[Chorus:]
It's gonna take a lot to drag me away from you
There's nothing that a hundred men or more could ever do
I bless the rains down in Africa
Gonna take some time to do the things we never had

The wild dogs cry out in the night
As they grow restless longing for some solitary company
I know that I must do what's right
Sure as Kilimanjaro rises like Olympus above the Serengeti
I seek to cure what's deep inside, frightened of this thing that I've become

9.7.07

Toto

Ég er örugglega eina 19 ára manneskjan í heiminum sem þráir ekkert heitar en að fara á tónleika með Toto. Þeir eru að spila í Laugardalshöllinni annað kvöld og mig langar svooo að fara.
En vinir mínir vita ekki hvað Toto er og fannst ég ekki töff þegar að ég byrjaði að syngja Rosanna og Africa fyrir þau. Hef reyndar ekki heyrt í þeim síðan þetta var, svona þegar ég pæli í því. Meira að segja pabbi myndi ekki vilja fara. Hann sagði að ég væri hallærisleg að langa að fara.
Ég er svo gömul sál, að stundum er það hálf fyndið. Í dag var ég til dæmis að keyra Sæbrautina á 58km og hlusta á Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Ef ég fæ mér mann sem er um fertugt skulið þið ekki vera hissa.

En ef það er einhver þarna úti sem vill koma með Kristínu gömlu á Toto annað kvöld, þá endilega verið í bandi.

I'll be over youuuu!!

8.7.07

Mjög heimsfrægt blogg

Jæja, markmiðinu náð. Komst í blöðin. Það var vitnað í glataða moggabloggið mitt í Blaðinu á fimmtudaginn. Ótrúlega fræg.
Spörning um að hætta að blogga núna, á maður ekki alltaf að hætta á toppnum?

Annars hefur aldrei verið vitnað í þetta blogg neins staðar, svo gæti haldið þessu gauli áfram þangað til það gerist ;)

7.7.07

Vó

Oft er talað um að vera rangeygður af þreytu. Hef samt aldrei fyrr upplifað að vera actually rangeygð af þreytu.
Þetta er óþægilegt, best að fara að sofa.

6.7.07

Léleg í að skera ávexti

Þar sem að ég á mér ekkert líf, þá verður ykkur ekki hlíft við skemmtisögum úr vinnuni.
Í dag kom eplagaurinn til mín og tilkynnti mér það að appelsínurnar væru skornar öfugt. Hann var ekki að grínast. Þessi gaur sko, mig langar að eiga hann. Hann er sjúkt fyndinn án þess að gera sér grein fyrir því, eða eitthvað. Mig langar að vera vinur hans.
En ég tók þessu ekkert persónulega, ég er ekki þekkt fyrir hæfni mína sem appelsínuskurðamaður, sést best á puttunum á mér sem eru sundur skornir. Reyndar skar ég ekki þessar umtöluðu appelsínur, en það er annað mál.

Ég var samt að hugsa um það um daginn hvað ég er alltaf að meiða mig eitthvað. Ég er alltaf að reka mig í, fá einhverja marblettt og sár útum allt. Svosem ekkert óeðlilegt við það nema hvað að ég fæ þessa áverka alltaf með einhverjum undarlegum hætti.
Hér kemur smá listi yfir áverka sem ég hef hlotið.
  • Í morgun þegar að ég var að fara í vinnuna var á nánast búin að nefbrjóta mig með því að dúndra smettinu í bílhurðina um leið og ég var að fara útúr bílnum.
  • Þegar ég kom heim í kvöld var ég með bólginn úlnið - eftir að hafa þurrkað af borðum
  • Þegar að ég var í 7. bekk fór ég í brettaferð með skólanum. Mér tókst að handleggsbrjóta mig, en ekki á bretti, heldur þegar að ég var að labba upp brekku til þess að renna mér niður á svörtum ruslapoka.
  • Fótbrotnaði á trampolíni þegar ég var 4 ára
  • Einu meiðslin sem ég hlaut þegar að ég var í handboltanum var þegar að ég datt í tröppunum í Íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi á leiðinni á æfingu. Hnéið fór í spað.
  • Skar mig á puttanum, inní bein á skyr.is drykkjarskyri.
  • Keypti mér hníf um daginn. Skar mig illa á honum þegar að ég var að reyna að ná honum úr umbúðunum.
  • Er með ör á hægra brjóstinu eftir að hafa poppað popp í potti. Ég var í fötum meðan ég var að gera þetta.
  • Fyrir ekki svo löngu hljóp ég líka á hurð - það trúir manni enginn þegar að maður reynir að útskýra marblett á stærð við skó nr 44 með því að segjast hafa hlaupið á hurð. Heimilisofbeldi.

Þetta er nú það sem ég man í bili - Ég er alltaf að lenda í einhverju kjánalegu, meira að segja slysin sem ég lendi í eru kjánaleg..!!

5.7.07

Stundum getur lífið verið svo ósanngjarnt. Í gærmorgun var en einni hetjunni hrifsað frá okkur eftir hetjulega baráttu við veikindi.

Kæru vinir, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og megi Guð vera með ykkur á þessum erfiðu tímum.


3.7.07

Fröken Fix

Spes dagur, vægast sagt.

Klukkan 10.00 var ég kölluð FRÖKEN! Það vakti ekki mikla lukku og í framtíðinni ef/þegar einhver segir þetta við mig hafa afleyðingar. Þetta er svo Geira Goldfinger legt að það hálfa væri ágætt. Frrrööökeeeennn?!
Nú, þremur mínútum seinna var ég svo elt útum allt af einhverjum gaur sem er með eplaþráhyggju. ÉG skemmdi greinilega daginn hans því það voru ekki til epli og hann ákvað að hefna sín með því að elta mig á röndum til klukkan 14.00 og tuða eitthvað um epli. Ég brá á það ráð að ota að manninum melónu en allt kom fyrir ekki, hann vildi epli og engar refjar. Hann minnti helst á gömlu konuna í Stellu í orlofi, EGG EGG EGG. Svipaðar týpur.

Ég átti mín móment í dag sem endranær. Fékk sms frá Ingu Rós í morgun af síminn.is um það að hún væri búin að týna símanum sínum þannig að ég gæti ekki sent sms til hennar hringt. Ég byrjaði náttúrulega á að svara sms-inu og var að ýta á "send besked" (Síminn minn er danskur) þegar ég fattaði að ég gæti ekki sent sms til hennar, þá ákvað ég bara að hringja í hana til að spurja hana hvað hefði nú komið fyrir símann. Reyndi 5 sinnum og aldrei svaraði hún og ég orðin frekar pirruð. Það var ekki fyrr en ég var að hringja í sjotta skiptið að ég fattaði að síminn hennar væri týndur.. döhh!!

Þessari dagbókar-færslu er lokið núna

Næst á dagskrá er Ellý Ármanns

Mér finnst rauðhærðir töff.
-Meira um það seinna

Dine børn gør hvad du gør, ikke hvad du siger.
-Meira um það seinna

Háþróaða Ísland á sama plani og lönd þar sem fólk kann ekki á klósett og konur eru hlutir.
-Meira um það seinna

Ég er að fara að gera svolítið leyndó á morgun.
-Meira um það seinna

Ég ætla uppá Esjutopp milli 16.00 - 17.00 á morgun.
-Hver vill með?

Sem sagt margt að gerast á froskurinn.blogspot.com á næstu dögum - fylgist spennt með.

2.7.07

Uhh, já svo ég segi kannski frá því að djammIÐ var þannig að ég drakk 3 bjóra og endaði heima klukkan 3 í nótt. Það er leiðinlegt að djamma á Íslandi. Allavega fer það alltaf versnandi í hvert skipti. Síðast þegar að mér fannst fínt í bænum hérna var í maí, þegar mér var meinaður aðgangur að einum af heitari stöðum borgarinnar og endaði á Oliver. Edrú.
Kannski er ég bara að fara á vitlausa staði eða djamma með vitlausu fólki ;)
Ísland fær samt stórann plús fyrir að vera reyklaust.

Bætti úr þessu með að gera fullt skemmtilegt í dag. Hentist í sund í morgun þegar ég vaknaði. Það var auðivtað sama rassírass stemmningin og vanalega þegar að gula kvikindið lætur sjá sig. Samt alltaf hressandi að fara í sund.
Endaði daginn í dinner á Vegamótum. Klikkar ekki.

Klukkan er orðin fjögur og ég ekki sofnuð ennþá, er ekki búin að venjast þessari birtu ennþá. Verð sjúklega hress á morgun ósofin og bitur útaf því að á morgun er 8-20 dagur. Elska að vinna 12 tíma daga..Plehhh

30.6.07

Lørdagaften

Skötlaði pabba, Þóru mömmu og skrímslunum þremur uppí bústað og skyldi þau eftir þar. Verð ein heima í viku og verður haldið uppá það í kvöld.
Hér verður setið og sötrað þangað til það er tími til að halda niðrí bæ. Þá kemur í ljós hvort við komumst inn einhversstaðar. Annars förum við bara að djamma með rónunum á Hlemmi.
Ég hef ekki drukkið áfengi síðan ég fékk skotaveikina miklu í lok apríl eða byrjun maí, þannig að ég ber ekki ábyrgð á gjörðum mínum í kvöld.
Ef einhver vill taka ábyrgð á gjörðum mínum, þá megið þið hafa samband í síma 848-5313.
Farið varlega og passið ykkur á mér..

Dagskrá vikunar

"Dagskrá vikunar er eins og ostur. Verður bara betri með árunum og heldur áfram að koma í hús á fimmtudögum."

Soldið mis auglýsing. Veit ekki um neinn sem fær osta senda heim til sín á hverjum fimmtudegi...

28.6.07

Það er kalt á toppnum

Skellti mér á Esjuna í gær. Komst ekki alveg uppá topp vegna veðurs. Það var svo mikill vindur að maður rétt svo náði andanum. En allavega þá fór ég nánast uppá topp og niður aftur. Finnst vert að taka fram að ég hafi farið niður aftur, því ég þjáist af svo mikilli lofthræðslu að mér finnst meira afrek að hafa farið niður Esjuna en upp.(Fjallganga er kannski ekki alveg besta hobbý-ið fyrir lofthrædda?)
Í dag fékk ég þessar líka fínu harðsperrur í rassinn svo ég er búin að staulast um allt eins og önd í allan dag.
Það var annars dásamlegt að drullast svona upp og niður Esjuna, þetta er ekkert smá góð hreyfing og í góðu veðri er þetta ólýsanlegt (Það var svo vont veður í gær að þetta var alveg lýsanlegt, ekki ólýsanlegt.) Það var ótrúlega mikið af fólki og það sem kom mér mest á óvart var það að fólk bauð góða kvöldið, þegar það mætti manni. Ég var svo orðlaus þegar að 2 voru búnir að bjóða góða kvöldið að ég gat ekki stunið upp nema "aften" á móti. Íslendingar bjóða nefninlega aldrei góða kvöldið, þess vegna var ég alveg viss um að þetta væri vegna þess að loftið væri svona þunnt þarna uppi. Kannski voru allir sem ég mætti bara glaðir, því að þeir voru nýbúnir að... Labba upp Esjuna?

Að öðru. Ég röflaði um daginn um það að ég saknaði þess að tala dönsku. Óskaði þess svo heitt að finna einhvern dana sem ég gæti spjallað við. Í dag var mér refsað fyrir það. Það var hringt í mig frá DK og ég auðvitað svaraði djöfuls símanum. Var þetta ekki leiðinlegasti og sjálfselskasti dani sem ég þekki. Og þekki ég nokkra þannig. Hann þurfti að segja mér allskonar sniðugt um hvað hann væri nú frábær og æðislegur og allt væri dásamlegt sem hann gerir. Svo kom hann sér að efninu. Haldiði að vinurinn sé ekki bara að koma til Íslands á Sunnudaginn. Verður í viku með vini sínum. Vildi að sjálfsögðu fá mig í einhvern túristaleik með þeim og sína þeim Ísland. Skyndilega mundi ég að það er brjálað að gera í vinnunni í næstu viku.. þarf örugglega að vinna til 12 á kvöldin og svo á ég ekki bíl, þannig að þetta yrði frekar erfitt fyrir mig. Einhvern vegin vissi kvikindið hins vegar hvar ég er að vinna..Hann spurði því hvernig gæti verið að ég þyrfti að vinna til 12 á kvöldin í eldhúsi, og sagði svo að þeir yrðu með bílaleigubíl, ég var við það að fá taugaáfall úr stressi, því ég er lélegasti lygari í heimi.. þegar að ég fékk frábæra hugmynd. Sagði að ég væri að fara í göng og það "Æri kket sambnd". Þegar að ég hélt að ég væri sloppin fyrir horn, búin að skella á kauða og setja síman í 300 metra fjarlægð frá mér, þá fattaði ég að ég hafði sagt 3 min áður að ég væri að labba á löngum gangi inní bygingunni sem ég vinn í...

Mig vantar felustað þangað til á Sunnudaginn eftir viku.. einhver?
Þið verðið að senda mér loftkeyti næstu daga, ég þori ekki að kveikja á símanum mínum.

26.6.07

Baby gsm og Valkvíði

Þegar ég kom heim úr vinnunni og opnaði hurðina útí garð þá voru þar lítil börn að leik á rólóvellinum fyrir utan. Pældi ekki mikið í því og fór eitthvað að brasa. Síðan lít ég út, er þá ekki annað barnið að blaðra í símann, í rólunni. Mér fannst þetta svo fáránleg sjón að ég fór að hlusta hvað barnið var að segja í símann og þá heyrði ég að það var að spurja einhvern um að koma út að leika. Stuttu seinna bættist þriðja barnið við, með gsm síma um hálsinn.
Nú segi ég þessa fleygu orð "Þegar ég var ung" voru börnin með lykla um hálsin en ekki síma..
Er þetta normið? Þessi börn voru ekki deginum eldri en 5 ára. Katla er soldið seinþroska í þessum málum greinilega, rúmlega 15 mánaða og ekki með gsm.

Er annars með valkvíða. Veit ekki hvort ég eigi að hjóla inní Garðabæ, fara í sund eða skrölta upp Esjuna.

Ekki dauð og ekki hætt..

Hef íhugað það mikið síðustu daga að hætta að blogga. Hef ekki alveg komist að niðurstöðu, en er greinilega ekki hætt alveg fyrst ég er að þrykkja inn einni færslu núna.

Ástæðan fyrir þessari færslu er aðeins ein, ég þarf að segja alheiminum, eða allavega Ömmu og hinum apakettinum sem les þetta blogg að ég var að koma heim eftir 80.min hjólatúr. Hjólaði frá Seltjarnarnesi og uppí Kórsali. Villtist smá á leiðinni og ruglaðst á Árbænum og Breiðholti. Ég er svo útlensk.
Er að íhuga að hjóla í vinnuna í fyrramálið, en ætla samt að sjá til hvernig ég verð í afturendanum þegar ég vakna.

Hamingjuóskir eru vel þegnar, enda finnst mér þetta alveg þónokkuð afrek.

Ég er annars bara að vinna á fullu í mötuneytinu í Samskip. Með Óskar frænda sem yfirmann. Hingað til hef ég sloppið alveg ótrúlega vel við rifjaboranir og aðrar pyntingar, en það er eins eðlilegt fyrir Óskar að pynta mig eins og að segja "hæ" þegar við hittumst. Þetta er alveg ótrúlega fínt, en held að ég verði voða fegin þegar að ég hætti, eftir sumarið. Ekki framtíð í mötuneytinu :)

Jæja, það er löngu komið fram yfir minn háttatíma, klukkan að verða 01.30 og tími fyrir vinnandi og hjólandi konu að fara að leggja sig..

22.6.07

Svoh gott að lúlla sér..

Var búin að vinna kl. 14.00 og sótti Kötluna mína. Við fórum heim og steinsofnuðum báðar tvær í hjónarúminu. Ég var að skríða fram úr núna og klukkan er að verða 17.00 - djöfull var þetta ógeðslega gott.

Fátt að frétta. Fór að hitta litla ótrúlega fallega frænda minn í gær, maður er alltaf jafn undrandi hvað svona ungbörn geta verið lítil. Samt er nú bara ár síðan að það var svona ungi á heimilinu.

Sakna þess strax sjúklega mikið að tala dönsku. Er að hugsa um að fara að finna mér einhvern dana til að tala við.

Sjitt hvað þessi síða er orðin leiðinleg..sjitt hvað ég er orðin leiðinleg :)

Gangster

Vííí, hvað ég er mikill púki.
Alltaf stemmning í vinnunni..

21.6.07

Ísland - Serbía

Ef einhver hefur áhuga á að fara á Ísland - Serbía í kvöld, endilega verið þá í bandi. á fjóra miða sem ég er ekki að fara að nota.

Sími: 848-5313

Ekki vera feimin.

20.6.07

Dagur 1, taka tvö í Samskip búinn. Lét lítið fyrir mér fara í hádeginu en samt var óþægilega mikið af fólki sem pikkaði í mig og sagði "hva, bara komin aftur?" Á morgun er restin af liðinu sem sagði þetta ekki við mig í dag, velkomin til þess að segja eitthvað svona sniðugt við mig, eftir morgundaginn fær fólk mínus stig fyrir að segja svona :)
Konurnar sem vinna með mér eru allar að minnsta kosti 25 árum eldri en ég, en það er bara fínt, þær eru æði, ógeðslega skemmtilegt crowd, hlægja að öllum bröndurunum sem ég segi og finnst ég ótrúlega fyndin. Held ég.
Mér finnst Ísland æði. Það er búið að vera svo ekta íslenskt sumarveður og allt svo fallegt eitthvað. Þangað til að maður fer útí búð og kaupir sér þrjár kjúklingabringur á 2.000 krónur og fer í strætó fyrir 500 kall. En það er líka hægt að redda sér bara með að láta einhvern annan um innkaupin, eða éta í vinnunni og fá bílinn lánaðan hjá pabba.
Talandi um ferðamáta. Ég held að ég sé búin að finna alveg frábæra hjólaleið frá Kórsölum og niðrí Samskip. Spurning um að nýta sér það og hjóla í vinnuna á morgnana?
Þá vantar bara hjólið. Ef að það er einhver þarna úti sem á gott hjól í sæmilegu standi þá er ég alveg til í að taka það að mér þangað til í ágúst.
Koma svoh, miða við lífsgæðakapphlaupið sem allir eru þáttakendur í hérna þá ættu að vera amk 4 ný og ónotum fjallahjól í öðrum hvorum bílskúr, en hver hjólar í vinnuna þegar hann á 3 nýja bíla? Endilega athugið bakvið fellihýsin...

19.6.07

Í dag heyrist í hverju horni "En hvað veðrið er dásamlegt," "En hvað það er frábært veður í dag" og fólkið í útvarpinu talar um góðviðrisdag og ég veit ekki hvað og hvað.
Í dag er hálf þjóðin nánast nakin úti, því það er svo ákaflega gott veður. Allir að wörka tanið.
Í dag sást til mín í síðum gallabuxum, hettupeysu og flíspeysu.
Skítakuldi.

17.6.07

Hæ, hó..

Gleðilega þjóðhátíð.
Skrýtinn 17. júní. Hætt við hátíðarhöld vegna veðurs. Eins og gefur að skilja rigndi eins og hellt væri úr fötu í dag og því hætt við allt dæmið(þetta var dönsk hellidemba, ekki íslensk), því ekki mikið um SS pylsur og candy-flos í dag.

Horfið á ÞETTA, viðbjóðslega fyndnar auglýsingar.

Þangað til næst, BOM CHICKA WAH WAH!!!

16.6.07

Próflok og fjölgun..

Prófið gekk vel. Stort 9 tal og mikið hrós.

Aðal fréttirnar eru samt að það fjölgaði á Stekkjarflötinni þann 14. Júní. Almar föðurbróðir minn og Guðrún konan hans voru að eignast fjórða barnið sitt. Lítill og ótrúlega sætur strákur.
Til hamingju!!

Ekkert smá fallegur og föngulegur hópur. Enda frændsystkini mín :)










14.6.07

Eksamen og trusser..

Annad hvort er censor-inn tík eda tha ad danir eru heimskir. Thad er enginn búinn ad fá yfir 7 af theim sem eru búnir ad fara inn og framleggja. Og thad eru tveir fallnir. Gaman ad thvi.

Ég fer upp klukkan 13.30 á morgun og hef annad hvort enga ástædu til ad vera stressud eda mjög mikla.

Ad ödru. Í gær fór ég nidur til Einars og baud honum upp í heimsókn. Vill svo skemmtilega til ad thad tharf einmitt ad setja upp hillur, hurd og gardínur. Tekur thvi samt varla ad setja upp thessar gardínur, thad eru allir í blokkinni á móti búnir ad sjá mig á nærbuxunum hvort ed er.

Kalt í Danmörku núna. Ég er í gallabuxum og Cintamani flíspeysu. Svaf líka vel í nótt, thvi thad var ekki 30 stiga hiti inni hjá mér og 3000 myg flugur. Ljúft.

Gummi frændi er ógedslega fyndinn. Fékk thetta sent í símann minn thegar hann var á ferdalagi í Búddapest...


13.6.07

Slys

Í dag, 13. júní á ég 20 ára getnadarafmæli. Fyrir 20 árum, nánar til tekid á fostudeginum threttánda. Thá voru sum sé David Bowie tónleikar í London og ég vard til. Mjog óvart. Ég var svo ekki uppgotvud fyrr en 7 mánudum seinna. Gaman ad thessu.

Fínt ad frétta annars. Stóra prófid á fostudaginn. Ég er ómálud, í joggaranum uppí skóla ad læra. Ísland á..tja veit ekki hvenær ég ætla ad koma. En thad verdur fyrir 20.júní. Hlakka mikid mikid til.

Bleee

11.6.07

Útlenska

Getur einhver sagt mér hvernig madur segir "NEI!" á karlmennsku?

10.6.07

Mee

34 gráður sýndi hitamælirinn í skugganum í dag klukkan 14.00

Það er ógeð. Það er ekki hægt að vera. Of heitt. Alltof heitt.

Ég er sveitt. Sit í sófanum með viftuna á milljón. Klukkan er að ganga 20.00.

Á morgun er svipuð spá. Ég verð í skólanum til 16.00 - Stemmari.

8.6.07

Komin í "pakkann"

Ég er orðin Við.
Ég vaknaði í eintölu og fór að sofa í fleirtölu.
Svo virðist vera sem Íris og ég séum búnar að eyða of miklum tíma saman. Fólk er farið að tala um okkur sem par. Allavega var Íris spurð í gær hvort að VIÐ værum búnar að ákveða hvort við ætluðum í útileguna um helgina. Þetta fannst henni sjálfsagður hlutur og sagði að VIÐ værum ekki búnar að taka ákvörðun ennþá, en VIÐ myndum bara vera í sambandi..
Skemmtilegt. Ég sem er með skuldbindningar fóbíu á háu stigi.

Hryllilega gott veður, slefar í 30 stig. Ströndin, barinn, mygbit, sviti og hiti.
Ég ætla samt að skauta á barinn núna á eftir, því það er greynilega frosið í helvíti...

Ég er með naglalakk á tánum...!

6.6.07

Kollegílífið gengur alveg ljómandi vel og er alveg svakalega skemmtilegt. Nema þegar að maður vaknar við fulla spánverja klukkan 03.00 á nóttunni. En það venst.
Ehm ég hef ekkert annað að blogga um, ótrúlegt en satt.
Jú, ég fór til læknis útaf ofnæminu og samkvæmt lækninum er ég með mjög slæmt tilfelli af frjókorna/grasofnæmi og asma. Fór áðan og fékk sprautu í rassinn útaf ofnæminu. Núna er ég dofin frá hægri rasskinn og niðrá miðjan kálfa. Skemmtilegt.

1.6.07

Bongó blíða

Ætlaði að tuða yfir því hvað mig langaði að vera á sólarströnd. En svo hringdi pabbi í mig frá Portúgal og sagðist nú bara vera í sundlaugargarðinum í 20 stiga hita og sól. Það eru 25 stig hérna og glampandi sól. Svo gott veður að ég get ekki verið úti.
Upphaflega ástæðan var vegna þess að ég hef þjáðst af miklu frjókornaofnæmi í gegnum árin, sem virðist hafa aukist um 100% frá því í fyrra. En núna er ástæða fyrir inniveru minni önnur. Dóp. Ég varð svo glöð þegar að ég fann upp aðferð til að halda ofnæminu niðri í heila 2 tíma í einu. Með því að taka tvær Benadryl (með 8 tíma virkni), eina Zyrtek (24 tíma virkni) og eina bráðaofnæmistöflu næ ég að anda með munninum, nefinu og sjá útúr augunum.
En ég er svo dópuð að ég get ekki gert nokkurn skapaðan hlut.
Spurning um að fara til læknis?

Ammmmælis

Sigríður Soffía litla systir mín á afmæli í dag. Orðin táningur. Þess vegna sem ég flutti út. Það er ekki hægt að búa með tveim gelgjum.
Frumlegasti krakki sem ég veit um. Hún hefur meðal annars tekið sig til og farið í þagnabindindi í nokkra daga - hélt það út, öllum að óvörum. Af og til er hún líka grænmetisæta, en það er bara þangað til að það er eitthvað djúsí kjöt í matinn.
Ótrúlega skapstórt barn. Held hún fari alveg pottþétt í pólitík þegar hún eldist. Allavega einhverja stjórnunarstöðu.
En já, annars til hamingju með afmælið, litla mín.

Guðmundur Óskarsson (móður)bróðir minn á afmæli í dag. 31 árs ára, eins og maðurinn sagði. Maðurinn á bakvið Jóa Gúrku og litlu hænunar sem pissaði í sig.
Gummi frændi hefur strítt mér og pínt mig frá því að ég var í vöggu. Látið mig gera allan andskotann og segja ýmislegt.
Samband okkar er 50/50 ást og hatur. Amma greyið þarf oftar en ekki að skipta sér af slagsmálunum og rifrildunum, þó að við eigum með öllu réttu að heita fullorðnar manneskjur.
Þess á milli (þegar við þurfum ekki að vera í sama herbergi í meira en 5 mín) þá sendum við þessi líka svakalega sætu sms á milli og erum alveg ótrúlega næs við hvort annað..á msn.
Til hamingju með afmælið elsku litla þvaghænsnið mitt. Hafðu það gott.
Og hér kemur sagan um litlu hænuna.

Einu sinni var lítil hæna, sem pissaði í sig og fór að gráta.
Svo hitti hænan svín, sem spurði hana hvað væri að.
Þá sagðist hænan hafa pissað í sig.
Þá sagði svínið, þetta er allt í lagi, ég gerði þetta líka í æsku..!

Jámm. Við Gummi erum ótrúlega miklir húmorsistar.


Afi Týndi á líka afmæli í dag, en hann er týndur og þýðir víst lítið að óska honum til hamingju með ammó.

30.5.07

Ammælis og flutningar..!

Ástkær móðir mín á 37 ára afmæli í dag.
Hingað til hefur hún borið aldurinn einstaklega vel og erum við oftar en ekki spurðar að því hvort að við séum systur. Það finnst mömmu æði en mér finnst það ekki alveg jafn skemmtilegt. Í gær hins vegar sýndi hún mér að aldurinn er farinn að taka sinn toll. Þegar að ég náði í hana í skólann í gær tuðaði hún heil ósköp yfir því að ég væri að spila System of a down í bílnum. Fannst lagið ASNALEGT!
Annars er þetta alveg besta mamma sem hægt er að hugsa sér og vil ég nota tækifærið og þakka henni fyrir að hafa nennt að þrífa af mér, elda ofaní mig og vera alltaf til staðar til að banna mér að gera einhverja vitleysu. Met það mikils.

Ég gaf móður minni bestu afmælisgjöfina og fór í dag og náði í lyklana af íbúðinni á kollegíinu. Er búin að flytja öll fötin mín þarna upp. Það voru 4 ferðir. Núna eru skórnir, rúmið og glösin eftir.

Í kvöld verður haldið uppá þetta allt saman með því að fara ógeðs gott út að borða.


Mamma með húfuna sem vinur hennar á hælinu gerði fyrir hana..!!

27.5.07

Babyland dot com

www.barnaland.is er frábær vefur.
Á barnalandi snýst nefninlega ekki allt um börn, eins og svo margir halda. Síður en svo. Á þessum vef má vissulega finna nytsamlegar upplýsingar um bleyjuskiptingar og brjóstagjöf. Þar má einnig finna heimasíður misfagra ungbarna og hægt að kaupa og selja allt milli himins og jarðar. Allt frá sprækum ánamöðkum uppí bíla og megrunarkúra.
Spjallþræðir fyrir tilvonandi verðandi mæður, verðandi mæður og mæður. Gasalega sniðugt ef að maður er ekki viss hvað gera skal ef barnið manns er með 41 stiga hita og með krampa. Eða hvað gera skal ef ungbarnið vill ekki taka snuð.
Svo er aðal giggið. Spjallþráðurinn "Annað". Þar er allt fjörið. Á þeim þræði er sko ekki rætt um hvort Nuk eða Avent pelarnir séu betri eða hvort sé betra, Huggies eða Pampers. Aldeilis ekki. Þar er rætt um hin ýmsu málefni. Og ómálefni (Ég má segja Ómálefni. Ég bý í útlöndum og segi Óframtakssemi. Get over it).
Stundum er meira að segja talað um pólitík og mál líðandi stundar. En það gerist ekki oft. Mest er verið að tala um hvað Brynja Björk á ljóta skó eða hvað konan í næsta húsi er glötuð móðir að láta barnið sitt sofa úti í 3 stiga hita og rigningu. Sem sagt svona eldhúsborðaumræða svokölluð. Eins og fer fram útá landi, þar sem að nágrannakonurnar hittast, sitja við eldhúsborðið, drekka kaffi og baktala fólkið í plássinu.
Oftar en ekki hefur maður lesið eitthvað ógurlega skemmtilegt um sína eigin fjölskyldu. Sem maður vissi ekki áður, nota bene. Best fannst mér þó þegar að Byrgismálið stóð sem hæðst að eitt gáfumennið hélt því fram að Guðmundur væri pabbi Sigmars í Kastljósinu.
Stundum gerist þó að maður dettur niðrá eitthvað djúsí. Eins og í kvöld. Það var ekki lærdómsfriður fyrir þessum kellingum. Það var auðvitað framhjáhald í beinni. Maður að halda fram hjá konu, bróðir konunar sendur til að staðfesta grun konunar, sem komst ekki sjálf, löggan mætt á svæðið, maður með kúbein í bílnum og 16 ára barn fylgdist með öllu saman meðan konan sat við tölvuna, með barnið í símanum og póstaði inn jafnóðum hvað væri að ske.
Nákvæmlega það sem ég myndi gera ef einhver myndi halda fram hjá mér. Pósta því á barnaland.
Stundum er líka einelti, flett ofan af nikkunum og ég veit ekki hvað og hvað.
En oftast er samt bara verið að tuða yfir ömurlegum eiginmönnum, monnta sig af ljótum börnum og slúðra.
Elzka barnaland.is :)

25.5.07

Gulrótargenin..

Ég held að Ásgeir Kolbeins sé öfundssjúkur útí mig. Hann þarf að spreyja sig til þess að vera eins og gulrót. Ég þarf bara að fá smá sól á kroppinn og vola..



P.S. Við erum ekki fatlaðar. Erum bara svona.
Ég held líka stundum að ég sé Zoolander.

24.5.07

Hjólaþon Glitnis?

En yndislegur dagur!
Lífið er bara nokkuð frábært í dag. Ég er allavega brosandi.
Eftir skóla fannst mér líka alveg tilvalið að hjóla lengri leið heim en ég er vön. Ég var nefninlega í Íþróttafötum og með iPod. Fannst því alveg tilvalið að hendast einn auka hring á hjólinu.
Hjólaði uppí Odder og til baka. Það eru 27 kílómetrar frá skólanum mínum og að Odder. Og kannski svona 24km frá Odder og heim aftur. Þannig að ef að mér skjátlast ekki þá hjólaði ég 51km í dag. Plús þessa 3km sem ég hjólaði í skólann.
Og sá sem sagði að Danmörk væri flatt land, hefur greinilega aldrei komið út fyrir bílastæðin á Kastrup. Það eru allavega brekkur dauðans þessa leið sem ég fór. Hélt á tímabili að ég væri komin í Alpana.
Verður Glitnir ekki með neitt hjólaþon í ár?

Lance Armstrong my fucking ass

Markmið

Í lestinni rétt áður en við komum að Horsens ákvað ég að setja mér markmið. Og standa við það. Markmiðið er það að ég ætla að snúa sólarhringnum við, áður en ég kem aftur til Íslands um miðjan næsta mánuð.
Gekk vel fyrsta kvöldið. Þá sofnaði ég klukkan 01.00 - sem er um það bil tveim tímum fyrr en vanalega.
Í gær sofnaði ég um 02.00 - ekki gott. Var samt komin uppí rúm fyrr. Gat ekki sofnað.
Núna er ég glaðvakandi og klukkan er 03.15.

Hvernig snýr maður sólarhringnum við?
Ég reyndi að þreyta mig eins og ég gat í gær. Vaknaði snemma. Hjólaði í skólann. Hljóp 5.5 km seinni partinn og hjólaði 15 km í gærkvöldi.
Ég varð ekkert þreytt. Fékk bara myg bit og harðsperrur í rassinn.
Hjálp.

23.5.07

Svo gaman í góða veðrinu

Vaknaði í morgun og gat ekki opnað augun. Ekki sökum þreytu heldur ofnæmis. Hnerraði svo mikið að ég nánast datt fram úr rúminu, á gólfið og fékk svo hressilegt hóstakast. Þar með vissi ég að það var gott veður úti.
Náði svo að opna augun, en þá byrjaði mér að klæja útum allan líkamann. Hefði greinilega ekki átt að hjóla þessa 15 kílómetra þarna í gærkvöldi því að ég var bókstaflega étin af MYG flugum.

Yup, það er gaman í danska sumarveðrinu!

22.5.07

Við hliðiná mér..

Ég er búin að vera svo utan við mig síðustu vikur og daga að ég er alveg við hliðiná mér, eða jafnvel fyrir aftan mig, svei mér þá.
Ég gleymi ÖLLU sem er sagt við mig. Gleymdi að ná í bróður minn um daginn, gleymdi að fara til tannlæknis í tjékk útaf tyggjófíkninni, gleymdi slatta af afmælum, gleymdi að mæta í bíó og svo mætti lengi telja.
Ég var nú búin að vera góð í nokkra daga áður en ég fór til Íslands, en svo kom þetta aftur. Núna síðast gleymdi ég hleðslutækinu mínu á íslandi, Tax-Free nótunum heima þegar haldið var útá flugvöll (búin að hafa mikið fyrir að muna eftir að taka Tax-Free) og ég er búin að gleyma hvað þriðji hluturinn var.
Með þessu áframhaldi gleymi ég sjálfri mér einhversstaðar. Þakka guði fyrir að ég á ekki börn, þau væru löngu gleymd einhversstaðar, greyin.

21.5.07

Fíla vorið...

Vorið er tvímælalaust minn uppáhalds árstími. Það er allt að vakna eftir veturinn, gróðurinn, dýrin og fólkið. Það kemur öðruvísi lykt og dagarnir verða langir. Veðrið mildast og maður nennir að vera meira úti við en á veturna, því maður þarf ekki að vera klæddur í geimbúning til þess að lifa af.
Það er æði að fara í göngutúra í miðbænum, skreppa niðrá tjörn og gefa mávunum brauð og skjótast jafnvel í fjallgöngur eða langa hjólatúra.
Í gær ætlaði ég einmitt að fara niðrá Ægissíðu og fá mér einn góðann göngutúr meðfram sjónum. Þegar að ég kom út, í gallabuxum, flíspeysu og strigaskóm var veðráttan svona...





10. mínútum áður var voða fínt veður.
Sleppti að sjálfsögðu göngutúrnum og fór bara og hitti Karen Helgu í staðinn, sem var sko ekki slæmt ;)
Allt í einu fannst mér Danmerkurdvölin tilgangslaus.
Það er miklu skemmtilegra á Íslandi. Ætur matur, skemmtilegt fólk og ótrúlega sætir strákar.
Og ég bý í Danmörku af því að??

20.5.07

Brennt barn forðast eldinn?

Ég er ekki svo viss um það. Allavega á það ekki við í mínu tilfelli.
Álpaðist til þess að kaupa mér rándýra flík í einni af NTC verslununum. Fór í hana einu sinni og núna er hún eins og gatasigti. Saumsprettur og ógeðslega lélegur frágangur á þessari blessuðu flík, sem by the way kostaði alveg sitt.
Ég er alltaf að lenda í veseni með fötin þaðan. Það er nánast undantekning ef að ég þarf ekki að fara með flíkurnar aftur til að láta laga þær, Því það má jú ekki fá að skipta nema að það sé "gjafalímmiði" á flíkinni. Fáránlegt.
Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að maður borgi fyrir gæðin. Það á svo sannarlega ekki við í þessu tilfelli. Maður er að henda 7.000 kalli í boli, sem endast varla í korter. Svo fer maður í H&M úti, verslar bol á 700kr og hann endist og endist. Samt er þetta bæði bara einhverjar fjöldaframleiddar flíkur.
Held ég sé hætt að versla við þetta fyrirtæki núna, þetta er ógeðslega pirrandi. Bara kaupa fötin mín í SamsøSamsø. Þá endar maður líka ekki á að vera í eins fötum og önnur hver stelpa á Íslandi :)

18.5.07

Stjörnuspá dagsins

Fiskar: Einhver hefur flutt inn í hjartað þitt. Og þú sem tókst ekki eftir neinu! Hvernig sem þessi aðili fór að, þá muntu kunna að meta nýja íbúann. Indælt!


Enn og aftur virðist ég vera ótrúlega treg. Ég er ekki enn búin að taka eftir neinum nýjum í hjartanu mínu. Alltaf bara sama pakkið þar.
Ég vil vinsamlega biðja nýja íbúann að gefa sig fram. Það er ekkert bara hægt að flytja svona inn án þess að láta vita og sleppa að borga leigu!
Ætli það sé ekki hægt að skipta um stjörnumerki?

Óskar Fjandi

Þegar ég var lítil talaði ég eðlilega ekki fullkomið. Gat ekki sagt ákveðna stafi og átti í sérstaklega miklum vandræðum með að segja Kartafla og Paprika. (Kjappella og prapríka)
Ég gat ekki sagt "Frændi" en reddaði mér bara með því að segja "Fjandi". Frændur mínir voru ekkert sérstaklega ánægðir með þessa nafngift og sögðust ekkert skilja í þessu hvað barnið kallaði þá fjendur, þar sem að ég, litla prinsessan hafði auðvitað vafið þeim um fingur mér frá því að ég fæddist og snérist líf þeirra oft á tíðum um það að skemmta mér, sinna mér og gera allt sem ég bað þá um.
Oft er sagt að börn sjái hluti sem við sjáum ekki. Oftast er nú átt við dáið fólk, huldufólk eða eitthvað slíkt, en svo var ekki í mínu tilfelli. Ég sá framtíðina. Þess vegna kallaði ég þá fjendur.
Eftir því sem ég stækkaði fór dæmið að snúast við. Þeir snérust minna í kringum mig og ég meira um þá. Ég var notuð í allskonar tilrauna starfsemi, látin ná í hitt og þetta fyrir þá og látin drekka ógeðisdrykki. Þeir hræddu líftóruna úr mér með að búa til einhverja fígúru sem hét Jói Gúrka og alltaf þegar að ég var óþekk, var hótað að hringja í Jóa Gúrku.
Þegar ég fór á gelgjuna fannst þeim ekkert skemmtilegra en að espa mig upp með því að segja að ég væri með unglingaveikna og að David Beckham væri hommi.
Síðan var ég látin passa. Pakka inn jólagjöfum og síðar kaupa þær líka.
Í kvöld fór ég í matarboð til ömmu og afa í S1. Það fyrsta sem ég sá þegar að ég labbaði inn var glottandi smettið á Óskari Fjanda. Fann það á mér að það var eitthvað í gangi. Ójá.
Ég er að fara að vakna klukkan 06.00 til þess að fara að hjálpa Óskari Fjanda með eitthvað. Klukkan S E X!!!
EN. Ég er að reyna að sýna smá lit og reyna að vera svolítið Pollýönnuleg.
Þetta verður örgglega dásamlegt, vakna meðan borgin sefur og sólin er að koma upp. Nema hvað að sólin skín ekki á Íslandi nema rétt í Júlí og Reykjavík sefur aldrei.
Þar fór Pollýanna vinkona mín...

17.5.07

Brandari dagsins

Take a chill pill, Phil.
Komin til Íslands. Er með gamla númerið mitt eins og vanalega. 848-5313.

Þetta ferðalag var "einkað sona dáldið mis" eins og við segjum hérna í Kórsölum. Ég og Íris erum svo miklar túttur að stundum er það ekki einu sinni fyndið.
Við byrjuðum á því að vaka í sólarhring, til þess að við myndum ekki sofa yfir okkur. Samt misstum við af lestinni. Nújæja, lítið við því að gera annað en að fá sér bara morgunmat á lestarstöðinni og lesa MetroExpress og Urban.
Náðum lest númer tvö, en þá hafði geitin í miðasölunni ekki gefið okkur sæti hlið við hlið. Heldur í sitthvorum vagninum!! Ekki mikil gleði með það.
Nú eftir að hafa steinsofið af sér Fjón þá komum við til Köben. Við heimsborgararnir fórum náttúrulega bara beint að Jakka og biðja um kopp af kaffi með kremi, eins og sönnum heimsborgurum sæmir. Nærðumst á HardRock og svo rölt á strikinu.
Því næst var brunað á leiðinlegasta stað í heimi. Kastrup. Þar biðum við ekki nema í 3 korter í röð eftir að fá að tjékka okkur inn og í 20 mín eftir að komast í gegnum öryggishliðið. 15 min eftir að komast inn í vél og svo í 20 mín eftir að fá að fara í loftið.
Ég ætlaði nú aldeilis að sofa á mínu græna eyra í vélinni, en það tókst ekki betur en svo að ég var látin sitja á milli tveggja þýskra gamalmenna. Sem voru ekki að ferðast saman, þannig að þær vildu ekki skipta um sæti til að geta setið saman. Ég reyndi að gera það besta úr þessu bara, fór í hettupeysuna öfuga til að geta verið í myrkri. iPodinn á bólakaf í eyrun og skrúfað í botn. Nei, þá fóru þær að bonda. YFIR MIG! Og auðvitað á þýsku. Ok, ég gat svosem alveg náð að sofna þrátt fyrir þetta, eða svona næstum. Því um leið og ég var að svífa inní draumaheiminn þá fór önnur þeirra að pikka í mig til þess að spurja mig hvort að það væri hægt að nota evrur á íslandi. OG svo kom bara spuringaflóðið, á þýsku. Ég tala ekki þýsku.

Annars er bara búið að vera dásamlegt að vera hérna síðan að pabbi náði í mig.
Hékk niðrí vinnu hjá pabba aðeins, kíkti á Sölkuna, sem var dáldið glöð að sjá stóru systir birtast svona í dyrunum og þurfti að sýna mér Bjart, hvolpinn sinn og segja mér að hann býtti hana í hárið, eins og hún orðaði svo skemmtilega. Pabbi og Þóra buðu mér svo út að borða á "Hoddnið" og þar var sko étið á sig gat.
Skrapp svo í gærkvöldi í tvö partý, því að fólk var náttúrulega að klára próf í gær. Endaði á edrúdjammi niðrí bæ.

Í morgun kom Katla heim úr sveitinni og það er ekkert smá sem að barnið er búið að taka þroskakipp. Nánast farin að ganga, talar stanslaust og er eiginlega bara eitt stórt skemmtiatriði, svo fyndin er hún.

Annars er ég bara í einhverju chilli, endilega verið í bandi við mig. :)

16.5.07

Hvis du fucker med mig, så fucker jeg med dig og hele din familie

Í dag ætla ég að:
  • Fara í lestina.
  • Lesa og glósa Salg&Service
  • Fara til Köben
  • Rölta á Strojinu
  • Éta pizzu
  • Hanga á flugvelli
  • Lesa og glósa ErhversÖkonomi
  • Fara til Íslands
  • Knúsa pakkið mitt á Ísl.
  • Vonandi hitta Sölkuskrímslið mitt :)
  • Út á lífið í kvöld.
Annars verð ég í ótrúlega góðum félagsskap á leiðinni. Sjitt það verður gaman.
Sjáumst á eftir gott fólk.

15.5.07

Ahh

Það er svo gaman að hlæja útaf engu.
Ég og Íris froðufelldum næstum úr hlátri útaf þessari mynd hérna, sem var tekin daginn fyrir Store Bededag. Hlóum og hlóum útaf því að okkur fannst þetta svo sjúklega fyndin mynd. Hvað er svona ógeðslega fyndið?

14.5.07

Vítahringur.

Ég hef komist að því sem að allar konur ættu að vita svona uppúr fermingu. En þar sem að kvennlegu genin mín komu frá pabba, þá er allt svona lengi að kikka inn.
Amma og mamma eflaust mjög glaðar að ég skuli loksins vera búin að ná þessu. Ég er ekki mjög glöð. Afskaplega leiðinlegt að ég hafi þurft að fatta þetta. En er samt þakklát fyrir þessi 19 ár sem ég þekkti ekki þennan hrotta.
Já börnin góð. Ég þvoði 5 vélar af þvotti í dag. Og núna er ég búin að fatta að það er ógeðslega leiðinlegt að þvo. Og að þvottur er endalaus. Þetta er ekkert annað en vítahringur.
En ég er ótrúlega góð í að komast upp með hluti (oft, ekki alltaf), þannig að ég ætla að komast upp með að sleppa því að þvo.

Hætta að ganga í fötum og spranga um í kartöflusekkjum?

13.5.07

Ég er að hugsa um að búa mér til myndasíðu. Hvar er best að geyma myndirnar sínar innan í internetinu?

Annars er ég að fara í gegnum ÖLL fötin mín. Frá yfirhöfnum og niðrí sokkapör. Það verður eitthvað heppið Afríkuþorp sem verður dressað upp í Armani og Dolce eftir nokkra mánuði.

Seinna

Skotaveikin

Í dag var ég veik. Ég var með skotaveikina. Skotaveikin er veiki sem maður fær eiginlega bara á laugardags og sunnudagsmorgnum. Skotaveikin er einskonar ælupest. Mikil vanlíðan, mikið æl, mikill hausverkur og svo aðeins meira æl.
Neyddist svo til þess að fara fram úr rúminu klukkan 21.00 í kvöld því þá byrjaði Eurovision. Og til þess að forðast að kæfa sjálfa mig í koddanum þá ákvað ég að rífa mig uppúr veikindunum og koma mér á lappir. Þessi keppni er svo mikið djók. Algjört frat. Bara enn ein ástæða fyrir fylleríi.
Hlustaði samt á rás2 með öðru. En það var bara til þess að heyra í pabba. Sorglegt ég veit, en mér finnst pabbi minn sjúklega fyndinn. Sem kynnir. En barnalandskonum finnst það ekki og heldur ekki fólkinu sem kvartaði yfir nærbuxnabrandaranum. En ég er líka með lélegan húmor. Allir vita að barnalandskonur og öryrkjarnir sem kvarta yfir nærbuxnabröndurum í þjóðarsálinni eru með góðan húmor.

HEY, WHERE ARE YOU GOING???
-Gott dæmi um það sem mér finnst fyndið

10.5.07

Heyrðu. Guðbjörg var svona líka hress og dældi peningum inná danska reikninginn minn.

Ég fíla Glitni.
Nokkuð ljóst að ég get aldrei farið að vinna hjá Glitni. Aldrei. Það er bara ekki fræðilegur möguleiki. Allavega ekki ef maður þarf að vera jafn glaður í símann og stelpan sem svaraði mér áðan þegar ég hringdi í Glitni.

"Glitnir, get ég aðstoðað?"
"Ha, eh já, get ég fengið samband við útibúið í Garðabæ?"
"Já, alveg sjálfsagt, en er kannski eitthvað sem ég get hjálpað þér með?"
"Ehm, ehh, já, kannski. Ég þarf að láta millifæra á mig til Danmerkur"
"ÆjjÆjj, þá get ég þvííí miiiður ekki hjálpað þér, en ég skal gefa þér samband."
"Takk"
Svo beið ég í svona eina mínútu. Þá kom sú hressa aftur í símann.
"Heyrðu, þau eru bara því miður öll upptekin"
"Amm, Okay, ehh ég hringi þá bara aftur."
"Nei nei, ég læt bara Guðbjörgu hringja í þig, hvað er númerið þitt"

Ég stamaði upp símanúmerinu mínu og er núna bara að bíða eftir að Guðbjörg hringi.
En vá, þið hefðuð átt að heyra tóninn sem gellan talaði í. Mér fannst alveg eins og hún hefði virkilega áhuga á að hjálpa mér.
Sem skeður ekki oft þegar að maður þarf að eiga við starfsfólk í banka. Það er alltaf eins og þau séu að bíða eftir að maður fari, svo þau geti farið og hengt snöruna um hálsinn á sér.
Ef að Guðbjörg er líka svona glöð ætla ég að færa alla peningana mína í Glitni. ALLA!!

9.5.07

Má bjóða þér í bíó?

"Vá," sagði siðprúða og löghlýðna ég, óvart upphátt og starði stórum augum á tölvuskjáinn fyrir framan mig meðan mér svelgdist á fyrsta kaffisopa morgunsins. Þetta var jafn tilfinningaþrungið og í Windows Vista auglýsingunni

Ég trúði varla mínum eigin augum þegar að ég opnaði inboxið mitt í skólanum í morgun. Þar stóð svart á hvítu "Má bjóða þér í bíó."
Hjartað tók auka slag og ég var alveg viss um að núna væri ég að fara að lenda í einhverri svakalegri sumarást. Svona Notebook ást. Að núna væri prinsinn á hvíta hestinum kominn til að bjarga mér úr prísundinni. Sópa mér af löppunum, eins og og þeir segja í Ameríkunni.
Hélt að þetta væri sá eini rétti að bjóða mér út og að nú yrði líf mitt bara dans í tunglsljósinu, gönguferðir á ströndinni og lautarferðir í Heiðmörk. Svo eftir nokkur ár, einbýlishús, barn og station.

Vaknaði upp þegar að ég opnaði djöfulsins meilið.
Fimman.is að bjóða mér að taka þátt í "laufléttum spurningaleik".

Ekki einu sinni gratis bíómiði.

8.5.07

Spenningur og Útgjöld.

Jájá. Allt að gerast hérna megin.
Ég er að fara að pakka lífinu ofaní kassa og flytja svo með rúmið mitt, kommóðuna og Flosa á Kollegíið. 1. júní 2007.
Ég sem sagt fékk íbúð á Kollegíinu alveg óvart eiginlega. Ætlaði ekkert að fara þangað fyrr en í haust. En það eru víst langir biðlistar og þessi íbúð var að losna þegar að ég kom og var að tjékka á þessu þannig að ég skellti mér bara á hana. Systir mín elskar mig fyrir þetta, enda búin að bíða eftir að fá herbergið mitt síðan fyrir 3 árum þegar að við fluttum í þetta hús. Þessir unglingar.
Ótrúlega spennandi.
Svo eru það tölvukaupin, en við Stjáni fórum í leiðangur í gær og sáum ýmislegt sem okkur leyst vel á. Ég frysti maccan í bili, enda held ég að það sé skynsamlegra í þessu námi sem ég er í að vera bara með PC helvíti. Ég er svo skynsöm stelpa.
Íslandsferðin á miðvikudaginn eftir viku. Það er alveg spurning um að hætta við hana. Kostar alltof mikið að fara til Íslands, þó að flugið sé næsten gratis. Og svo er ekki ókeypis að flytja að heiman og heldur ekki að kaupa tölvu.
Eins gott að Samskip borgi mér vel í sumar!!!!

7.5.07

Já. Þessi helgi var löng og ströng fyrir okkur námsmennina í Danmörku.
Það var byrjað á fimmtudaginn. Skellt sér í smá teiti. Átti bara að vera rólegt og ætlaði ég bara snemma heim. En annað kom nú á daginn. Skelltum okkur á varðeld þar sem var sungið og spilað á gítar eitthvað frameftir. Svo var það bærinn þar sem við Íris skelltum okkur á CrazyDaisy og enduðum á að dansa við einhvern homma langt fram eftir morgni.
Daginn eftir var maður rifinn upp á rassgatinu klukkan 12.00. Ferðinni var heitið á ströndina. Þar var legið og notið lífsins með einn kaldann. Svo var spilaður strandfótbolti. Það var erfitt, en við stelpurnar unnum strákana 5-1. Ekki slæmt það.
Þegar að fótboltinn var búinn var farið á pallinn hjá Gísla Blö og setið í sólinni með frozen margaritas á kantinum. Um kveldið var svo farið í bæinn og komið heim undir morgun.
Á laugardaginn þurfti ég nú aðeins að skreppa og hitta stórvinkonu mína, hana Beyonce. En hún var með tónleika í Álaborg. Tónleikarnir komu á óvart. Svaka flott show og bara stelpur að spila með henni. Það var töff. Hún er annars frekar heit þessi gella. Soldið mikið heit.
Eftir tónleikana var haldið á djammið í Álaborg með Írisi og vinkonum hennar. Skemmtum við okkur svona líka alveg konunglega. Herra Nílsen, Saltlagerinn og svo Cube, þar sem eftirpartíið fyrir Beyonce var. Komum heim klukkan 7 um morguninn, alveg búnar á því!
Sunnudagurinn fór í þynnku hjá flestum. Ég hafði rænu á því að halda mig við nokkra bjóra kvöldið áður og var því svona semí hress, en samt dauðþreytt eftir þessa helgi. Við Íris fórum bara á PizzaHut, belgdum okkur út af pizzu og fórum svo í roadtrip heim til Horsens.

Dáltið erfitt að vera svona námsmaður.

5.5.07

Tilkynning

Ég er að fara til Íslands að ná í ljótu svínaglösin mín til pabba.
Svo að fólk hafi eitthvað að drekka úr þegar að það kemur í heimsókn til okkar Flosa á Kollegíið.

Ég er að fá heilablóðfall úr stressi.

3.5.07

Ok fann útúr þessu. Gallabuxur, hælar og hlíralaus bolur. Hvítur. Fattaði bara þegar að ég var að fara í bolinn að ég á engann hlýralausann brjóstahaldara. Þannig að ég fór bara í appelsínugulann. Ef einhver kommentar á þetta átfit í kvöld þá mun sá hinn sami missa útlim.
Ég get heldur ekki verið full í kvöld. Það þarf að passa að bolurinn haldist uppi og svo er erfitt að vera fullur á 12 cm hælum.

Erfitt líf.

"Ég á engin föt"

Það flæðir bókstaflega útúr fataskápnum. Ég kem ekki öllum fötunum mínum þar og þess vegna eru þau útum allt herbergi. Ég er með skóskáp inní herbergi, sem er stútfullur af skóm. Ég er með sér hillu í skóskápnum inní forstofu, því það kemst ekki allt í skóskápinn minn. 10% af fötunum mínum er líka í fataskápum systra minna.
Ég fór samt í dag og verslaði fullt af fötum. Fyrir háa upphæð. Gaman.
Nú er ég komin í helgarfrí og á leiðinni á djammið. Ég á ekki eina flík til að fara í. Ekki eina!
Hvernig er þetta hægt?

Af hverju gat ég ekki fæðst með typpi? Þá væri lífið miklu auðveldara.

2.5.07

Málhölt

Ég hef búið erlendis síðastliðin 3 ár. Fyrst í Danmörku, svo Bandaríkjunum og svo Danmörku aftur, eftir stutt stopp á Íslandi.
Þegar að ég kom út til Danmerkur fyrst, skildi ég ekki neitt. Ekki bofs. Leyst ekkert á þetta. En ákvað samt að láta mig hafa það að sitja í skólanum og skilja ekki neitt í mánuð. Eftir það var þetta kökusneið. Nú tala ég svona nokkurn veginn reiprennandi dönsku, eða svona. Kartaflan er löngu komin í hálsinn og á sér fastann stað þar. Maður talar dönsku allan daginn í skólanum. Heyrir dönsku í útvarpinu, sjónvarpinu og út í búð. Stundum hugsar maður á dönsku, og hefur það aukist til muna núna síðustu mánuði.
Núna er maður orðinn svo danskur í sér að mér finnst alveg fullkomlega eðlilegt að það taki tvo mánuði að setja upp eina internettengingu, borða gulrótarbollur með lifrakæfu og að það sé allt lokað á sunnudögum. Aðlögunarhæfnin, sjáiði til.
Annað sem ég hef tekið eftir er að ég tala ekki sömu íslensku og fólk sem býr á Íslandi. Þetta er eiginlega ekki íslenska, bara svona kokteill. Þetta er eitthvað sem við íslensku-danirnir eigum sameiginlegt.
Hér á þessu heimili er talað um matkassa og drykkjardunka, en ekki nestisbox og vatnsbrúsa. Við fáum okkur stundum drúur og cola, voða sjaldan vínber og kók. Við erum ekki með handakrika og fætur, heldur armhholur og bein. Við spurjum ekki hvar við megum leggja bílnum okkar, heldur hvar við megum halda honum. Það er ekki talað um að einhver hafi ýkt eitthvað, heldur yfirdrifið. Það er aldrei neitt eftir af kvöldmatnum, en það er oft hellinginur tilbaka. Það koma ekki göt á sokkana okkar heldur holur. Í Horsens eru sjaldan spilaðir tölvuleikir, en ótrúlega oft tölvuspil og það er aldrei ég sem á að gera, heldur er það minn túr stundum.
Það er ekki skorað mark í fótboltaleikjunum heldur mál. Mótherjar er eitthvað sem fótboltaliðið okkar þekkir ekki, en þeir eru kunnugir mótstöndurum. Bjór þekkist ekki í danmörku, en öl er eitthvað sem við könnumst mjög vel við.
Í ameríku tók ég líka sturtu og gerði þvottinn minn.

En svo eftir að hafa verið á Íslandi í 5 daga þá stamar maður og hikstar á dönskunni. Og ég á rosalega erfitt með að skipta yfir í enskuna þessi fáu skipti sem ég þarf að tala hana.
Ótrúlegt alveg.

1.5.07

Best að láta vita að ég sé á lífi.
Ég er á lífi.
Ekkert að frétta.
Allt við það sama.
Gott veður.
Skóli.
Verkefni.
Brainstorming.
Nýtt spil, budget, markaðsáætlanir, herferð.
Coke Zero.
Grey's Anatomy
Nikolaj og Julie
Ísland eftir 15. daga
5 dagar í fjölskylduknúsi, kaffihúsaferðum, dinnerum og djúsi.
Frí á föstudaginn. Veit ekki afhverju. Store Bededag. Veit enginn dani afhverju það er frí, eða hversvegna þessi dagur er.
Don't care, það er frí.
Álaborg á laugardaginn.
Þarf aðeins að skreppa þangað á Beyoncé tónleika.
Verður gaman.
Djamm í Álaborg eftir tónleikana með Írisi. Gaman.
Evalúeríng í næstu viku.
Sjitt.
Mikið að gera.
The Police í Århus 1. September.
Þarf að kaupa miða á það. Vill einhver koma með?
Sækja um íbúð.
Framlengja SU
Vörka tanið.
Það er bara svo leiðinlegt að ég nenni því ekki.
Það er líka töff að vera hvítur.
Panta tíma hjá lækni.
Áður en að ég hósta upp lifrinni og gallblöðrunni.
Og komast að því hvort ég megi fá ofnæmissprautu.
Í rassinn.
Það eru rottur í hverfinu mínu.
Sá eina í gær.
Hélt þetta væri hundur.
Ógeðs.

Vá hvað þetta er leiðinlegt og óáhugavert blogg.
Sorry.
Nenni ekki að segja of margar setningar.
Er pirrípú.
Eða miss Cranky pants.

Sjáumst.

29.4.07

Get ekki beðið...


Það styttist.

Ljóti karlinn Helgi

Það er alveg með ólíkindum hvað fólki virðist finnast eðlilegt að einhverjum útlendingi sé veittur íslenskur ríkisborgararéttur eftir einungis 15 mánaða dvöl á Íslandi. Allavega ef að þessi tiltekni útlendingur er tengdadóttir Jónínu Bjartmarz.
Svo talar fólk ekki um annað hvað Helgi Seljan hafi verið dónalegur og leiðinlegur við Jónínu í Kastljósi á föstudaginn. Jónína svaraði engum spurningum af ráði. Hún tuðaði bara og snéri útúr. Helgi spurði og Jónína svaraði.. ekki.
Fólk sakar Helga um að vera bara að klína svona "rugli" uppá Jónínu vegna komandi kosninga. Af hverju ætti hann að vera að því? Svo að fólk hætti við að kjósa framsókn og kjósi frekar Helga?
Nei, mér finnst kúkalykt af þessu. Fyrst það er góð og gild ástæða fyrir að stelpan fékk þennan ríkisborgararétt bara sísvona, af hverju þá ekki að gefa hana upp?
Fááááránlegt að veita útlendingi sem hefur verið hérna í ár ríkisborgararétt. Fáránlegt.

Aldrei kaus ég Framsókn.

28.4.07

Kastljós

Ég hef oft íhugað að hella mér útí pólitík. Stofna jafnvel minn eigin flokk og hendast á þing. Eins og Ómar Ragnarsson. En þar sem að ég er hræðilega léleg í að bulla og enn lélegri í að ljúga þá gengur það ekki. En ég er svolítill snákur í mér, þannig að það væri líklega hægt að þjálfa mig upp í að svíkja.
Skil ekki þessa Íslandshreyfingu. Yrði eitthvað skrautlegt ef þeir kæmust til valda. Fíla heldur ekki þessa Henry Ford dýrkun í Ómari. Er Henry Ford í flokknum eða?


Vorkenndi Helga Seljan alveg ótrúlega mikið í gær. En hló samt pínu. Ekki af honum samt heldur kjánalátunum í viðmælandanum. Dásamlegt.

Fleira var það ekki.

26.4.07

Sumarið er tíminn!

Æji kannist þið ekki við svona daga, þegar að það er komin 25 stiga hiti klukkan 11.00 og glampandi sól og það síðasta sem maður vill gera er að vera með nefið ofaní skólabókum?
Svo klukkan 12.00 kastar maður bókunum frá sér, gefur skít í lærdóm og leggst útá verönd með iPodinn til að "vörka tanið". En það er of heitt í garðinum svo að eftir klukkutíma er maður klístraður af svita og sólarvörn. Þannig að maður ákveður bara að fara á ströndina og flatmaga þar restina af deginum?
Æji þið vitið hvað ég á við, er það ekki?
Allavega svona var dagurinn hjá mér í dag. Heitt! Heitt! Heitt!

Skaðbrenndist annars í dag. Ekki útaf sólinni heldur af því að ég eldaði í kvöld. Gerði alveg rosa gott lasagne og mun líklega alltaf bera það utan á mér, á hendinni það er að segja.

Ég er núna að borga sektina fyrir að hafa farið á ströndina í dag. Verð örugglega að læra þangað til að ég fer í skólann í fyrramálið. En það er allt í lagi, get sofið allan daginn á morgun á ströndinni...

Vona að þið hafið það gott í stinningskuldanum og súldinni heima.

25.4.07

Búin að kjósa í fyrsta skipti í lífinu..

"Þú verður bara mynda þér sjálfstæða skoðun á þessu og fylgja henni," hefur verið sagt við mig nokkuð oft síðustu daga. Nema 'frænka mín', Kristín Tómasdóttir. Hún sagði bara: Ef þú kýst ekki Vinstri Græn þá hætti ég að vera móðursystir þín í föðurætt.

Ég hef legið yfir heimasíðum flokkana síðustu viku. Bara svona tjékka á hverjir hafa lofað hverju og svikið hvað. Og svo hverju er búið að lofa að svíkja núna. Verð að segja að ég var búin að rokka frá vinstri til hægri og aftur til baka soldið mörgum sinnum áður en að ég komst að niðurstöðu.

Ég fór og kaus í dag. Fannst þetta ótrúlega spennandi. Labbaði út höfðinu hærri, búin að kjósa í fyrsta skipti í lífinu. Og þarna á þessu augnabliki sem ég krotaði bókstafinn á kjörseðilinn fannst mér ég vera orðin fullorðin. Loksins.

Kannski að bæta því við svona í lokin hvað ég kaus. Ég kaus rétt - en Kristín Tómasdóttir er ekki móðursystir mín í föðurætt lengur. Á eftir að sakna hennar :)

24.4.07

Tvífarar


23.4.07

Heilsa 2007 (Aftur)

Já, í dag átti sko aldeilis að taka upp gamla og góða siði. Heilsa 2007 byrjaði aftur, eftir smá pásu. Smá pásu kalla ég 3 mánuði.
Allavega, allt fór á fullt í morgun, byrjað á að fá sér hollan morgunverð og taka vítamín. Í hádeginu var það svo salat, beygla og coke zero. Í kaffinu var það svo hrökkbrauð með einhverjum heilsuosti sem bragðaðist eins og plast. Í kvöldmat var svo einhver agalega heilsusamlegur kjúklingaréttur. Drakk alveg heil ógrynni af vatni og eyddi þar af leiðindum lunganum úr deginum á klósettinu - eða að hlaupa á klósettið alveg í spreng.
Klukkan 20.00 var ég orðin svo geðvond að það var ekki nokkrum manni bjóðandi að vera nálægt mér. Svo ég fór í bíó.
Rankaði við mér þegar að ég var nánast búin með stóra kók, hálfan stórann popp poka og búin að ræna súkkulaði af sessunautnum.
Þegar heim var komið fór ég að læra smá. Þannig að það var mjög nauðsynlegt að fá sér smá PepsiMax og smá súkkulaði.

Eruði viss um að súkkulaði sé ekki lífsnauðsynlegt? Ég held að það sé eitthvað í súkkulaði sem við getum ekki lifað án. Nei, bara pæling.

Á morgun er það svo hreyfingin. Miða við daginn í dag verður hreyfing morgundagsins að labba útí bíl, teygja mig eftir meira nammi eða lyfta 2 lítra kókflösku.

Ammælis!

Vilborg Unnur litla systir mín á afmæli í dag. Orðin 14 ára.
Vilborg er ein af þeim sem fæddist gargandi og gargaði sig í gegnum fyrsta árið. En var reyndar alveg róleg og góð á köflum.
Þegar að hún var orðin ársgömul þá breyttist hún í lítinn terrorista. Orkan sem fór í að garga fór í prakkaraskap og var barnið ekki hrætt við neitt. Annað en stóra systir.
Núna er hún þessi rólega í systkinahópnum. Þessi góða, þessi sem gerir aldrei neitt af sér og þessi sem er duglegust að hjálpa til á heimilinu.
Hún er æði. Bara flottust!

Til hamingju litla mín!


Við í spassakasti í Tivoli ferð síðasta sumar.


Vilborg í gær.

22.4.07

Flosi

Þetta er Flosi.
Hann er skjaldbaka.







Eigandinn er farinn í praktík til Íslands svo ég tók litla greyið í fóstur á meðan. Held reyndar að það fóstur muni teygjast eitthvað svolítið mikið lengi.
Skjaldbakan hét ekki neitt, svo það var rifist um það hérna í heilann dag hvort að hún ætti að heita Mosi, Snati eða Flosi. Ég vann. Næst á eftir kom Eyjólfur með nafnið Snati og mamma skít tapaði með Mosa nafnið.
Hann heitir sem sagt Flosi í höfuðið á Írisi. Hljómar kannski svolítið bjánalega í eyrum ykkar, en hún Íris getur ekki munað nöfn og kallar Fróða (heimilishundinn) Flosa og Ingibjörgu, Margréti.
Þess má geta að Fróði er skíthræddur við Flosa litla. Stóð í gærdag fyrir utan herbergið mitt og gelti. Í dag þorði hann reyndar að kíkja aðeins innfyrir dyrnar, en honum lýst ekkert á þetta kvikindi sem er búið koma sér vel fyrir inní herbergi.

Þetta eru lélegar myndir. En nennti ekki að taka hann uppúr búrinu og eitthvað vesen.

19.4.07

Áiii

Við vorum eitthvað að ræða stjörnuspá áðan. Svo kem ég heim og ætla aðeins að lesa moggann. Nei þarf ekki helvísk stjörnuspáin mín að poppa upp. Ef þetta kom ekki eins og blaut tuska í andlitið á mér þá veit ég ekki hvað.


Fiskar:
Ef þú getur ekki byrjað á því í dag og heldur ekki í kvöld, hvenær þá? Eftir 17 ár viltu ekki vera að pæla í hvað þú gerðir í staðinn. Byrjaðu núna!


Oj, ég ætla ekki að vera einhver sveitt-þreytt-feit, einstæð og reykjandi Fella-mamma eftir 17 ár. Á örorkubótum, barnabótum og eiga 3 börn með 5 mönnum.
Hugsandi um að ég hefði kannski getað drullast til að opna bók í staðinn fyrir að horfa á 18. þáttinn af Desperate Housewifes, niðurhala tónlist til að setja á iPodinn og drekka sykurkók.
Oj oj oj. Sé þetta fyrir mér. Ætla að læra og er svo farin í megrun á mánudaginn..

(Samt geðveikt góður Despó þáttur.)

Gleðilegt sumar!

Já, þá á sumarið víst að vera gengið í garð á klakanum. Líklegt. Fólk hefur eflaust bara tekið þetta á hefðinni, mætt á hátíðarhöld í sínu bæjarfélagi í gamla góða kraft gallanum og lúðrasveitin ekki getað haldið á trompetunum og túpunum, því vindurinn fór upp í 30 metra á sekúndu og - Got to love it!

Annars hef ég aldrei skilið þetta með að hafa sumardaginn fyrsta í apríl. Hvaða rugl er það? Það er jafn skrýtið og ef við myndum allt í einu halda jólin í júlí.
Þetta ruglaði mig nú aldeilis mikið þegar að ég var barn. Man eftir að við fengum alltaf sumargjafir frá ömmu og afa á S1. Eitt árið fékk ég einhvern gasalega flott sumarföt. Stuttermabol og gallapils að mig minnir. Amma sagði að ég yrði nú aldeilis fín í þessu í sumar. En ég vildi ekki bíða, það var jú sumardagurinn fyrsti svo ég dreif mig í gallann, alveg rígmontin í fínu fötunum. Svo átti að fara út að leika. Mamma reyndi hvað hún gat að fá mig til að klæða mig í önnur föt og að minnsta kosti fara í úlpu og einhver útiföt. Ég þvertók fyrir það og hélt því statt og stöðugt fram að það væri komið sumar. Mamma gafst upp á endanum og leyfði mér að fara út að leika í sumarfötunum. Ég kom inn með bláar varir og nokkur kalsár á tánum eftir 1-2 mín.

Þegar ég var 9 ára upplifði ég sumardaginn fyrsta á Raufarhöfn, þar sem ég bjó í einn vetur. Þá var skrúðgöngunni aflýst vegna þess að það var ófært.

Vona samt að þið hafið átt góðann dag. Ég sjálf hafði það fínt. Fór í skólann og skoraði mörg, mörg stig útá kökuna sem ég gerði fyrir bekkinn. Þó að þetta hafi ekki verið lagkaka...

18.4.07

Svo myndarleg

Í dag æfði ég mig að vera húsmóðir.
Foreldrafólkið er að borða með Stuðmönnum og Sálinni fyrir morðfjár í Kaupmannahöfn. Gott hjá þeim.
Ég var sett í það hlutverk að passa hús, börn og hund. Gefa börnum Hakk og Spaghettí í matinn, láta Fróða pissa og koma gelgjunum í rúmið á réttum tíma. Klukkan er tólf núna og gelgjurnar ekki sofnaðar.
Ég eldaði Hakk og Spaghettí fyrir greyin mín.
Útbjó svo kjúklingarétt og bauð Einari og Írisi í mat. Já, þegar maður tekur sig til þá er nú ekki mikið mál að elda tvær máltíðir á einum klukkutíma.
Núna er ég bara að bíða eftir að skúffukakan sem ég var að taka útúr ofninum kólni, svo ég geti sett á hana krem. Var svo að spá í að henda í eina sjónvarpsköku, svona fyrst maður er byrjaður.

Þið kíkjið svo bara í köku og mjólk hingað í Skovglimt á morgun - Allir velkomnir.
Þættinum hefur borist bréf.

Fékk meil frá kontakt kennaranum mínum áðan. Þetta meil var sent á allan bekkinn.

Så kan i godt spænde hjelmen.

Der er kontaktlærertime på torsdag d. 19 april. Kl 13.00 i lokale 602.
- det forlyder at Kristin er bagermester, - det bliver godt, vi har f.eks aldrig fået lagkage – mon det bliver denne gang ?

Hilsen, Lars Henrik

Við höfum sem sagt haft það fyrir reglu að koma með köku í þessa tíma. Því þetta er svona hyggetime. Núna er komið að mér, greyið fólkið veit ekki hvað það er að biðja um.


Ekki séns að ég komi með lagköku, það er ógeðslegt - Svo ég tók bara útlendinginn á þetta og sagðist ekki kunna að baka þannig.
Spurði hvort ég ætti ekki bara að koma með sjónvarpsköku, en nei, þeim fannst það ekki nógu spennandi. Spurðu hvort ég kynni ekki að baka bananaköku. Danir!

Þau geta bara étið það sem úti frýs þá!

17.4.07

Bara smá

Mamma hefur miklar áhyggjur af því að ég sé þunglynd. Hún spurði mig um daginn hvort að ég væri í ástarsorg, skuldaði pengina og ég veit ekki hvað og hvað.
Ég er reyndar búin að vera eins og hálfgerð vofa uppá síðkastið. En er ekki í ástarsorg, skulda ekki og er ekki í dópi eða rugli , þó að ég dansi ekki og syngji einhverstaðar útá túni allan liðlangan daginn og segi hvað allt sé dásamlegt og yndislegt eins og Pollýanna á spítti.
Er bara með skólaleiða á mjög háu stigi, eiginlega á svo háu stigi að mig langar bara að hætta. Hef engann áhuga á því sem ég er að gera og er bara eitthvað löt.
Ég er alveg búin á því í hausnum þegar að ég kem heim, þrátt fyrir að vera ekki mikið dugleg að læra. Held reyndar að það sé bara danskan sem er að þreyta mig svona. Eftir skóladaginn þá kem ég heim, leggst uppí rúm, dreg sængina upp fyrir höfuð og ligg þar. Í 3 tíma.
Núna er reyndar ekki mikið eftir af kennsludögum. Mánuður eftir af kennslunni. Síðan eru það bara verkefnavinna, framleggingar og skemmtilegheit. Próf í lok júní og svo kem ég á Íslandið, atvinnulaus því það vill mig enginn.

16.4.07

Brekinn minn átti afmæli í gær. Og óska ég honum innilega til hamingju með að vera búinn að vera til í heilt ár.
Hendi með tveim góðum af okkur. Ég eins og einstæð móðir í Breiðholtinu í moggabol. Vantar bara sígó og féló.



14.4.07

Mikið er erfitt að koma sér í lærdómsgírinn. Ég er búin að vera í allt kvöld að reyna að byrja á verkefninu sem ég ætlaði að klára áður en ég færi að sofa.
Ég er með endalaust vesen.
  • Fyrst þurfti ég að fara í sturtu (Maður getur ekki lært í þynnkulyktinni af sjálfum sér)
  • Svo þurfti ég að fara í náttbuxur og sweatshirt (Lærir ekki í gallabuxum og armani t-shirt)
  • Aðeins að lesa netið (ALLT netið og horfa á fréttir, veður og Kastljós fyrir síðustu 2 vikur)
  • Fá mér kvöldmat, því ég uppgötvaði að það var sólarhringur síðan ég borðaði eitthvað síðast.
  • Aðeins að hvíla mig í sófanum og hlusta á tónlist. (Því ég var ekki búin að hvíla mig neitt í dag. *Hóst*)
  • Skutla eldri borgurum heimilisins á Félagsvistarkvöld (Því ég gæti þurft á bílnum að halda meðan ég er heima að læra)
  • Skutla tvillunum á Blockbuster (Þá er allavega friður til að læra ef þær eru að horfa á video)
  • Aðeins að lesa netið, aftur (Spaugstofan var komin inn, nauðsynlegt að sjá það áður en maður lærir)
  • Fékk óstjórnlega löngun í sódavatn og fór útí sjoppu eftir svoleiðis (Vissi að ég þyrfti að nota bílinn!)
  • Opnaði word skjalið.
  • Skrifaði fyrirsögnina
Þá fattaði ég að mig vantaði tónlist til að læra við. Fór í gegnum hvert einasta lag sem ég er með í tölvunni (ekki nema svona 300 gb) og leist ekki á neitt. það voru 3 lög sem ég vildi hlusta á og ég átti þau ekki. Sníkti lögin frá Bjarna Baun og þurfti líka endilega að fá einn geisladisk víst ég var byrjuð að sníkja þetta. Loksins var tónlistin komin inní iTunes-ið og ég reddý til að massa verkefnið.
Nei, þá datt mér í hug að henda í eina þvottavél.
Hverjar eru líkurnar?

Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta..

...Orgaði ég yfir smekkfulla kirkju fyrir 5 árum. Rétt á eftir var ég næstum köfnuð í messuvíni og oblátu. Svo var haldið partý. Margir pakkar og mikill peningur - á hverja krónu ennþá.

Gottvont

Náladofi er einn af þeim hlutum sem eru góð-vondir. Fékk einn svakalegan áðan. Frá tásunum upp fótleggina, rasskinn og upp undir handakrika. Á sama tíma fékk ég svo sinadrátt í kálfann á hinum fætinum.
Áhugavert, ekki satt?

Aldrei þessu vant er ekkert í fréttum og ekkert slúður.

13.4.07

Þunglyndi

Í dag mun ég kafna.
Ég er ekki alveg búin að gera það upp við mig hvort að ég ætli að kafna úr hita eða hósta.
Í nótt vaknaði ég þrisvar sinnum við það að ég náði ekki andanum útaf hóstakasti. Það er ekki töff. Í dag er svo heitt að ég gæti mögulega kafnað úr hita við það að liggja úti í garði.

Styttist óðum í prófin. Ég þarf að fara að gera eitthvað lestrarplan, svona svo ég geti sleppt því að fara eftir því eins og alltaf.
Reyndar veit ekki neitt hvaða próf ég fer í, en giska á að það verði annað hvort Visuelt Varesalg eða Erhvers Ökonomi. Ef ég verð heppin fer ég bara í ensku eða dönsku.
Erum allavega búin að fá að vita hvaða fyrirtæki við eigum að fjalla um og það er ToysRus, sem er skömminni skárra en bestseller helvítið sem við þurftum að kynna síðast.

Kennararnir eru svakalega næs við okkur núna. Um helgina þarf ég að gera skilaverkefni í Visuelt Varesalg, þar sem ég þarf að teikna upp útstillingu í glugga og nota einhverja teoríu í það. Fyrirlestur um það hvernig er að vera útlendingur í Danmörku, og svo skilaverkefni í dönsku.

Hendist í þetta í kvöld, eða morgun. Eða bara hinn daginn.

11.4.07

Helvítis Kellingar

Af einhverjum ástæðum býst ég alveg eins við því að verða kölluð á foreldrafund í framtíðinni útaf svona.
Þeir sem að hafa verið með mér í bíl skilja þetta. Road rage dauðans.

Reyndar gætu svo foreldrar hinna barnana kallað mig helvítis kellingu, því að ég kann ýmislegt betur en að keyra. Er líka örugglega eina manneskjan sem hefur ratað á forsíðu Séð og Heyrt fyrir að vera léleg í að keyra. Og verið aðal umræðuefnið í vinnunni hjá pabba, vegna þessa. En sjaldan fellur eplið langt frá eikinni...

P.S. Ég er ekki ólétt.