26.6.07

Ekki dauð og ekki hætt..

Hef íhugað það mikið síðustu daga að hætta að blogga. Hef ekki alveg komist að niðurstöðu, en er greinilega ekki hætt alveg fyrst ég er að þrykkja inn einni færslu núna.

Ástæðan fyrir þessari færslu er aðeins ein, ég þarf að segja alheiminum, eða allavega Ömmu og hinum apakettinum sem les þetta blogg að ég var að koma heim eftir 80.min hjólatúr. Hjólaði frá Seltjarnarnesi og uppí Kórsali. Villtist smá á leiðinni og ruglaðst á Árbænum og Breiðholti. Ég er svo útlensk.
Er að íhuga að hjóla í vinnuna í fyrramálið, en ætla samt að sjá til hvernig ég verð í afturendanum þegar ég vakna.

Hamingjuóskir eru vel þegnar, enda finnst mér þetta alveg þónokkuð afrek.

Ég er annars bara að vinna á fullu í mötuneytinu í Samskip. Með Óskar frænda sem yfirmann. Hingað til hef ég sloppið alveg ótrúlega vel við rifjaboranir og aðrar pyntingar, en það er eins eðlilegt fyrir Óskar að pynta mig eins og að segja "hæ" þegar við hittumst. Þetta er alveg ótrúlega fínt, en held að ég verði voða fegin þegar að ég hætti, eftir sumarið. Ekki framtíð í mötuneytinu :)

Jæja, það er löngu komið fram yfir minn háttatíma, klukkan að verða 01.30 og tími fyrir vinnandi og hjólandi konu að fara að leggja sig..

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með þetta mikla afrek frænka..... þú verður svo að fara að koma í spinning til mín, lofa brjáluðu stuði :)

Nafnlaus sagði...

Kv, Elín frænka

Nafnlaus sagði...

Dúleg!

Nafnlaus sagði...

ekki hætta að blogga...þú ert svo skemmtileg...get alveg pissað í mig af hlátri við að lesa bloggið þitt....koma svo..

Nafnlaus sagði...

Þú átt sko mikið hrós skilið nafna mín. Þú getur fengið hjólaútbúnaðarmyndina til að setja á bloggið.....ef þú vilt.
Kveðjur. Amma Stína

Kristín Alma sagði...

Elín: Já, ég er alltaf á leiðinni ;)

Ókunnug: Ef það er ekki ástæða til að hætta þegar að maður lætur fullorðið fólk útí bæ pissa í sig, þá veit ég ekki hvað.
En takk fyrir.

Amma: Nei, þessi mynd mun aldrei birtast á Internetinu, allavega ekki meðan ég er á lífi.

Unknown sagði...

Nei, ekki hætta að blogga. Bloggið þitt er eitt það besta í bænum eftir að pabbi þinn hætti. ;) Við þessir ókunnugu aðdáendur kunnum örugglega ekki við að kommenta þó við séum að lesa. Það eru örugglega fleiri en ég.
Kveðja; Kristín