31.10.05

Próf!

Í þessu prófi er eingöngu ein spurning, en hún er mjög mikilvæg. Ef þú svarar í fyllstu hreinskilni muntu komast að því hvernig siðferðiskennd þín er byggð upp. Í prófinu er velt upp algjörlega uppskáldaðri stöðu og þú þarft að taka afstöðu.





Mundu að svarið verður að vera hreinskilið.Vinsamlegast skrollaðu rólega niður og hugsaðu um hverja línu vel og vandlega.




Þú ert í Texas. Í Houston nánar tiltekið. Það ríkir í kringum þig mikið öngþveiti, því á hefur skollið mikill fellibylur og orsakað hræðileg flóð.


Þú ert ljósmyndari, þú vinnur hjá stóru dagblaði og ert í miðju þessarar hryllilegu hringiðu.


Staðan er svo að segja vonlaus.Þú ert að reyna að taka bestu myndir ferils þíns.Það er brak úr húsum og fólk allt í kringum þig, fljótandi í vatninu. Sumir dragast undir og koma ekki aftur upp. Náttúran sleppir lausum eyðileggjandi krafti sínum.


Allt í einu sérðu mann berjast um í vatninu nálægt þér. Hann berst fyrir lífi sínu og reynir á örvæntingarfullan hátt að halda höfðinu upp úr vatninu.






Þegar hann flýtur nær þér finnst þér að þú eigir að kannast við hann.Það rennur allt í einu upp fyrir þér hver hann er.Þetta er George W. Bush!Á sama tíma sérðu að ólgandi vatnið er um það bil að færa hann í kaf... að eilífu.








Þú hefur tvo valmöguleika:Þú getur bjargað lífi G.W.Bush,EðaÞú getur tekið myndir sem myndu án efa vinna þér inn Pulitzer verðlaun. Myndir, sem sýna dauða valdamesta manns í heiminum í dag.


Svo hér kemur spurningin, og mundu að þú verður að svara henni í fyllstu hreinskilni:





















Hvort myndirðu velja hágæða litafilmu eða klassískan einfaldleikann sem svarthvítar filmur bjóða upp á?





Bwhaha! já það er spuring :Þ

29.10.05

Jæja, mér hefur tekist að gera eitt sem að ég hef ekki gert áður og hélt að ég myndi aldrei gera áður. Ég grenjaði hástöfum yfir nýja myndbandinu hennar Linsey Lohan, ég ætla ekki einu sinni að segjast skammast mín fyrir það eða eitthvað því um líkt, það tók virkilega á að horfa á þetta, sérstaklega þar sem að ég horfði á "Making the Video" áður en frumsýningin á myndbandinu sjálfu var.
Þetta myndband er sem sagt um það sem að greyið stelpan er búin að ganga í gegnum á árinu, Paparazzi og fjölmiðlafárið, skilnaður foreldra hennar og það að pabbi hennar gekk af göflunum. Hún sagði það í þessum þætti þegar að það var verið að fylgjast með þegar hún var að gera myndbandið að hún hefði skrifað þetta lag (Confessions of a broken heart) til að tjá tilfinningar sínar til pabba síns, sem að hún talar ekki við, og hana langaði að sýna fólki hvernig þetta hefði virkilega verið. Mæli með að þið farið inná http://www.mtv.com/overdrive og tékkið á þessu myndbandi, mér finnst þetta allavega mjög svo sorglegt, og þetta fékk mig virkilega til að sjá það að þó að maður eigi nóg af peningum að þá er ekki þar með sagt að maður sé hamingjusamur og að maður eigi góða að. Ég vil allavega frekar vera peningalítil og ekki með snargeðveikan pabba og paparazzi ljósmyndara sem að eru næstum búnir að drepa mann...
Annars er allt gott að frétta af mér, verð ein heima með Alexöndru og Evu Maríu næstu tvo daga, þar sem að restin af genginu er að fara til Pensilvaniu að gera eitthvað, en þetta er ekki neitt sem að ég hef gaman að þannig að það er alveg eins gott fyrir mig að vera heima með litlurnar, það er líka bara gott fyrir mig að fá smá brake frá öllum hinum, híhí. En samt alveg hellings vinna að vera með eina 15 mánaða og eina 5 mánaða, en þær eru reyndar mestu ljúflingar svo að þetta ætti alveg að ganga vel fyrir sig.
Jæja, best að fara að setja á sig andlitið og slétta hárlubban, er að fara út á lífið :Þ

25.10.05

Endur fyrir löngu, í landi langt langt í burtu, rakst falleg, sjálfstæð og sjálfsörugg prinsessa á frosk þar sem hún sat og velti vöngum yfir vistfræðilegum álitamálum við bakka ómengaðrar tjarnar á fagurgrænu engi nálægt kastalanum sínum.

Froskurinn stökk upp í kjöltu prinsessunnar og sagði: Fagra frú, ég var eitt sinn gjörvilegur prins en grimm norn lagði á mig álög. Ef þú smellir á mig einum kossi mun ég aftur verða að þeim snotra prinsi sem ég raunverulega er. Þá getum við, mín kæra, gifst og stofnað heimili í kastalanum þínum.

Þú getur framreitt málsverði fyrir mig, þvegið klæði mín, alið börnin mín og fundið til þakklætis og hamingju um alla eilífð.


Sama kvöld sat prinsessan yfir málsverði sínum - léttsteiktum froskalöppum - og hló lágt með sjálfri sér: Ég held nú fokking síður!

Hmm, froskahlið mín grætur yfir þessari sögu, KristínaÖlmuhliðin skellihlær !

23.10.05

Ég hef verið í miklum nafnahugleiðingum uppá síðkastið, hvernig er hægt að ætlast til þess að maður geti valið nafn á barnið sitt þegar að það eru svona milljón nöfn til. Svo langar manni kannski að skíra í höfuðið á einhverjum, en þá koma of margir til greina. En ég er samt alltaf með eitt nafn, sem er búið að vera svona "my baby name" síðan ég var 6 ára eða þar um bil. En samt er þetta erfitt þar sem að ég myndi nú líklega leggja í að eignast eins og tvö stykki börn, og þá er eitt nafn ekki nóg. Æj, það eru nú ennþá einhver tíu ár í það að ég fari að huga að þessum málum svo að ég ætla ekkert að vera að stressa mig á þessu núna.
Hins vegar, þá var ég að pæla, ef að ég eignast mann sem að er erlendur og kannski með eitthvað svona hræðilegt eftirnafn eins og Sørensen eða Knudsen, þá myndi ég ekki vilja heita Kristín Alma Sigmarsdóttir Knudsen og hvað þá barnið mitt þá að heita blabla Knudsen. Þannig að ég var að pæla, hvað gerir maður þá? Varla væri það eitthvað skárra að láta mann og barn taka upp mitt eftirnafn, efast um að það væri skárra kallinn og barnið yrðu þá bæði/báðir að vera Sigmarsdóttir, hugsið ykkur hvað það væri flott að koma í heimsókn til mín og stæði á hurðinni: "Familien Sigmarsdóttir"
Já, þetta eru djúpar pælingar hjá mér í dag, held að ég sé búin að vera of mikið úti í sólinni.

22.10.05

Vá hvað ég er þreytt, búin að vera á vaktinni í 11 og hálfan tíma og er gjörsamlega dauðuppgefin. Ætlaði þvílíkt að gera eitthvað skemmtilegt í kvöld, en ég er svo þreytt að ég get ekki einu sinni hugsað um það að fara eitthvað út í þessa rigningu. Þó að ég ætti eiginlega að gera það, en sé það ekki gerast. Ætli maður rífi sig ekki bara upp og skelli sér í sturtu og svo í bælið.
Það er samt helst í fréttum að nokkrir bandarískir hermenn hefðu fallið í Írak í dag...SÓ!!!
Hvað eru bandaríkjamenn búnir að drepa marga?? Æji svo heimskulegt, Bandaríkjamenn þurfa alltaf að vera yfir alla hafnir, aldrei kemur það í fréttum hérna hvað margir Írakar hafa fallið, sem er by the way mikli fleiri. Æji maður getur nú stundum orðið pirraður á þessum Ameríkönum stundum...
Annars þá er verið að velta því fyrir sér hvort að menn ættu að skella sér til Florida yfir Thanksgiving, það væri fínt, veit ekki hvort mig langar meira Flórída í viku eða Las Vegas eina helgi, ætli Flórída hafi ekki vinninginn, ná sér í smá brunku áður en að maður kemur í kuldan í DK. En þetta eru ennþá bara pælingar, ekkert ákveðið enn, svo að við sjáum hvað setur.
Jæja, það er ekkert vit í því að vera að skrifa eitthvað þegar að maður er svona þreyttur, svo að ég ætla í heita sturtu og skella mér svo uppí rúm að lesa..

góðar stundir

20.10.05

Ég var með ljótuna á háu stigi í gær og það ekkert smá. Ákvað svo að gera eitthvað í þessu og tók andlitið í hreinsimeðferð og málaði mig svo í tilefni dagsins. Fór svo í bæinn og verslaði ýmislegt lífsnauðsynlegt, eins og föt, Ben and Jerry's og sléttujárn. Náði líka að klára að kaupa jólagjafir handa öllum systkinum mínum, hundinum og henni April, ekki nóg með það heldur gat ég líka ákveðið hvað ömmu og afa settin fá og danmerkurforeldrar mínir. En á reyndar eftir að finna eitthvað fallegt fyrir hann föður minn, og það er sko ekkert lítill hausverkur skal ég segja ykkur, ef að þið eruð með einhverjar uppástungur þá endilega látið mig vita.
Annars þegar að ég kom heim úr bænum ákvað ég að prufukeyra sléttujárnið og sléttaði þar með á mér hárið í fyrsta skipti síðan fyrir hádegi þann 22. júní. Þannig að ég er búin að vera með endalaust villt hár í allt sumar, en það er svosem allt í góðu bara, er allavega með slétt og flott hár núna. Í næstu viku ætla ég svo að reyna að skella mér í klippingu, eða reyndar bara svona "trim" legg ekki í þessar hárgreiðslukellur hérna í USA, allavega ekki eftir að Karen Helga kom heim úr klippingunni hérna um daginn, með hárlit á ólíklegustu stöðum. Svo að ég fer bara til hennar Líneyjar minnar, þegar að ég kem til DK, treysti henni algerlega fyrir hausnum á mér.
Það er svo mikið af sjónvarpsþáttum í gangi hérna í Ameríkunni núna að ég er gjörsamlega búin að missa allt vit, eða svona allt að því. Ég er löngu búin að gleyma hvaða þættir eru á hvaða dögum, hvaða stöð og klukkan hvað og ég sem hélt að ég væri með þetta allt undir kontról.
En það eru annars 6 vikur og 5 dagar þangað til að ég kem til Danmerkur og eitthvað aðeins lengra í að ég komi í stressið á Íslandi. Ég er hætt að sofa ég hlakka svo til að koma heim :)

19.10.05

Til Hamingju með 37. Ára afmælið Elsku (Fóstur)Pabbi Okkar!!!

Hafðu það sem best,

Kveðja, Kristín Alma, Vilborg Unnur, Sigríður Soffía, Ingibjörg Elín, Eyjólfur og Fróði!!!
Var að tala við (móður)bróðir minn áðan á msn og hann tilkynnti mér það að mín kynslóð ætti að vera algerlega bönnuð á Internetinu því að það eina sem að við gætum gert er að finna klám og 2 stjörnu hótel á google.com, hann er svo smekklegur og kemur alltaf svo vel frá sér orðunum þessi elska.
En hann var sem sagt að hjálpa ömmu að finna hótel á Lanzrote eða hvað það nú heitir, og gaf ömmu bara upp eitthvað nafn á hóteli og sagðist ætla að hjálpa henni að finna vefsíðuna seinna. En amma var nú bara ekki róleg og hringdi auðvitað í elsta og besta barnabarnið sitt á SKYPE og bað hana um hjálp við að finna vefsíðuna fyrir þetta hótel. Ég spyr auðvitað um nafnið á hótelinu og slæ því bara inní google.com, en það var greinilega eitthvað vitlaust og eina sem að ég fann var 2 stjörnu hótel, sendi ömmu linkinn á MSN og hún kíkir á þetta og segir svo: Spurðu hann frænda þinn hvort að hann ætli virkilega að senda okkur gömlu hjónin á 2 stjörnu hótel! Ok, ég geri það, þá skellir hann (móður)bróðir minn þessu framan í mig að mín kynslóð eigi ekkert að vera netinu, því að það eina sem að við getum er að finna Klám og 2 stjörnu hótel. Svo sendir hann mér Linkinn á hótelið sem að amma og afi eiga að vera á og það var þá 4 stjörnu plús hótel sem að þau verða á núna í byrjun nóvember. Gott að þetta leystist og eftir að þetta var komið í ljós þá töluðum við (móður)bróðir minn og amma saman í dágóðan tíma (hann í frankfúrt, amma á íslandi og ég í ameríku) saman á skype, ég kenndi ömmu að gera copy/paste á msn og svo spjallaði ég við alla fjölskylduna mína á skype + (móður)bróðir minn þar sem að mútta og co. voru komin til frankfúrt til hans. Ohh það var svo gott að tala við þau, alveg ótrúlega nice, og ég get ekki beðið eftir að fara heim og sjá þau og knúsa!
Eyjólfur minn vildi nú mest lítið tala vð stóru systur sína, hann var reyndar hálf ringlaður greyið, búin að vera í bíl í 12 tíma (keyrðu frá DK til Germany) og kemur svo heim til Gumma frænda og stínan hans bara í tölvunni. Minn maður var nú ekki alveg sáttur við þetta og sofnaði í fanginu á mömmu meðan hún var að tala við mig, þannig að ég er annað hvort með svona sefandi röd eða bara svona leiðinleg.
Jæja, eftir þetta spjallaði ég við hann föður minn á MSN sem að sagði mér að hann hafi verið að taka þetta líka bráðskemmtilega viðtal við uppáhaldsmanneskjuna okkar, hana Silvíu Nótt. En ég og Pabbi vorum líklega eina fólkið á íslandi sem að fíluðum hana frá byrjun, og það voru sko ekki jafn margir sem að gerðu það, því miður. En ég mun þokkalega horfa á þetta á morgun, mæli með að þið gerið slíkt hið sama.
Jæja, svo segir sá gamli mér að senda nú línu á hana ömmu mína (föðurömmu) og ég segi já ekkert mál, svo kemur bara e-mail adressa uppá skjáinn. Þannig að ég ætti ekki að senda henni línu með svona póstapósti heldur e-mail. Oh, well ég gerði það og þá er bara að bíða og sjá hvort að ég fái svar..hoho
Eruð þið búin að sjá eitthvað minstur í þessari færslu? Það er nefninlega tæknin sem að er að tröllríða öllu, eins og forsetinn sagði í einhverri ræðu um daginn, það verður alltaf erfiðara og erfiðara að fylgjast með fréttum, það eru fréttir á netinu, í sjónvarpinu, útvarpinu, símanum þínum og bara allstaðar. Svo getur maður sent tölvupóst, talað á skype milli landa án þess að borga fyrir það og spjallað í rauntíma við einhvern sem er í Kína og maður sjálfur í USA á MSN. Finnst þetta svo magnað fyrirbæri, ég held að ég myndi ekki mikið lifa af dvölina í ameríku ef að ég hefði ekk skype, MSN og webcam. Tala nú ekki um það að þegar að ömmur mans og afar eru farin að vera svona nútímaleg, meina ég á reyndar óvenju tæknileg ömmu og afa sett sem tala öll 2-3 tungumál, skrifa sms og tala við mann á MSN og skype, en samt, alveg merkilegt fyrirbæri (tæknin sko, ekki amma og afi)
Þetta er ekkert smá ómerkileg fræsla, en ég skal kannski blogga fljótlega um eitthvað annað en ömmu, afa og tölvuna.

Svona í lokin fáið þið einn alltof hot gaur, enjoy...





Shine on Ryan, Shine on!!

15.10.05

Játs, veðrið leikur við okkur hérna á Washington svæðinu í dag, 25 stiga hiti og glampandi sól, þó að ég nenni ekki út, alltof kalt fyrir mig, hitabeltisrottuna.
Annars er ekki mikið búið að ske síðan síðast, fór reyndar í Target og fann diskana ekki þar heldur svo að ég er orðin alveg ráðþrota. En ég keypti reyndar Tvær jólagjafir, belti og svo gallabuxur. Já ég keypti mér gallabuxur í Target á 25 dollara og er stolt af því. Fínustu buxur alveg hreint.
Það er reyndar alveg búið að vera mikið að gera hjá mér síðustu daga, Atli, Valdís og Hildur Helma komu á sunnudaginn þannig að það er búið að dröslast með þau í einhverjar búðir, moll og núna í augnablikinu eru þau á einhverjum "Farm" að elta geitur. Þessar geitur virkuðu ekkert sérstaklega hrífandi á mig þannig að ég var dauðfegin þegar að ég fékk að velja á milli þess að fara að skoða geiturnar eða vera heima með litlu músina hana Alexöndru, en hún gerir nú ekki mikið, enda bara 4. mánaða. Svo nú er hún sofandi og ég í einhverju letikasti að éta ís uppúr dollunni...lekkert!
Í gær var ég heima með allt stóðið meðan að foreldrarnir fóru út, var með 6 börn í 6 klst og get alveg sagt ykkur að þetta var engin afslöppun. Börnin eru á aldrinum 4 mánaða-3 og hálfs árs. Og svo náttúrulega April mín, en það þarf nú ekkert að passa hana, hún er svo stór. (9 ára)
En mér tókst nú að koma öllum nema April í rúmið fyrir klukkan hálf níu. Svo að þetta gekk alveg hreint stórvel, enda er ég kannski ekkert óvön að vera með svona mörg börn í einu.
Er að hugsa um að fara að leggja mig bara með snúllunni, voðalega sybbin eitthvað...

Hvernig ætli það sé að vera svona sætur?!

Sakna hennar Sölku minnar endalaust mikið!

11.10.05

Because of you!

Þetta lag hljómar í eyrum heimilisfólksins hérna þesa dagana, þar sem að barnapían er orðin klikkuð og komin með æði fyrir Kelly Clarkson. Gaman að segja frá því að þessi umtalaða barnapía gerði sér ferð í Wal-Mart til að kaupa nýja Franz Ferdinand diskinn, en kom heim með Nýja Kelly Clarkson diskinn, Coldplay X&Y diskinn (sem hún átti að vera búin að kaupa fyrir fjórum mánuðum) og svo Forest Gump á DVD. Þetta kostaði allt reyndar ekki nema 2264 kr eða um $37 svo að það er svosem ekki dýrt - En það er sama, kom ekki heim með Franz Ferdinand, sem er þvílíkur skandall, en hann var ekki til í Wal-Mart. Þannig að á morgun verður það eitt stykki kaupóð barnapía sem brunar í Target og kemur heim með James Blunt og Franz Ferdinand, þó að það muni kosta hana lífið...

ókey kannski ekki alveg en þið náið pointinu!

9.10.05

þá er ég búin að horfa á báða þættina af "leitinni" og ég er ennþá með kjánahroll. Almáttugur hvað þetta er halló, en eflaust þá venst þetta vel. Maður ber þessa þætti jú ósjálfrátt saman við Amerísku þættina og er þar af leiðandi mjög fljótur að dæma að þetta sé bara ömurlegt og allt það.
Kynnirinn þarf að gera eitthvað í sínum málum, ef að hann ætlar ekki allt lifandi að drepa, voðalega leiðinlegur, ætlar greinilega að vera svaka flottur á þessu en það er ekki að takast nógu vel og kemur út eins og hann sé að lesa beint uppúr bók. Svona einskonar sögustund.
En mikið svakalega er piparsveinninn sætur, almáttugur minn, ef að þetta er ekki mín týpa þá veit ég ekki hvað. Þoli nefninlega ekki svona gaura sem að eru appelsínugulir af ljósabekkjanotkun, vagúnpakkaðir inní bolinn sinn og með þrjár dollur af hárvörum í hárinu. (Sbr. Ásgeir Kolbeins)
Þannig að mér lýst bara vel á þennan Steina.

Annars er ennþá rigning hjá okkur hérna í Ameríkunni. Í gær rigndi svo mikið að froskarnir voru farnir að leita sér skjóls hérna á útidyratröppunum, og engin smá flikki. Ég var auðvitað mjög glöð, því eins og glöggir sjá þá er ég svoddan froskur í mér. Það gekk samt ekki vel að reyna að ná þeim og þeir hoppuðu bara í burtu.
Vonum nú að þessi rignin fari að ganga yfir svo að það verði hægt að fara út og gera eitthvað. Svo eru líka að koma gestir hingað á morgun, en það eru frændfólk "mömmunar" þau verða hérna alveg framm yfir Hrekkjavöku svo að það verður svaka stuð og manni ætti ekki að leiðast á meðan.

6.10.05

Þvílíka úrhellis rigningin sem er búin að vera núna í dag. Hitarigning svokölluð, en það er búið að vera þvílíkt heitt og rakt í dag. Kannski er fellibylurinn Kristín Alma að fara að skella á, það kæmi mér nú ekkert á óvart, því að skapið hefur verið þannig í dag.
En yfir í aðra sálma, Ef að ég vissi ekki betur þá myndi ég halda að ég væri komin 7 mánuði á leið. Ég er alltaf að fá svona Weird crawings eins og versta ólétta kona. Þetta er stórdularfullt mál, um daginn þá varð ég hreinlega bara að fá sólblómafræ, eins undarlega og það hljómar, stökk útí Wal-Mart og keypti mér sólblómafræ í poka á 99 cent. Át hann upp til agna áður en að ég var komin hálfa leiðina heim. Skil þetta ekki, því að ég hef aldrei smakkað sólblómafræ áður...frekar skrýtið mál. Alltaf að fá einhverja svona crawing í eitthvað, og alltaf eitthvað ótrúlega skrýtið, eins og í hádeginu í dag langaði mig bara alltí einu alveg svona rosalega mikið í kalkúnaálegg, allsbert, ekki í brauði eða neinu. Já þetta er skrýtið, en samt í lagi á meðan að þetta er svona í hollara lagi.
Ég sé svolítið eftir því að hafa ekki skráð mig til leiks í íslenska piparsveinin. En ég fer bara eftir nokkur ár, eða verð fyrsta piparsveinkan. Annars fæ ég alltaf kjánahroll bara við tilhugsunina að það sé komin íslenskur piparsveinn, hugrekkið í fólkinu sem að þorir að taka þátt í svona dæmi á Litla íslandinu okkar, þar sem að allir þekkja alla og Hér&Nú hikar ekki við að búa til fréttir um þig ef að þú hefur fengið 5 mínútna frægð. Ég býð spent eftir að love boat hefji göngu sína, það verður nú meiri sýran.
Segjum þessu lokið að sinni, vil minna á nýtt og endurbætt Kastljós, strax eftir fréttir mánudaginn 10 október, verið þið sæl

(ef að ég tek ekki við af pabba í framtíðinni þá veit ég ekki hvað, djöfull næ ég þessu vel :))

3.10.05

Hvurnig er það, drepast þessar helvítis moskító flugur ekki? Þær eru ennþá að éta mig eins og það sé bara alveg sjálfsagður hlutur. En vonandi fara þær að hætta þessu blessaðar, því að ég er öll útí örum eftir þessi bit, sem er ekki vinsælt.
Það er svo mikið af kvikindum hérna að það hálfa væri alveg hellingur. Flugurnar, engispretturnar, köngulærnar, kribburnar og allt þetta drasl er ógeð. Nú sannast líka enn og aftur kenningin að það sé ALLT stórt í Ameríku, því að þessi Helv... kvikindi eru HUGE.
Svo eru mýs hérna, en þær eru sauðmeinlausar greyin. Um daginn fann ég skjaldböku í garðinum eins og ég var buin að segja ykkur, það eru íkornar útum allt, ég var næstum búin að pissa í mig þegar að ég var að fylgja April i skolan einn morguninn, þegar að það kemur allt í einu bara stærðar snákur rétt við lappirnar á okkur...OJ barasta. Það var þvottabjörn hérna í garðinum líka um dagin og svo núna rétt í þessu var ég að spotta eina risa könguló á gólfinu!
Svo að það er nóg af gæludýrum hjá okkur - Bara misskemmtileg, ég er eiginlega bara mest hryfnust af gullfisknum hennar April.
En nú fer að styttast í heimkomu hjá froskinum, rúmlega tveir mánuðir í langa ferðalagið mitt, og langþráða fríið. Það verður svo gott að komast heim, fá mömmu mat, hitta vini og fjölskyldu og hafa nice.
Ég er búin að hafa uppá einni íslenskri stelpu hérna og við ætlum endilega að fara að drífa okkur að hittast og skella okkur í bíó eða eitthvað skemmtilegt. Það verður fínt að hitta einhvern annan í sömu sporum.
Ég er annars komin í frí, svo að það er nokkurskonar föstudagskvöld hjá mér, þannig að ég ætla að leggjast uppí sófa með tásurnar uppí loft og horfa á sjónvarpið.

1.10.05

Til Hamingju með Afmælið Linda mín!

Annars sá ég umræðu á netinu þar sem að fólk var að kvarta undan því að starfsmenn rúv þyrftu ekki að borga afnotagjöld. Þar fannst flestum þetta mjög ósangjart og þar fram eftir götunum!
Fólk er svo þröngsýnt, svo kannski þessar kellingar sjálfar að vinna sem leikskólakennarar og með börnin sín frítt á leikskóla, Nú eða þá þau vinna í fataverslun og fá x mikinn afslátt af fötunum þar.
Mér finnst líka ótrúlega ósangjarnt að Linda fái 10% afslátt í Hagkaup en ekki ég!

Heimska fólk!