Ég hef verið í miklum nafnahugleiðingum uppá síðkastið, hvernig er hægt að ætlast til þess að maður geti valið nafn á barnið sitt þegar að það eru svona milljón nöfn til. Svo langar manni kannski að skíra í höfuðið á einhverjum, en þá koma of margir til greina. En ég er samt alltaf með eitt nafn, sem er búið að vera svona "my baby name" síðan ég var 6 ára eða þar um bil. En samt er þetta erfitt þar sem að ég myndi nú líklega leggja í að eignast eins og tvö stykki börn, og þá er eitt nafn ekki nóg. Æj, það eru nú ennþá einhver tíu ár í það að ég fari að huga að þessum málum svo að ég ætla ekkert að vera að stressa mig á þessu núna.
Hins vegar, þá var ég að pæla, ef að ég eignast mann sem að er erlendur og kannski með eitthvað svona hræðilegt eftirnafn eins og Sørensen eða Knudsen, þá myndi ég ekki vilja heita Kristín Alma Sigmarsdóttir Knudsen og hvað þá barnið mitt þá að heita blabla Knudsen. Þannig að ég var að pæla, hvað gerir maður þá? Varla væri það eitthvað skárra að láta mann og barn taka upp mitt eftirnafn, efast um að það væri skárra kallinn og barnið yrðu þá bæði/báðir að vera Sigmarsdóttir, hugsið ykkur hvað það væri flott að koma í heimsókn til mín og stæði á hurðinni: "Familien Sigmarsdóttir"
Já, þetta eru djúpar pælingar hjá mér í dag, held að ég sé búin að vera of mikið úti í sólinni.
8 ummæli:
hahah fullkomlega sammála..!!=D Knudsen ..það er bara LJÓTT..! heheh
-KarenHelga
hey:D Èg man eftir tvi ad tegar tu bjost a raufarhofn varstu buin ad akveda hvad barnid titt atti ad heita;) En èg er alveg bùin ad àkveda tad ad tegar eg verd kominn aftur til ìslands verdum vid ad hittast hvort sem tad verdur à ìslandi eda ì danmorku, tetta er ordin of langur tìmi! En hafdu tad bara gott:D
heyrðu heyrðu...hvað varð um Sigmar Sorensen???
HAHA!!
Já, núna verður pabbi gamli sár, en frumburðurinn minn verður bara Sigmar Sigmarsdóttir :)
Guð hvað sá gamli verður stoltur af nafnanum sínum þá :)
haha kristin min bara farin að hugsa um barneignir!;)
hvað er næst? ...velja postulínið fyrir brúðkaupið:D;)
allt betra en Rasmusssen, ahahahha
Krístín alma rasmusssen ahahahahah
Gætir nú haft líka Kristínar-son/dóttir....Misjafn samt hvað manni finnst um það :P
Nei, fjölskyldu nafnið mitt verður bara Sigmarsdóttir :P
Það er svo kúl
Skrifa ummæli