29.9.04


thetta er salka, hún er eins árs, og er litla systir mín. langaði bara að sýna ykkur hversu myndarlega systur ég á!
Kristín Alma Ruglar...

Sætasta
Kristín Alma Ruglar...

Kominn timi til ad kynna ykkur fyrir prinsessunni minni, sem er á íslandi...
Kristín Alma Ruglar...
Já, það er gaman að þessu!
Okkur Jakobi leiddist SVO rosalega á Nemendaráðsfundinum(eða hvað sem þetta heitir nú) að við fórum að pæla í hversu mikið öðru fólki leiddis,t og festust augu okkar mjog fljótt á Honum Casper! hann var mjog einhverfur og með skemmtilega svipi,störur og geispa! Miklu skemmtilegra að horfa bara á hann heldur en að hlusta á kennarann lesa einhverja sögu, um lítinn bróður sem pissar á sig og stóra bróður sem ég man ekki hvað gerði.
Annars er allt gott að frétta bara held ég. Man ekki eftir neinum öðrum fréttum en þær að ég kem heim eftir 8 daga!




27.9.04

Ég komst að því í dag að ef að svefn gerir mann bara þreyttari.
Ég er mjog þreytt eftir þessa helgi, kannski verður maður það þegar að helgin byrjar á því að það er keyrt á mann, ég veit það auðvitað ekki. En ég er samt búin að vera að drepast í fætinum, fyrst hélt ég að þetta væru harðsperrur, en svo fattaði ég að þetta var bara öðru megin, og akkúrat þar sem ég klemmdist, svo að ég er bara stórslösuð eftir allt saman. En ég er nú öll að koma til.

Á laugardaginn skelltum við okkur í bíó, ég Lára og Mette. Það var hin ágætasta skemmtun, nema hvað að myndin var ekki uppá marga fiska. Þetta var víst einhver spennutryllir, og bjuggumst við við að skíta á okkur úr hræðslu, en viti menn, ég HLÓ frekar heldur en að mér hafi brugðið. Það gerðist alveg tvisvar að mér brá. Annars fínasta mynd og fínir leikarar.

Jæja ég ætla að fara að sofa, og svona, þó að ég hafi sofið í 3 tíma í dag, þá er ég bara massa þreytt.

Ég er svo víst að fara að fá lánaðar tvær myndir hjá Jokobi litla! "IT" og "Wrong turn" hlakka til að horfa á þær á morgun, en ég ætla að finna Friends fyrir Jakob litla...


24.9.04

það hafa ein eða tvær ljóskur verið að spurja um hvernig maður commentar, á þessa síðu án þess að vera með password, svo að ég set inn leiðbeiningar hérna...gangi ykkur vel!

1. Ýta á "Comment" hérna fyrir neðan

2. Ýta á post a "Comment"

3. Fyrir neðan eitthvað svona password dæmi áttu að ýta á "Or Post Anonymously"

4. Núna skrifaðu bara það sem þú vilt segja en mundu að setja nafn þitt undir

Practice makes perfect, Nobodys perfect, So why Practice

Ótrúlegt en satt þá hefur bara nokkuð margt gerst síðan að ég bloggaði síðast. Á miðvikudaginn eftir skóla skellti ég mér í heimsókn til Láru. Við náttúrulega tókum eitt af okkar frægu köstum, svo komu Almar og Raggi líka til að hitta Gaua, en fengu okkur svona í kaupbæti. Við skemmtum okkur konunglega til klukkan 11 um kvoldið, og við komumst að niðurstöðu um að ég og Lára eigum ekki að drekka Pepsi, né borða nammi, allavega ekki þýskt dónanammi...

Á miðvikudaginn þá byrjaði ég líka í Fjolmiðlafræði, eða einhverskonar afbrigði af henni, sem er mjog skemmtilegt fag þó að það sé á dönsku og nokkuð erfitt að læra hugtökin en samt rosaskemmtilegt. Við erum búin að vera að vinna með Blaðagreinar og svoleiðis núna. Þessu fagi fylgir líka meiri heimavinna og þess háttar, en það er bara gaman.

Fimmtudagurinn var mjog áhugaverður. Eða þannig, það eina sem að var áhugavert var að Casper bakaði pizzu, og svo borðaði ég pizzu!
Annars gerði ég líka eitt stykki ritgerð á Dönsku, kennarinn var mjog ánægð með þessa frumraun mína í danskri ritgerðarsmíð, og ég reyndar líka.

Svo í dag var ég á leiðinni heim úr skólanum á hjólinu, og var að fara yfir gatnamót sem eru á milli Horsens og Stensballe(ég by í stensballe) var að hjóla á geðveikum hraða yfir götuna á GRÆNUM kalli, og þá kemur bara einhver gamall kall, fer yfir á rauðu og rétt svo nær að snarhemla þegar hann sér mig og klessir á mig með þeim afleiðingum að ég klemmi fótinn á milli bílsins og hjólsins. Svo ætla ég að fara að Hrauna yfir kallinn, neinei flautar hann ekki bara á mig eins og ég hafi gert eitthvað og keyrir í burtu!

Danir eru sko ekki hæfir í umferðinni, en þeir eru nú aðeins skárri á hjólunum belssaðir.

Í kvold er það svo Family guy maraþon heima hjá Almari Kallinum, það verður nú fínt. Smá Chill, vonum bara að ég drekki ekki neitt pepsí...

Eitt að lokum, ÉG KEM HEIM EFTIR TVÆR VIKUR!


21.9.04

Ég hef misst hæfileikan til að blogga! Það finnst mér hræðilegt, því að þetta er uppáhalds íþróttin mín fyrir utan að kommenta.
Eyjólfur litli fékk leir í dag. Hann sat í allan dag og leiraði og fanst voða gaman,mamma var svo að baka pizzu í kvoldmatinn þegar Eyjólfur kemur og segir "mamma, ég ætla líka að lave en pizzu" Hann er greinilega farinn að tala dönskuna í leikskólanum. Mamma hefur miklar áhygjur af því að hann eigi eftir að tala svona blöndu af Íslensku og dönsku,eins og svo mörg íslensk börn gera. en við vonum ekki.
17 dagar í að ég komi í heimsókn til Íslands, það verður alveg fáránelgt að koma í heimsókn til íslands. En ég ætla sko að njóta þess, ég fer sko bara bráðum að pakka niður, ég get svo svarið það. Ég er eiginlega alveg búin að ákveða hvað ég ætla að gera og held að ég setji listan hérna inn við fyrsta tækifæri.
Ég sakna þess svoldið að geta ekki talað í FRIENDS máli hérna, en ég, Inga Rós og Linda eigum eftir að gera það óspart þegar að ég kem.
En ég er farin í lúllið, reyna að ná þessari pest úr mér, og lesa smá í "Hvordan man træner en dreng" með mary kate og ashley olsen.
Jeg er så dygtig!

20.9.04

Je, det var en rigtig god dag. Ég var rosalega kulturel og fékk mér Danska pulsu í hádegismat, leigði Danska mynd, keypti aðra danska mynd,Horfði á Danska mynd, tók danska mynd á bókasafninu, fékk mér chokolade "bollu", danskt to go og lærði dönsku auðvitað.

Ég byrjaði svo formlega að safna Friends á DVD í dag, ekki seinna vænna að byrja að safna, og nota tækifærið hérna í DK, því það kostar bara 99 dkk hver diskur. Ég er samt alveg búin að sjá alla þættina oftar ein einu sinni og oftar en tvisvar, Enda sagði Almar við mig í dag að ég gæti Talað í friends þáttum...sorglegt en satt!

Annars er allt mjog gott að frétta héðan úr Hrossanesinu, allir hressir og kátir, nema að ég er reyndar eitthvað slopp núna, en það er svosem ekkert til að kvarta yfir.

Ég held að ég þurfi að fara að læra, ég á að gera enskustíl sem að ég þarf að nota 3 tungumál í! Hér kemur smá dæmi: De opdagede faktisk fejlen på elektricitetsværket.Men pressen skrev ikke om det-They Actually discoverd the mistake in the powerplant.But the press didn´t write about it.
Skemmtilegt ha? ég hugsa þetta í millitíðinni á íslensku, svo þetta eru eiginlega 3 tungumál. En ég ætti að fara að halda áfram, því að ég á eftir að lesa nokkrar blaðsíður í The Beatch og evo einhverja smásögu sem heitir Revenge, klára stílinn og lesa smá í dönsku...

18.9.04

Danalandið hefur stórskrýtin áhrif á mig.


17.9.04

Teksten til Drengene fra Angora - Blind Date:


uhh jahh
Hun kom med bussen, og jeg havde taget roser med.
Vi skulle på det der blind date,
jeg havde arrangerede med en fin middag, og en god flaske hvidvin.
Vi spiset meget spaghetti med kødsovs, det smagte mega godt jahh
det var romantisk og vi spiste ligesom hundene, i den der tegnefilm jahh

Men da vi kom i seng og hun lå nøgen ved mig
var der pludselig noget der bevægede sig,
mellem hendes ben

Hun har en Pik,
hallo hun har en pik
hun har en pik,
hun har en stor pik og det burde hun ikke
hun har en pik,
hallo hun har én pik
hun har en stor pik og det burde hun ikke


Hun så på mig, og jeg kiggede der længde på den.
Så sagde jeg temmelig chokeret:
Er det en tissemand du har der mellem benene?
hun svarede, ja det er så


Måske er det mig der er lidt gammeldags,
men piger med tissemænd, det er noget stas
hvert fald i mit univers

Hun har en Pik,
hallo hun har en pik
hun har en pik,
hun har en stor pik og det burde hun ikke
hun har en pik,
hallo hun har én pik
hun har en stor pik og det burde hun ikke

Pludselig så sagde hun, jeg er jo Hermafrodit.
Jeg har også en kusse, lige der bagved mig pik..

Hun har en kus,
ja tak men også en pik
Hun har en pik
hun har en stor pik og det burde hun ikke
Hun har en kus,
ja ja men også en pik
Hun har en pik h
un har en stor pik og det burde hun ikke

hun har en kus
åhh jaa hun har en pik og en kus
Hun har en pik
hun har både en lem og en skede
hun har en kus
det gør mig, det gør mig, det gør mig så forvirret
hun har en stor pik og det burde hun ikke

Mæli með að þið Downlodið þessu lagi, snilldin ein sko. Þetta er samt Rugl texti eins og þið sjáið en samt fyndið.

Annars er allt gott að frétta, Gummi og maja eru hérna og verða yfir helgina.
3 vikur þangað til að ég kem heim til íslands...Góða helgi!

15.9.04

Ég biðst afsökunar á blogginu hér fyrir neðan, ég átti ekki að láta það bitna á ykkur, þó að ég hefi verið í fýlu.
En fýlan hefur kvatt okkur í bili því að dagurinn í dag gekk eins og í sögu því að ég "snakkaði" alveg fljótandi dönsku í allan dag og fékk svona 100 hrós um hvað danskan mín væri góð. Fór eftir skóla að hitta Láru Litlu og við vorum að skoða föt í bænum og svona svo fórum við hiem til hennar að horfa á pirates of the carabien eða alla vega einhvern hluta af henni, því að við sofnuðum báðar í sófanum með sæng..mmm hvað það var kósý hjá okkur. Klukkan svona 20.00 fór ég heim og var eitthvað að nördast í tölvunni eins og vanalega. Þegar að ég var um það bil búin að gefa upp alla von um að eitthvað kraftaverk myndi gerast í kvold þá hringir síminn klukkan 24.00 og það var hann pabbi að tilkynna mér að ég er að fara til Íslands þann 8 október!! Ég er Svo ánægð að ég get ekki farið að sofa, og ég get ekki hætt að hugsa um hvað það verður æðislegt að vera á íslandi í 10 daga!!!!

Vildi bara tjá ykkur það að ég er formlega hætt að vera í þunglyndi og núna er það bara að telja niður 3 vikur og 1 dagur..vííí

hér er svo playlistinn sem ég hlustaði á í kvold...

Blind Date-Drengerne fra Angora

Bohemian Rhapsody(live)-Guns N´Roses and Elton John

Auf Achse-Fred Ferdinand

Little by little-Oasis

Don´t look back in anger-Oasis

Tie up my hands-starsailor

Champagne Supernova-Oasis

Jessie paints a picture-Billy Joel

Stand by me(Acoustic)-Oasis

Supersonic-Oasis

My favurate game-The Cardigans

Where the wild roses grow-Nick Cave and Kylie Minogue

...og svo uppáhaldið mitt One með u2

Guð geymi ykkur öll og gangið hægt inn um gleðinnar dyr, þangað til að ég kem til ÍSLANDS!!!!!

P.s. Inga Rós, pabbi spurði mig hvort við héldum að enginn lesi kommentakerfið..hmm og hann veit hvað pik þýðir svo að við ættum að fara að tala um eitthvað fallegra en þetta á minni síðu..kannski getum við talað um pik á þinni síðu!

13.9.04

Life in Danmark SUCKS right now, eins og sum ykkar vita. Inga Rós sú eina sem les þetta blogg veit það allavega, og það er nú fyrir öllu.
Ég vil fá hérna smá útrás fyrir tilfinningar mínar, en er of þreytt til að skrifa samfelldan texta þannig að ég gef ykkur hérna smá hugmynd um hvað er að plaga mig þessa stundina.


Ég sakna: Pabba, Birnu, Sölku, Sindra og allra vina minna, og fjolskyldu,Skyr.is, cheerios, Metalica pulsanna, Kókómjólk, kúlusúkk, Djúpur, Birgittu og Jónsa súkkulaði, sítrónu egils kristall, og toppur,17 búðana, Centrum,Focus, Oasis,(búðin) top shop, Nonnabúð, Dogma, brynju ís,(fékk streka longun í hann í dag:S) Garðabæjar, Reykjavíkur og nágrenni, kaffihúsana, og svo miklu meira sem að ég sakna frá íslandi að ég gæti halið áfram í alla nótt.

Svo er það þessi leiðinlega Danmörk: Ég þoli ekki þegar að ég er að tala donsku og mig vantar eitt og eitt orð, ég þoli ekki hvað ég hef ekkert að gera í skólanum, námið er hundleiðinlegt, ókrefjandi og ófjolbreytilegt, ég sé eftir að hafa farið í 10 klasse, og ég vil helst bara fara í Handelskolen núna strax, því þá þarf maður allavega að læra eitthvað.

Svo er líka fólk hér í DK sem að fer óendanlega mikið í taugarnar á mér þessa dagana fyrir að vera leiðinlegt og óþroskað.

ég er farin að sofa úr mér þessa geðvonsku, og kem örugglega með eitthvað afsökunarblogg á morgun. BLESS

11.9.04

Í gær þann 10 september milli klukkan 22.00-01.00 var sett nýtt Norðurlandamet í áfengisdrykkju, utanhúss án atrenu. Það voru c.a. 10 unglingar á aldrinum 16-17 ára, Danskir og íslenskir sem að slógu metið og fóru létt með það.
Ég var á staðnum og hvatti mitt fólk auðvitað til dáða, eða þannig. Auðvitað hjálpaði ég aðeins til eins og mín er von og vísa, en þó tel ég mig hafa verið með fullu viti þó að ég hafi misskilið eitt eða tvö orð, sem voru sögð við mig á dönsku, En það kemur fyrir mig á hverjum degi, bara ekki í þessu samhengi...

Ég gisti svo bara heima hjá Láru og Gaua um nóttina og það var reyndar ekki mikið sofið, ég náði samt að sofa í 3 tíma og svo vorum við Lára dottandi yfir DVD allan daginn.
Núna er maður svo bara að passa, því að það er eitthvað ball hjá Íslendingafélaginu hérna í Horsens.
En ég hef ekkert meira sniðugt að segja svo að ég kveð að sinni.
Og ég vil minna á að það eru 3 vikur og 5 dagar í haustfríið, og ég er að vonast eftir að komast til íslands þá!



8.9.04

Danskir tannlæknar eru óvinir! Já mikið rétt ég er að leggja fram þessa staðreynd, því að ég fór til tannlæknis í dag og er ekki ánægð. Málið er að ég fór í strekkingu, og svo voru settar einhverjar teygjur á milli tannana aftast svo að ég geti fengið einhverja járnhringi utan um tennurnar. Svo að núna þarf ég auðvitað að líða fyrir þær kvalir, ég er alveg að drepast í tönnunum og er komin með þennan líka svakalega hausverk.

Annars er allt gott að frétta héðan úr Danalandinu, ég er farin að "snakka" dönskuna hægri vinstri, eða svona ég tala enga ensku lengur.."jeg snakker kun dansk nu" en ég kann sko ekki apaskít í stafsetningunni, en það kemur nú bara með kalda vatninu.

Ég var í Matematik Hjælp í dag, og mér Pernille og Jenny vorum ekkert alltof mikið að pæla í stærðfræðinni. Við erum búnar að gera "díl" um að ég kenni þeim íslensku og þær kenni mér dönskuna betur. Í dag var ég að kenna þeim og þær eru bara andskoti móttækilegar fyrir þessu, en það sem þær lærðu í dag var: ÉG heiti, ég kem frá danmorku,bósi ljósár, ég skil þig ekki, ég hlakka til jólana og Amælissöngin.

Sólin er farin að láta sjá sig aftur og er frekar ljúft að koma heim úr skólanum klukkan 14:00 og leggjast út í sólina í 25 stiga hita í september.

En jæja ég er þá farin að gera eitthvað af viti, eins og að fara út að tala við Broddgeltina eins og mér einni er lagið. Svo skal ég lofa að það kemur blogg um eða eftir helgina, Þar sem að það á víst að skola niður eins og einum eða tveimur "?" og kíkja á mannlífið í Horsens.

Ef þið hittið einhverntíma Dana, biðjið hann þá að segja "fiðrildi" Það er snilldin ein að heyra þá segja þetta, og ef að hann spyr hvað þetta þýðir þá er fiðrildi "Summerfugl" på dansk...

P.S.Þetta er fertugasta bloggið sem ég skrifa inná þessa síðu, og þið getið reiknað með því að svona það sextugasta verði á dönsku.

2.9.04

Blogger er vægast sagt freðið forrit...

Ég er líka freðin núna, ég nenni ekki að blogga en samt vil ég blogga svo að...

Ég fór í afmæli í dag, hjá honum Daníel. Daníel varð tólf ára í dag. Til hamingju! Jakob á líka afmæli í dag. Jakob varð sextán. Til hamingju!

ÞAÐ ER AÐ KOMA HELGI!

Sören og Casper lærðu nýtt orð í dag og notuðu það óspart! Orðið var íslenskt og ekki prenthæft á síðu sem foreldrar lesa.

1.9.04

Inga Rós er farin að kvarta svo mikið undan framtaksleysi mínu hér á vefnum að ég hef ákveðið að blogga...Og missa af skadestuen og Robinson fyrir vikið, En hvað gerir maður ekki fyrir vini sína?
Helgarnar í Danmorku eru vægast sagt skrautlegar! Íslendingarnir (vinir) mínir missa sig í einhverju sem að ég bara hreinlega man ekki orðið yfir á íslensku. Aldrei hef ég nú upplifað annað eins, en þó er fjorið aldrei jafn mikið og þegar að danir bætast í hópinn(sérstaklega stelpur)...þá er bara DRAMA DRAMA DRAMA!!!!
Annars þá er ég bara að stíga uppúr þessari all svakalegu flensu 40 stiga hiti og einhvað vesen í hálsinum sem ég er á pensilíni útaf.
Ingibjorg fékk blóðeitrun í fótinn um daginn og er líka á pensilíni útaf því svo að það er ástand á bænum!
Skólinn gengur annars eins og í sögu og ég verð að segja að ensku og donsku tímarnir eru skemmtilegastir, Freðið fólk á stóran part af áhuga mínum á þessum tvemur fogum.
Held bara að það sé því miður ekkert meira sem að ég hef frá að segja núna, en ég skal lofa að blogga oftar...sérstaklega um helgar!