18.9.09

Sveitin

Áður en ég fór á Þjóðhátíð núna um verslunarmannahelgina þá keypti ég mér gúmmítúttur á Blómsturvöllum. Ég lét ekki sjá mig í öðrum skófatnaði alla helgina og var alltaf heit og þurr á fótunum (skiptir höfuð máli í svona útihátíðarleik).
Núna í þessari viku er svo búið að vera bilað veður hérna í sveitinni, haustið að stimpla sig inn með tilheyrandi rigningu og sunnanátt svo kuldaskræfan ég þorði ekki annað en að rífa fram tútturnar og ullarsokkana. Í góðri trú hélt ég að þessi sveitamannaleikur minn myndi falla vel í kramið hjá heimamönnum og ég myndi jafnvel eignast vini útá þetta uppátæki mitt, þar sem fólk sæi nú að ég væri kannski ekki svona mikið borgarbarn í raun og veru. En neiii, fólk hefur hlegið að mér í viku! Hér ganga allir greinilega bara um í hátísku skóm og fólk heldur að gúmmítúttur séu bara eitthvað ofaná brauð.
Meira að segja tengdamóðir mín sá tútturnar í forstofunni og sagði: Er Gísli Einarsson í heimsókn?

10.9.09

Hver er svona lítil og löt?

Essasú, essasú?

Já, skólinn er byrjaður og kannski kominn tími til að endurvekja froskinn. Það er jú klassískt að eiga bloggið að þegar verkefnin fara að hlaðast upp.

Ég hef samt ekki nógu mikla heimavinnu til að nenna að blogga mikið núna.

Tjá