Áður en ég fór á Þjóðhátíð núna um verslunarmannahelgina þá keypti ég mér gúmmítúttur á Blómsturvöllum. Ég lét ekki sjá mig í öðrum skófatnaði alla helgina og var alltaf heit og þurr á fótunum (skiptir höfuð máli í svona útihátíðarleik).
Núna í þessari viku er svo búið að vera bilað veður hérna í sveitinni, haustið að stimpla sig inn með tilheyrandi rigningu og sunnanátt svo kuldaskræfan ég þorði ekki annað en að rífa fram tútturnar og ullarsokkana. Í góðri trú hélt ég að þessi sveitamannaleikur minn myndi falla vel í kramið hjá heimamönnum og ég myndi jafnvel eignast vini útá þetta uppátæki mitt, þar sem fólk sæi nú að ég væri kannski ekki svona mikið borgarbarn í raun og veru. En neiii, fólk hefur hlegið að mér í viku! Hér ganga allir greinilega bara um í hátísku skóm og fólk heldur að gúmmítúttur séu bara eitthvað ofaná brauð.
Meira að segja tengdamóðir mín sá tútturnar í forstofunni og sagði: Er Gísli Einarsson í heimsókn?
1 ummæli:
hahahaha snilld! :)
ég reyndar á ekki gúmmítúttur, en ég á og nota stígvel með hauskúpu. já og svo nota ég moonboots í snjónum.... kannski þessvegna sem við erum vinkonur.... svona sveita-nörda-vinkonur :)
-Rut-
Skrifa ummæli