29.1.04

Hæ elskurnar mínar!
ég er í smá vandræðum með að velja málshátt sem henntar mér vel fyrir árbókina. Málið er að maður verður að hafa einhvern málshátt sem að er innihaldsríkur og gáfurlegur eins og Kristín Bjarna segir. Ef þið viljið leggja eitthvað til þá myndi ég vilja fá hugmyndir í kommentakerfið mitt.
HJÁLP ég veit ekki hvað ég á að hafa..

20.1.04

Komið þið sælir landar góðir! Ég er nú aldeilis búin að vera upptekin. En það er allt brjálað að gera í skólanum, kennararnir keppast við að halda okkur í formi fyrir samræmd próf sem hefjast 3 mai. Kalli Valli umsjónarkennarinn minn og Kristín Bjarna gengu meira að segja svo langt að þau sóttu á netið lag sem heitir Pýþagórasarreglan og er mjög svo skemmtilegt. En okkur fannst það frekar langt gengið. Því að það var einhvernvegin svona Rappað og hljómaði: a í öðru + b í öðru samasem c í öðru. Mjög svo furðuleg kennsluaðferð, En hún vakti kátínu 20 þreyttra tíundubekkinga á fimmtudagsmorgni.

Annars gengur mér allt í haginn, Ég var að passa á Föstudagskvöldið Tvíbbanna, Árna Fannar og Lovísu Huld en þau sváfu bara allan tíman. Ekki erfitt JOB þar:) En Kalli vann IDOL stjörnuleit 2003, En ég er sko alls ekki sátt við það ég er búin að halda með Jóni alveg frá því að Rannslan mín datt út, og bara fyrirgefiði en hann Kalli hann er bara alls ekki að falla í kramið hjá mér. En fólk hefur víst mismunandi skoðanir á hlutunum.

Laugardagurinn var svo eithvað ekki alveg að virka hjá mér því að ég ætlaði að fara í Samskipardeildarpartýið hjá Versló en það var uppselt þegar átti að ksups miða á föstudaginn og ég var ekkert smá fúl. Þetta eru víst helvede góð partý og stór og flott. En þá ákvað ég bara að deyja ekki ráðalaus og skreppa í klikkað partý heima hjá Lindu. En ákvað þá samt að passa fyrst ðeins heima (til miðnættis) en annað kom á daginn eða nóttina réttara sagt, Mamma kom ekki heim fyrr kl 4 og skemmdi allt fyrir mér. Þannig að helgin fór til einskis, eða reyndar ekki fyrir alla, helga var allan tíman í sjöunda himni þannig að hún gladdi mig aðeins en ég varð samt bra fúl útí hana og ég og Inga Rós þurftum að stofna Þunglyndisklúbb í gær en fyrsti fundurinn stóð samt ekki lengi, Það voru tvö Yndi sem komu í veg fyrir það ;)

En Ingibjörg er 7 ára í dag og Helga beib er loksins orðin 15 ára hehe Svo verður maður sjálfur bara 16 eftir 53 daga, þetta er alveg merkilegt. En ég er að hugsa um að fara að horfa á nágranna og demmba mér á kaf í skólabækurnar...bless bless!!

18.1.04

Einu sinni var Skoti sem var úti í skoti
þá kom annar Skoti og skaut hann með skoti
þá kom annar Skoti sem sagði við Skotann:
hvaða andskotans Skoti hefur skotið þennan Skota
þá sagði Skotinn sem hafði skotið Skotann:
ég er Skotinn sem skaut Skotann í skotinu með skoti !

Prófiði ð lesa þeta aftur HRATT..

Og svo er önnur sem sumir skilja bara ekki

Einu sinni voru tveir menn sem voru að rífast um hvor þeirra ætti að fara út í búð. En svo ákváðu þeir bara að skreppa saman. Og þannig urðu Dvergar til.

já ef þið skiljið ekki þá getið þið bara commentað í nýja commentunarkerfið mitt. Og svo vil ég líka minna á nýju gestabókina mína. En læðan var svo elskuleg að hjálpa mér að setja það upp.

Elskiði friðinn og strjúkiði kviðinn....bæ

12.1.04

Já þetta virkar hjá mér! Eg er sem sagt orðinn bloggari og froskurinn heldur lífi. Já eins og fyrr sagði þá hef ég ákveðið að stíga eitt skref í átt að alvöru blogg heimi. Eg skal gera mitt besta í því að blogga og vera svolítið lífleg og vaknadi um það sem er að gerast í samfélaginu.

Annars er allt það besta að frétta hjá mér og mínum. Skólinn byrjaður og ég er búin að fá einkunnirnar, Þær voru nú sæmilegar en ég er alls ekki nógu ánægð með árangurinn og ætla mér að gera betur í vor. En ég var með 7,6 í meðaleinkunn.

Já það er nú ekki mikið meira sem hefur drifið á daga mína upp á síðkastið svo að ég held að ég kveðji bara að sinni.

Eg ætla að reyna að næla mér í gestabók og commentunarkerfi og er hjálp vel þegin frá bloggurum.

Kveðja Kristín Alma





Hæ hæ ég er bara að tékka hvernig þetta virkar. Eg var með síðu á fólk.is en hún er svo leiðinleg og hæg að ég vildi frekar fá mér alvöru blogg. En sjáum til hvernig þetta gengur og vonandi fer allt að óskum og froskurinn heldur lífi.