29.6.08

5 dagar..

Goood, ég er við það að fá heilablóðfall af spenningi.

Fór til Vejle í gærmorgun. Fór með Svanhildi í brunch og búðarráp. Ekki leiðinlegt það. Keyptum líka lestarmiða fyrir föstudaginn. Ofsalega skipulagðar! Ræddum líka mikið hvað sé best að pakka mörgum pörum af skóm fyrir þetta ferðalag, hvaða föt þarf að taka með og hvaða ferðatösku sé best að pakka í.

Þetta eru 6 vikur. Og sko 6 vikur af vinnu, chilli, sveit, útilegum, djammi, kaffihúsaferðum, brúðkaupi, matarboðum, fótboltaleikjum, afmælum, ættarmótum og öðru skemmtilegu.

Sem sagt, maður þarf að pakka fyrir þetta allt. Það er nú bara hægara sagt en gert. Ég er allavega með Samsonite-ið tómt hérna fyrir framan mig og held það eigi eftir að vera þannig þangað til á föstudaginn þegar ég átta mig á að það er korter í flug og einhverju verður hennt ofaní tösku og svo farið að grenja loksins þegar ég kem heim til mín og uppgötva að ég hef gleymt kjólnum fyrir brúðkaupið eða afmælisgjöfinni hans Jóns Péturs.

Svo er víst búið að vera SPÁNARVEÐUR í Grundarfirði uppá síðkastið, alveg geggjað víst!
Þannig að ég er save með að á föstudaginn komi rigning og verði þannig út sumarið. Best að ég komi við í 66° á flugvellinum og splæsi í regngalla og ullarnærföt.

Jæja ætli það sé ekki ráð að byrja á því að henda í þvottavél og vaska upp áður en ég fer að hafa meiri áhyggjur af þessu.

Annars má ég til með að segja ykkur hvað ég á krúttaðan litla bróður.
Hann birtist hérna áðan með eldrauða hvítlaukspressu í hendinni og færði stóru systur.
Ég var nefninlega að tala um það heima hjá mömmu á föstudaginn þegar ég var að búa til hvítlauksolíu hvað það væri mikill munur að eiga hvítlaukspressu, því ég saxa alltaf hvítlaukin sjálf hérna. (Amma Stína gaf okkur samt sjúkt flotta Eva Solo hvítlaukspressu, en hún er í Grundarfirði og örugglega í stöðugri notkun eins og Kitchen Aid hrærivélin mín sem er líka þar)

Þannig að litli bróðir fór í Fakta og keypti hvítlaukspressu fyrir mig fyrir sína peninga.
Bara sætur.

28.6.08

VIKA

Dí maður! Bara vika (eiginlega 6 dagar, því þetta er ritað kl 04.30 aðfaranótt laugardags) og ég hlakka svo til. Bara veit ekki hvernig ég á að vera.
Held það verði ogguponsu spennufall sem ég fæ þegar ég kem heim, því ég er bara búin að hlakka til að komast heim í 2 mánuði.

Að öðru. Amma Stína varð 60 ára á miðvikudaginn. Til hamingju með það! Hún ber enn titilinn "töffaðasta og tæknivæddasta amman" og held hann verði ekki tekinn af henni í bráð. Amk ekki meðan hún heldur áfram að vera fljótari en ég að skrifa sms, tala við barnabörnin á msn og horfa á stóra flatskjáinn sinn. Ásamt því að vera alveg tæknióð og selskapsdýr þá er hún nú samt fyrst og fremst amma sem gerir pönnsur, heitt kakó og finnst maður alltaf jafn horaður þegar maður kemur í heimsókn og treður í mann mat :) Lovit!

Tómas Orri litli frændi minn átti líka afmæli á miðvikudaginn. Til hamingju með það litli minn! Reyndar að verða táningur barnið! Finnst það frekar hræðilegt því ég hlýt þá að vera orðin 12 árum eldri en ég var þegar hann fæddist.

Jónsmessufrænkan litla dafnar vel. Algjört undrabarn að sögn föðurs. Komnar nokkrar myndir og hún er bara alveg yndisleg. Með bústna putta og hárlubba. Algjör mús samt, enda ekki nema 4 merkur. En hún er bara duglegust og við verðum öll hlaupandi á eftir henni útum allt næsta sumar :)

Hmm, jæja virðist vera búin að svæfa JP með skrifum mínum á msn. Svo ætli það sé ekki ágætt að ég komi mér þá sjálf í bælið.

Elskið friðinn.

26.6.08

Linda dónakona

Þetta beið mín þegar ég opnaði myspace-ið mitt í vikunni.

Stína ætlar að flýja út í sveit
að elta feita gamla geit
þá er ég ekki að tala um kæró
sem eyðir frítímanum i berjamóóó.
Á grundarfirði er sól og blíða
en þú verður bara heima að *bííííb*
svo ekkert tan þú færð vinan
en það þýðir ekkert að hafa kallinn linan!;)

Nú er linda komin í ruglið
en eg hlakka til að draga þig í sullið
komdu á klakann Stína mín
hér bíður stórt knúús tiil þíín!



Ældi næstum úr hlátri þegar ég sá þetta. Með þessu fallega ljóði fylgdi svo kveðja um að Lindu langaði mikið til að hitta mig á kaffihúsi helgina sem ég kem til Íslands.

En svo kemur uppúr dúrnum að hún getur það ekki. Af hverju? Júbb, verður hjá kærastanum sínum í Vestmannaeyjum!

Skaust þig í fótinn þarna vinkona :)


Fyrir nokkru fékk ég líka þessa mynd á myspace-ið mitt, einmitt frá Lindu.
Reyndar fékk ég þessa mynd þegar ég sagði henni að ég yrði í Grundarfirði í sumar. Linda er nefninlega ein af þeim sem veit að það er stórborgarbarn sem býr í mér. Getum orðað það þannig að lagið um Stínu sem var lítil stúlka í sveit er ekki samið um mig.


Linda sér sem sagt fyrir sér að ég verði svona í sumar. Í skærbleikum glansgalla og að Jón Pétur verði í stíl í bláum.




En Linda mín, þegar allt kemur til alls erum við saman í þessu. Þú í Eyjum og ég í Grundarfirði - Allt fyrir ástina :)

(Svona til að ég fái ekki æsta Grundfirðinga uppá móti mér þá skulum við hafa á hreinu að ég hef ekkert á móti Grundarfirði.)

23.6.08

Litla frænkan

Litla skott Gummadóttir er fædd.

Rúmar 4 merkur og 39 cm - Það er nú ekki mikið. En hún virðist ætla að vera nagli litla greyið.

Til hamingju!


Runnin reiðin

Já, þýðir víst lítið að ergja sig á þessu.
Ef ég mæti samt manneskju sem er í Sonofon peysu þá mun ég líklegast hrækja á viðkomandi.
Svanhildur kom til Horsens á laugardagskvöldið og var planið að merenera sig aðeins í hvítvíni, borða góðan mat og slúðrast.
Varð eitthvað lítið úr hvítvínsdrykkju (kræst, skrifaði fyrst hvítlauksdrykkju!) og þetta með góða matinn var eiginlega á mörkunum. En okkur tókst nú að blaðra þarna til klukkan 12 um kvöldið þannig að þetta var ekki alslæmt. En næst verður farið á LaTasca, fröken Svanhildur!

Ég er enn með kvef og drullu. Þvílíkar hellur og höfuðverkur sem fylgir þessu. Vona að þetta fari að klárast, enda komin vika síðan ég fór að hósta og þetta er eitthvað sem ég nenni ekki að hafa, sérstaklega ekki í flugi!!

Annars er lítið að frétta. Styttist sem betur fer í heimkomu. Held að geðheilsan batni svolítið þegar maður loksins kemst heim. Er orðin pínu pirruð á þessu grasekkjulífi og held að það sé alveg skiljanlegt. Hundfúlt að vera svona langt í burtu.
En nýja mottóið mitt er "þetta gæti verið verra" svo það er bara að halda áfram að líta á björtu hliðarnar á þessu öllu! Ekki nema 11 dagar í að ég komi heim svo það styttist.

Villi líka fluttur heim. Búinn með árið sitt hérna í Århus, svo það var enn einn sem maður þurfti að kveðja. Vill nú samt til að ég kemst nú ekki hjá því að hitta hann í sumar - á ættarmóti og hinum ýmsu fjölskylduviðburðum í Grundarfirði svo ég grét nú ekki mjög lengi. Langaði samt mest að fara með honum heim eins og upphaflega planið var!!

Bumbulína Gummadóttir hefur tekið frænku sína aðeins of alvarlega þegar ég talaði um það fyrir stuttu að hún og Bumbus Óskarsson ættu ekki að láta bíða eftir sér, svo ég gæti séð þau áður en ég færi út aftur.
Hún kemur í heiminn á morgun og ætla ég nú bara að krossa putta og tær fyrir að það gangi allt saman vel.

Alveg vissi ég að þetta væri stelpa! Dí hvað ég er orðin góð í að getta á rétt kyn!

21.6.08

Brjáluð!

Guð minn góður. Sonofon er mesta skítafyrirtæki sem uppi hefur verið.

Sonofon er semsagt símafyrirtæki hérna þar sem ég hef verið með mitt númer í 2 ár. Aldrei verið neitt vesen, fyrr en núna.
Allt í einu fór ég að fá símreikninga sem pössuðu bara ekkert við það sem ég var að hringja og senda sms. Var sérstaklega ánægjulegt að fá reikning uppá einhvern 1000 kall danskar fyrir mánuð sem notunin mín var nánast engin því ég hafði verið á Íslandi og gleymt kortinu mínu þar, þannig að ég var símalaus í mánuð.
Síminn var sem sagt í full swing bæði meðan ég var á Íslandi og þegar kortið var aleitt á Íslandi. Reddaði þessu samt og allt í góðu.

Eftir þetta fékk ég reyndar áfram háa reikninga, en það er nú alveg ástæða fyrir þeim, sms til útlanda.

Svo núna fyrir svona 10 dögum þá lokuðu þeir á mig. Gat bara allt í einu ekkert hringt eða sent sms. Gat náttúrulega ekki hringt í þá og sagt þeim frá þessu þannig að ég sendi mail á þjónustuverið.
Tók 6 daga að fá svar og þá var það svar um að það tæki lengri tíma að meðhöndla málið en þeir gerðu ráð fyrir í upphafi.
Vill til að ég er ákaflega þolinmóð að eðlisfari og beið bara róleg eftir svari.

Núna áðan fæ ég svar um það að ástæðan fyrir að símanum var lokað er sú að ég hef ekki borgað síðustu tvo reikninga. Sem er kjaftæði, því það er ekki langt síðan ég borgaði 1300 dkk til þeirra.
Ég hef ekki fengið neinn reikning frá þeim síðan þá, sem passar alveg, því ég borga á tveggja mánaða fresti.
Þeir sögðu að þegar ég væri búin að borga rúmar 700 dkk fyrir apríl og rúmar 900dkk fyrir maí myndu þeir opna símann aftur (komnar sektir ofan á þessar 1300 sem ég er nýbúin að borga) Og að sjálfsögðu myndi bætast við 200 dkk fyrir að láta opna símann aftur, það tekur svo 5 virka daga að láta opna helvítis símann aftur.

Nenni ekki að taka þátt í þessu rugli lengur. Ætla ekki að borga tvisvar fyrir apríl og maí - Borgaði það á réttum tíma.

Sendi þeim til baka pirringsbréf um þetta og ætla svo að láta loka á þetta númer bara alveg.

Þið Íslensku danir, hjá hvaða símafyrirtæki eruð þið? Ætla að skipta um fyrirtæki á mánudaginn..!

19.6.08

Útskrift

Vá, hvað er fólk að pæla í að útskrifast í febrúar?

Fann held ég eina sönnunargagn þess að ég hafi mætt í útskriftina hjá byggingarfræðingunum okkar hérna í vetur. Stal þeim frá Byggingarfræðing og frú hér í bæ :)

Núna skil ég næstum því Jón Pétur að hafa frekar viljað fara í Ikea (eina skiptið sem hann hefur farið með bros á vör í Ikea, myndi ég halda) í staðinn fyrir að mæta í útskriftina og láta taka af sér myndir.

Maður er eins og liðið lík í febrúar!!!



Sýnist á öllu að ég mæti í útskriftina hans Stjána þann 4. júlí. Bara til þess að láta taka af mér betri myndir, er svo fokkíng töönuð núna...!!

17.6.08

Hæ hó og jibbí jeij..

Söng skáfrændi hérna um árið.

Mér finnst alltaf jafn asnalegt að 17 júní sé bara venjulegur dagur í Danmörku. Kjánar að halda ekki uppá þjóðhátíðardag Íslendinga.

En hvað um það. Fór í próf í gær. Hélt að ég myndi falla í yfirlið þegar ég var komin uppí skóla, en Andri fór í föðurhlutverkið og róaði mig niður á nóinu.
Fór inní prófið. Var erfitt en ég einhvernvegin spjallaði mig uppí 7-u svo ég kvarta ekki. Veit ekki hvað það þýðir á íslenska skalanum en held það sé um 8-9. Fínt. Svo maður þarf ekki að hugsa um þetta meira.

Núna tekur við 2-3 stærðfræðitímar á dag þar til 4. júlí. Kem svo heim þá um kvöldið. Verð í bænum á laugardeginum allavega og kannski sunnudeginum þannig að ég ætla að nýta þann tíma til að soga í mig menningu áður en ég fer í sveitina.

Síðan virðist vera þéttsetin dagskrá alveg þangað til ég fer út aftur í lok ágúst. Gamla fólkið í Grundó bíður eftir mér, ættarmót hjá JP, brúðkaup hjá Birnu og Sigga Kára, Grundfirsku dagarnir, Eyjar og svo er ég búin að panta að Óskarsbarn og Gummabarn fæðist áður en ég fer út aftur því ég nenni ómögulega að bíða fram að jólum með að sjá nýjustu frændsystkinin.

Jæja, ætla að fara í apotekið að kaupa plástra og e-ð til að taka hor úr hausnum á mér! Týpískt ég, þegar ég er búin að finna leið til að halda niðri frjókornaofnæminu þá fæ ég bullandi kvef og stíflaðar ennisholur. Er ekki júní eða??

Skemmtið ykkur á 17. júní. Sjálf ætla ég að drösla Villa tengdabróður mínum í bíó með Íslendingum í Horsens. Erum nefninlega með sýningu á Íslenskri mynd í bíó-inu hérna :)

15.6.08

Pleh

Jájá, enn að læra bara. Prófið á morgun svo ætli ég verði ekki bara hérna í skólanum þangað til. En nei ætli maður fari ekki heim að leggja sig í kvöld.

Fór annars á sex and the city í vikunni. Held að ég geti alveg sagt það að ég hafi verið sú eina sem tók eftir Stokke kerrunni sem sást einu sinni í bakgrunninum heima hjá Charlotte. Var ekki einu sinni í fókus. Held að BabySam hafi ekki haft góð áhryf á mig.
Myndin var góð. Gat ekki haldið aftur að tárunum og er nú búið að banna mig frá bíóinu í Horsens. Gengur ekki að það sé alltaf einhver grenjandi kelling á öllum myndum.

Þetta táraflóð mitt á nú samt rætur að rekja til heimþráar sem ég þjáist af þessa dagana. Lýsir sér svona að ég grenja yfir bíómyndum, sjónvarpsþáttum og jafnvel auglýsingum í sjónvarpinu. Það er allavega mín skilgreining á þessum tárum. Kannski er ég bara orðin svona meyr. Getur líka alveg verið.

17. Júní var haldinn hátíðlegur í gær með tilheyrandi skyndiskrúðgöngu, SS pulsum og Candy floss!
Kom heim um 17.30 í gær og var svo búin á því að ég gat ekki hreyft útlimina. Svo angaði ég líka eins og pulsa og var klístruð eftir allt Candy-Floss-ið sem ég gerði. Oj.

Í dag stendur til að læra. Er ekki að nenna því en þetta verður búið klukkan 14.00 á morgun óg þá getur maður byrjað að láta sér hlakka til sumarsins, sem er loksins að fara að byrja hjá mér!

Make love not war..

12.6.08

:)

Ekki margar fréttir.
Próf á mánudaginn og ég rembist eins og rjúpan við staurinn að reyna að lesa eitthvað. Held ég sé með athyglisbrest. Get svarið það.


10.6.08

Fyrir Hjalla

1. ERTU SKÍRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM ? Já, ömmum mínum

2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA ? Uhh, táraðist í gær yfir sjónvarpinu. Líklega 5 vikur síðan ég grét síðast.

3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL ? Nei. Mömmu finnst það samt.

4. HVAÐA KJÖT FINNST ÞÉR BEST? Litlu íslensku lömbin eru best.

5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVE MÖRG ? Nei. Ekki ennþá. Það er samt á 10 ára planinu.

6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT,VÆRIRU VINUR ÞINN ? Nei, myndi byrja með mér

7. NOTARÐU KALDHÆÐNI MIKIÐ? Já. Eða held það.

8. FÆRIRU Í TEYGJUSTÖKK ? Nei. Er svo mikið hérahjarta. Þori engu svona.

9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? Coco puffs. Bara því við fengum það bara á jólunum þegar ég var lítil. Gæti ég lifað á Serjósi.

10. REIMARU FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM ? Nei.

11. TELURU ÞIG ANDLEGA STERKA ? Já. En ekki á sumum sviðum.

12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? Ohh, langar í ís. Ben and Jerry's, Paradis-ís og Hagamelurinn klikkar ekki!

13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS ? Æji. Veit ekki. Of langt svarið mitt, fer líka eftir kynjum.

14. RAUÐUR EÐA BLEIKUR ? Ætli mér verði ekki afneitað ef ég segi ekki rauður. Manchester, Arsenal, Rauða hverfið..

15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR MEST VIÐ SJÁLFAN ÞIG ? Hvað ég er tilfinningabæld

16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST ? Jóns Péturs og Sölku held ég. Svo fylgja hinir fast á eftir.

17. VILTU AÐ ALLIR SEM ÞÚ SENDIR TIL SENDI ÞÉR TIL BAKA ? Sendi þetta ekki. En ef fólk vill má það alveg svara sko.

18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERTU Í NÚNA ? Svörtum og er á tásunum. Var áðan í gullsöndulum. Mjög flottum.

19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR ? Haha. Var að gúffa í mig lúku af graskersfræjum. (ótrúlegt en satt!)

20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA ? Dagný með Villa Vill og Ellý Vilhjálms. Flott lag!

21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR, HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ ? Blár örugglega. Er svoldið blá.

22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST ? Lyktin af nýfæddum börnum er ótrúlega góð! Svo eru margar lyktir sem mér finnst mjög góðar. Er mikið fyrir lyktir.

23. VIÐ HVERN TALAÐIRU SÍÐAST Í SÍMA ? Pabba held ég.

24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR ? Já. Mjög vel. Enda einasti stóri bróðir minn. hehee

25. UPPÁHALDSÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á ? Handbolti. Dýfingar líka smá töff. Lendi stundum í að horfa á fótbolta. Lennti oft í því á pabbahelgum um denn. Svo kom tímabil sem ég horfði aldrei á svoleiðis. En það er eitthvað að breytast. Maður mætir svo á völlinn í sumar að styðja sína menn. Eða mann.

26. ÞINN HÁRALITUR ? Veit ekki hvað hann heitir. Svona bronsbrúnn einhvernveginn.

27. AUGNLITUR ÞINN ? Grænn. Stundum dökk og stundum ljós.

28. NOTARU LINSLUR ? Nei. Þarf samt gleraugu. Sé ekki rass.

29. UPPÁHALDSMATUR ? Mömmu lasagne held ég bara. Annars er ég mikið fyrir góðan mat (figures) og borða eiginlega allt..

30. HVORT LÍKAR ÞÉR BETUR, HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR? Góður endir. Er svo lítil í mér að hryllingsmyndir gera ekkert fyrir mig.

31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ ? What happens in Vegas. Annars er það Sex and the city á morgun!!!

32. KNÚS EÐA KOSSAR ? Fer alveg eftir frá hverjum. Kossar frá kærastanum, knús frá mömmu.

33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR ? Ís. Frönsk súkkulaðikaka er líka smá góð.

34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL AÐ SVARA ÞESSU OG SENDA TIL BAKA? Helga mín myndi ég halda.

35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR ? Jón Pétur. Pabbi. Gummi. Móðir mín í föðurætt mun heldur ekki svara.

36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA ? Ætti að vera að lesa fyrir próf. Var að klára "áður en ég dey" ágætis bók alveg.

37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI ? Á ekki músamottu

38. Á HVAÐ HORFÐIRU Í SJÓNVARPINU Í GÆR ? Sex and the city, Friends og Oprah. (Jájá)

39. ROLLING STONES EÐA BÍTLARNIR ? Bítlarnir!

39b TODMOBIL EÐA SÁLIN? Sálin ofkors!

40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI ? US and A. Ætli Florida sé ekki það lengsta sem ég hef farið.

41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR ? Hvað ég er afspyrnu léleg í að elda og baka. Er svo léleg að það er eiginleiki útaf fyrir sig.

42. HVAR FÆDDISTU ? Reykjavík ofkors

43. SVÖR FRÁ HVERJUM ERTU SPENNTUST/SPENNTASTUR AÐ FÁ FRÁ ? Helgu, því hún verður eina sem nennir að svara :)

8.6.08

Sumar

Ekkert að ske. Próflestur og hitabylgja. ParadisÍs og kirsuber..jammí





3.6.08

Pirr..!

Tíminn er hættur að líða. Alveg búin að fatta það sko. Var eitthvað að reyna að telja niður í Íslandsferðina mína á msn, en það gengur ekki. Þetta situr bara fast í 5 vikum. Ekki alveg sanngjarnt. Er að reyna að stóla á það að það verði geggjað veður allan júní mánuð þannig að maður geti bara verið að slæpast á ströndinni eftir próf. 16 júní er prófið og svo eru tímar frá 17 júní og fram til 4 júlí. Reyndar er ég bara í 2-3 tímum á dag þannig að það ætti að vera nægur tími í að slæpast á ströndinni, éta jarðarber og rápa í búðum.

En mín reynsla er nú reyndar sú að Júní mánuður hérna í danmörku er svolítill karakter. Yfirleitt ekkert spes mánuður veðurfarslega séð. En hann fer nú vel af stað þannig að það er um að gera að halda í vonina!

Ætla nú samt að reyna að væla í kennurunum og fá að komast aðeins fyrr heim. Finnst þetta ekki alveg eðlilegt. Þetta er "international" skóli með einhverjum 80 þjóðernum og fólk vill komast heim til sín. Læt það vera þegar kennsla er út júní, eða allavega meiri hlutann af júní en ekki að hafa kennslu fram í júlí! Tala nú ekki um að það er kennsla eftir prófið. Hingað til hefur maður farið í próf og það er lokahnykkurinn á önninni en núna er kennsla 3 vikum eftir próf? Vottafokk?



En já, pirringur dagsins sem sagt sá að ég komist ekki heim fyrr en eftir mánuð. Sumsé, tveggja mánaða fjarvera - greeeeiiiittt!



En set smá fyndið hérna í lokin. Fróði (beagle fyrirbærið okkar) á það til að vera pínu þrjóskur. Ef hann ætlar sér eitthvað þá skal honum takast það, þó að það kosti hann lífið. Það þýðir ekkert að ætla að lesa sér til um Beagle í hundabókum því þetta er ekki hundur. Bara eitthvað thing.

Hann á það til að reyna að strjúka og það tekst stundum, en hann er samt oftast í bandi þannig að hann kemst nú ekki langt...
Í gær reyndi hann samt að hoppa yfir grindverkið og gat það. en fattaði þá að hann komst ekkert lengra...!
Sjá mynd..


2.6.08

Sumarið er tíminn!

Bara nokkra myndir af 30 stiga hitanum sem var hérna í gær. Dísess kræst hvað var heitt. Stefnir allt í það sama í dag, allavega dó ég næstum úr hita í morgun þegar ég rölti í skólann. Og ekki er ég mikið klædd!!

Tanaðist í drasl í gær. Klúðraði því samt smá með því að fá heimskuleg för. Klikkaði líka á því að liggja á maganum þannig að ég er eins og Homeblest dökk framaná og ljós aftan á. Mjög svo töff.

Neyðist sem sagt til að fara á ströndina eftir skóla og lesa í skólabókum til að jafna út brúnkuna. Hræðilega námsmannalíf!!!

:)


Fór uppí 40 stig á pallinum

Halakörturnar voru sprækar! Enda komnar með framfæturna!

Hengirúmið í garðinum

Eyjólfur er ekki hrifinn af sólböðum.

Fróða fannst heitt