Já, þýðir víst lítið að ergja sig á þessu.
Ef ég mæti samt manneskju sem er í Sonofon peysu þá mun ég líklegast hrækja á viðkomandi.
Svanhildur kom til Horsens á laugardagskvöldið og var planið að merenera sig aðeins í hvítvíni, borða góðan mat og slúðrast.
Varð eitthvað lítið úr hvítvínsdrykkju (kræst, skrifaði fyrst hvítlauksdrykkju!) og þetta með góða matinn var eiginlega á mörkunum. En okkur tókst nú að blaðra þarna til klukkan 12 um kvöldið þannig að þetta var ekki alslæmt. En næst verður farið á LaTasca, fröken Svanhildur!
Ég er enn með kvef og drullu. Þvílíkar hellur og höfuðverkur sem fylgir þessu. Vona að þetta fari að klárast, enda komin vika síðan ég fór að hósta og þetta er eitthvað sem ég nenni ekki að hafa, sérstaklega ekki í flugi!!
Annars er lítið að frétta. Styttist sem betur fer í heimkomu. Held að geðheilsan batni svolítið þegar maður loksins kemst heim. Er orðin pínu pirruð á þessu grasekkjulífi og held að það sé alveg skiljanlegt. Hundfúlt að vera svona langt í burtu.
En nýja mottóið mitt er "þetta gæti verið verra" svo það er bara að halda áfram að líta á björtu hliðarnar á þessu öllu! Ekki nema 11 dagar í að ég komi heim svo það styttist.
Villi líka fluttur heim. Búinn með árið sitt hérna í Århus, svo það var enn einn sem maður þurfti að kveðja. Vill nú samt til að ég kemst nú ekki hjá því að hitta hann í sumar - á ættarmóti og hinum ýmsu fjölskylduviðburðum í Grundarfirði svo ég grét nú ekki mjög lengi. Langaði samt mest að fara með honum heim eins og upphaflega planið var!!
Bumbulína Gummadóttir hefur tekið frænku sína aðeins of alvarlega þegar ég talaði um það fyrir stuttu að hún og Bumbus Óskarsson ættu ekki að láta bíða eftir sér, svo ég gæti séð þau áður en ég færi út aftur.
Hún kemur í heiminn á morgun og ætla ég nú bara að krossa putta og tær fyrir að það gangi allt saman vel.
Alveg vissi ég að þetta væri stelpa! Dí hvað ég er orðin góð í að getta á rétt kyn!
3 ummæli:
takk fyrir kvöldið skvís :) ég skal ekkert mótmælta la tasca næst ;)
og til hamingju með litlu frænkuna :)
ég fór á la tasca í gær með stjána... ummmm hvað það var gott ;)
... skil nú ekki alveg hvað þú ert að blogga til þess að bölva einhverri peysu? haha þú ert stórfurðuleg, en reyndar eru það engar nýjar fréttir!;) á svo ekki að bjóða mér í heimsókn í búið á Grundarfirði í sumar? skal koma með kindafóður og nýjan jogginggalla handa þér (þú verður nú að vera "hipp";))
Skrifa ummæli