27.2.12

Litlir lampar á lækjarbakka..

Ég er alveg ótrúlega laumu skotin í þessum lömpum sem fengust í Kisunni hérna í "denn". Fást víst núna í GK Reykjavík - kannski maður ætti að fara þangað og kíkja á þessi krútt. Veit samt ekki hvort mér finnist þetta vera eitthvað sem ég myndi kaupa og hafa í stofunni, en þeir eru alveg dásamlegir inní barnaherbergi. Ef ég ætti börn þá væri sennilega heill her af bömbum og sveppum í herberginu hjá þeim. Kannski Hrappur fíli svona lampa... ;)


Fín kanína






Auðvitað fann ég frosk, mjög viðeigandi






Sveppur myndi sóma sér vel í glugga






Ég er með uglusýki, sjáið bara þessa fallegu snæuglu :)






Bambi litli








Myndirnar eru fengnar í láni hjá google.

26.2.12

Endurvinnsla

Sá þetta hér um daginn hjá þessari nýju spreyvinkonu minni og fannst þetta frábær hugmynd. Ég var með krukku undan ilmkerti sem ég var búin að þvo og langaði að nota í eitthvað en vissi ekki alveg hvað. Svo datt mér í hug að blúnduspreyja krukkuna og nota sem sprittkertastjaka.




Þannig að ég fann til krukkuna góðu.



Fann svo til blúndubol sem ég átti og var frekar lítið notaður, skil það ekki.. :)



Tróð krukkunni í ermina, klippti til og bjó mig undir að skokka útí bílsskúr að spreyja. En..



Svo var þetta eitthvað bara svo sætt saman að ég ætla að hafa krukkuna með blúnduerminni á í smá tíma. En engar áhyggjur, þetta verður spreyjað - bara svona þegar ég nenni að fara útí kalda bílskúrinn minn :)

23.2.12

Gamalt verður nýtt

Ég er sjúk í uglur. Finnst þær eitthvað svo fallegar og auðvitað viskulegar. Mér áskotnuðust þessar litlu krúttuglur fyrir ekki svo löngu en vissi ekki alveg hvað ég gæti gert við þær - fílaði ekki alveg litinn á þeim. Þær voru með rauð augu þegar ég tók þær að mér en ég var nú búin að tússa með svörtu yfir það :)

Skellti þeim á gamla mogga sem ég var búin að breiða út á eldhúsgólfið - bílskúrinn henntar sennilega betur í svona verkefni en hann var svo fullur af bíl að ég nennti ekki að vesenast þar fyrir þetta smáræði. Smá svart sprey og voila!





Allt annað að sjá þær greyin. Nú fá þær líka að kúra á einhverjum góðum stað þegar þær eru orðnar þurrar :)