7.12.08

Jólakortadrama

Jæja, kom svo í ljós að Jóni Pétri finnst hallærislegt með meiru að við förum að senda út jólakort saman. Þeir Ross eiga greinilega meira sameiginlegt en ég hélt, því ég er löngu komin með lykla af íbúð og bíl.
Ég stakk svo uppá að við myndum senda út kort með mynd af bílnum hans (Rottunni* sem hann keypti sér sem vinnubíl og er búin að eyða öllum sínum frítíma í að dúlla við síðan) svona sem málamiðlun. Honum fannst ég ekki fyndin.

Annars eru bara 4 dagar í heimferð. Fer ekki vestur fyrr en 20 des ca. því ég er að fara að hjálpa Þórdísi aðeins í Friis og co. Gaman að því.
Svo það ætti að vera tími til að hitta einhverja í Reykjavíkinni.

4.12.08

Jól

Gott að ég "kem frá" Grundarfirði. Samkvæmt þessu er nefninlega bara snjór í Ólafsvík. Örugglega sól og blíða í Grundó eins og vanalega.

Það er annars sól hjá mér. Í alvörunni sko. Eða var í dag að minnsta kosti. Núna er bara myrkur, enda klukkan að verða hálf þrjú. Ég bara datt í smá les og er núna að plotta smá með Villa Mágkallinum mínum á msn. Erum svo flippuð.

Búin að ákveða hvar jólin verða. Þau ætla að vera í Grundarfirði þetta árið, nánar tiltekið á Grundargötu 69. Verðum bara tvö heima (ég og Jón Pétur) í megakósí rólegheitum. Fólk er nú eitthvað að hafa áhyggjur af því að það verði einmannalegt hjá okkur og svona, en ég hef nú enga trú á því. Ég er nefninlega skemmtilegri en margir halda.
Hinsvegar held ég að við getum alveg ákveðið núna að við verðum með annari hvorri stórfjölskyldunni á næsta ári, þar sem ég hef fengið það stórkostlega hlutverk að sjá um jólamatin.
Er að pæla í að biðja einhverja í tengdafjölskyldunni að hafa ríflegt í jólamatinn því það mun verða mjög líklegt að við birtumst á tröppunum hjá þeim, sársvöng eftir að mér tekst að klúðra hamborgarahryggnum á einhvern skemmtilegan hátt, sem á ekki að vera hægt.
Við ætlum svo að koma í bæinn á jóladag og soga í okkur smá menningu. Eða menningu og ekki menningu, ætlum í hangikjöt og laufabrauð á S1 og örugglega slatta af jólaboðum.
Og passa Auði krúttrassgat á annan í jólum.

Áramótin eru óráðin. Ég á flug klukkan 8.00 á nýársmorgun svo það er spurning hvað við gerum.

Í sambandi við jólakort. Þá má senda það bara strax til Grundarfjarðar (ef þið ætlið að senda mér/honum/okkur jólakort yfir höfuð), þar sem ég fer til Íslands eftir viku og verð ekkert aftur í Danmörku fyrr en í janúar.

Jón Pétur Pétursson
Kristín Alma Sigmarsdóttir
Grundargata 69
350 Grundarfjörður

Það er ennþá óráðið hvort þið fáið jólakort frá mér/okkur. Ég er að reyna að fá Jón Pétur til að senda út kort með mynd af okkur með jólasveinahúfu. Gengur ekki vel. Skil þetta ekki :)

2.12.08

Eigið góða aðventu, elskin mín!


Ekki fyrir löngu, á mælikvarða jólanna, kom uppá svolítið vandamál.

Jólasveinarnir voru flestir komnir til byggða að sinna sínum uppáhalds erindum. Í helli sveinanna voru hins vegar veikindi og kertasníkir sem síðastur kemur á aðfangadag gekk illa að fá aðstoð við að undirbúa sig til ferðar.

Það styttist í að sveinki þurfti að drífa sig af stað, hann var orðinn frekar stressaður. Grýla kom í heimsókn sem hafði ekki önnur áhrif en að stressa sveinka enn meira upp. Hinir bræðurnir höfðu tekið vélsleðana semvoru í lagi og sá síðasti var bilaður. Hreindýrin voru uppi við Kárahnjúka og hreindýrasleðinn hafði ekki fengið neitt viðhald í 17 ár.

Með nokkurfarlama hreindýr, fyrir sleðanum, sem ekki nenntu í burt fór sveinki aðhlaða á sleðann sem brast undan þunganum og allt fór út um allt. Kertasníkir æddi inn til að fá sér hálfkaffi (viskí og kaffi).
Hann komst að því að einhver hafði drukkið viskíið og ekkert annað var til. Kaffibollinn fór í gólfið og brotnaði þannig að brotin fóru um allt gólf. Þegar hann ætlaði að sópa sá hann að mýsnar höfðu nagað hárin af kústinum. Þá er bankað á hellisdyrnar, í brjáluðu skapi strunsar sveinki til dyra. Fyrir utan stendur engill með jólatré. "Hvar vilt þú að ég setji tréð?" spyr engillinn.....



Og þannig kom það til, vinir mínir, að engillinn situr á toppi jólatrésins

1.12.08

Gott þið höfðuð ekki miklar áhyggjur af fatavandræðum mínum á föstudaginn. Ég endaði á að fara sæmileg til fara og reddaði rauðadæminu með því að fara með rauða tösku með mér. Seinna um kvöldið var ég svo komin með rautt pakkaskraut á ennið, borða um hendina og einhverja ægilega aðventuskreytingu í hárið. Vann svo fagurgræna prjónavettlinga í pakkaleiknum og arkaði stolt með þetta allt í bæinn og var þar fram til klukkan 5 um morguninn.

Sérdeilis skemmtilegur jólafrokost þar sem ég kom öllum á óvart (mér sjálfri þó mest) og drakk bekkjarbræður mína alla með tölu undir borðið. Ákavíti rúlar. Er mikið stolt af þessu og hef sagt hverjum sem vilja og vilja ekki heyra frá þessum miklu gleðitíðindum.

Þetta var minn fyrsti julefrokost frá því ég flutti hingað og þótti mér ákaflega skemmtilegt að aðaldæmið þarna var lifrakæfa á rúgbrauð! Danir éta þetta daglega, skildi ekki alveg af hverju þeir hafa þetta með í julefrokostinum, en komst að því þegar þetta var borið fram. Lifrakæfunni hafði verið hvolft úr álbakkanum á eldfast fat, sett bacon ofaná, sveppir á kanntinn og inní ofn.
Talandi um að lifa á brúninni!


Endaði aftur í bænum á laugrdaginn og var það öllu sveittara djamm þar sem ég endaði með typpateygjuna hennar Ágústu á hausnum og tók Tjernobyl barnet intenst á dansgólfinu á Hekken.
Skemmtilegt það.

Það fer svo nokkuð fáum orðum um sunnudaginn. Ég svaf. Enda gömul kerling.


Jæja, communication að byrja. Ekki nema 4 tímar af Helle Svendsen. Epli augna minna :)