2.12.08

Eigið góða aðventu, elskin mín!


Ekki fyrir löngu, á mælikvarða jólanna, kom uppá svolítið vandamál.

Jólasveinarnir voru flestir komnir til byggða að sinna sínum uppáhalds erindum. Í helli sveinanna voru hins vegar veikindi og kertasníkir sem síðastur kemur á aðfangadag gekk illa að fá aðstoð við að undirbúa sig til ferðar.

Það styttist í að sveinki þurfti að drífa sig af stað, hann var orðinn frekar stressaður. Grýla kom í heimsókn sem hafði ekki önnur áhrif en að stressa sveinka enn meira upp. Hinir bræðurnir höfðu tekið vélsleðana semvoru í lagi og sá síðasti var bilaður. Hreindýrin voru uppi við Kárahnjúka og hreindýrasleðinn hafði ekki fengið neitt viðhald í 17 ár.

Með nokkurfarlama hreindýr, fyrir sleðanum, sem ekki nenntu í burt fór sveinki aðhlaða á sleðann sem brast undan þunganum og allt fór út um allt. Kertasníkir æddi inn til að fá sér hálfkaffi (viskí og kaffi).
Hann komst að því að einhver hafði drukkið viskíið og ekkert annað var til. Kaffibollinn fór í gólfið og brotnaði þannig að brotin fóru um allt gólf. Þegar hann ætlaði að sópa sá hann að mýsnar höfðu nagað hárin af kústinum. Þá er bankað á hellisdyrnar, í brjáluðu skapi strunsar sveinki til dyra. Fyrir utan stendur engill með jólatré. "Hvar vilt þú að ég setji tréð?" spyr engillinn.....



Og þannig kom það til, vinir mínir, að engillinn situr á toppi jólatrésins

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Crazy draumur Kristín, þú verður að farað hvílast meira á nóttunni.
Villi

Nafnlaus sagði...

Loksins kom eitthvað fallegt til að lesa...gleymdi mér alveg frá krepputali og leiðindum.
Takk elsku stelpan mín...alltaf yndisleg.
Kveðja frá ömmu Stínu.....og afa Minna

Nafnlaus sagði...

hahahahahah
Iris