1.12.08

Gott þið höfðuð ekki miklar áhyggjur af fatavandræðum mínum á föstudaginn. Ég endaði á að fara sæmileg til fara og reddaði rauðadæminu með því að fara með rauða tösku með mér. Seinna um kvöldið var ég svo komin með rautt pakkaskraut á ennið, borða um hendina og einhverja ægilega aðventuskreytingu í hárið. Vann svo fagurgræna prjónavettlinga í pakkaleiknum og arkaði stolt með þetta allt í bæinn og var þar fram til klukkan 5 um morguninn.

Sérdeilis skemmtilegur jólafrokost þar sem ég kom öllum á óvart (mér sjálfri þó mest) og drakk bekkjarbræður mína alla með tölu undir borðið. Ákavíti rúlar. Er mikið stolt af þessu og hef sagt hverjum sem vilja og vilja ekki heyra frá þessum miklu gleðitíðindum.

Þetta var minn fyrsti julefrokost frá því ég flutti hingað og þótti mér ákaflega skemmtilegt að aðaldæmið þarna var lifrakæfa á rúgbrauð! Danir éta þetta daglega, skildi ekki alveg af hverju þeir hafa þetta með í julefrokostinum, en komst að því þegar þetta var borið fram. Lifrakæfunni hafði verið hvolft úr álbakkanum á eldfast fat, sett bacon ofaná, sveppir á kanntinn og inní ofn.
Talandi um að lifa á brúninni!


Endaði aftur í bænum á laugrdaginn og var það öllu sveittara djamm þar sem ég endaði með typpateygjuna hennar Ágústu á hausnum og tók Tjernobyl barnet intenst á dansgólfinu á Hekken.
Skemmtilegt það.

Það fer svo nokkuð fáum orðum um sunnudaginn. Ég svaf. Enda gömul kerling.


Jæja, communication að byrja. Ekki nema 4 tímar af Helle Svendsen. Epli augna minna :)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þú varst líka bara sæmileg til fara á lau... veit ekki hvað þú ert að kvarta ;)
gott kvöld þarna á lau :) hehe
svanhildur

Nafnlaus sagði...

kann vel við þessa mynd

Nafnlaus sagði...

Ég ætlaði að hafa áhyggjur af fatavændræðunum þínum en varð bara svo fúll þegar þú sagðist í færslunni fyrir neðan ekki ætlað gefa neinum jólagjafir. Ég var nebbla búinn að kaupa rugl dýra skó og einhver sérlega rándýr föt við handa þér.
Villi