Jæja, kom svo í ljós að Jóni Pétri finnst hallærislegt með meiru að við förum að senda út jólakort saman. Þeir Ross eiga greinilega meira sameiginlegt en ég hélt, því ég er löngu komin með lykla af íbúð og bíl.
Ég stakk svo uppá að við myndum senda út kort með mynd af bílnum hans (Rottunni* sem hann keypti sér sem vinnubíl og er búin að eyða öllum sínum frítíma í að dúlla við síðan) svona sem málamiðlun. Honum fannst ég ekki fyndin.
Annars eru bara 4 dagar í heimferð. Fer ekki vestur fyrr en 20 des ca. því ég er að fara að hjálpa Þórdísi aðeins í Friis og co. Gaman að því.
Svo það ætti að vera tími til að hitta einhverja í Reykjavíkinni.
12 ummæli:
Sá bílinn hjá mínum uppáhaldstengdasyni og þetta er sko ekkert smá flott vinna hjá honum. Og allt til þess að prinsessan gæti haft bíl í bænum Ekki gera grín af JP...þeir gerast ekki betri..:o)
Mamman
ég ætla samt að senda ykkur jólakort saman.. er það hallærislegt?
kv.
Brekamamma
hlakkar til að hitta þig, ég er búin i prófum 15 jan og eg heimta kaffihús og svona kosytime:)
helgakemp
Æ Æ! Meir að segja búin að skrifa á jólapakkann til KAS og JP.
Nú ligg ég í því....
Bestu kveðjur frá ömmu Stínu
Finst þessi skamstöfun á nöfnunum ykkar svo skemmtó....
KAS
JP
Hægt að velta þessu fyrir sér á kvöldin ef manni leiðist og svona...
JAS
PAK
KP
PAS
SAP
SAK
JAK
SJAK
JASK
PASK
KASP
Æi sorry sé þig í sundi á morgun verður nú að taka einn túr áður en þú ferð heim
kv Íris
Mamma: Já ég veit. Mátti bara til með að bögga hann aðeins. Þetta er reyndar mjög vel gert og voða fínt. Ekki frá því að bíldruslan sé flottari núna en hún var :þ
Brekamamma: Já, ég held það sleppi alveg.
Helgamín: Hlakka líka mikið til að hitta þig, spurning um að reyna að ná einu Frinds sófatusku kvöldi með fullt af lakkrís...mmmm Good times :)
Er samt mega fúl að við getum ekki haldið í hefðina okkar með að spila á jólanótt :( Það var best í heimi!
Amma: Iss, það sleppur alveg fyrst það ert þú ;)
Íris: Leiðist þér mikið?
Júbb, sjáumst í sundinu í kvöld :)
Þú ert krútt frænka !!
Nú er Kamilla Ylfa orðin eins árs og hefur enn ekki hitt hana Kristínu Ölmu frænku sína og kvartar sáran.
Þannig að ef þig langar í kaffibolla og spjall þá ertu velkomin til okkar :):)
ég skal bara halda jólin með ykkur! :) get þá loksins fengið að kúra á´milli:D
Helga
á ekkert að fara að koma með krassandi sögur úr kringlunni ;)
ættir nú ekki að eiga í vanda með að blogga um skemmtilega kúnna,en kannski er best að vera ekkert að setja það á netið:p
Helga
Hehehehe.. Mér fannst þetta nú bara snilldarhugmynd að setja mynd af bílnum. Ég man í fyrra fengum við Bjarki svo margar barnamyndir að við vorum ákveðin i að senda fólki bara mynd af okkur ( svona í djóki ) næstu jól.. hehe en það fór eins og það fór.lítið kríli kom í staðin. En ég þakka gott kaffiboð og tek þig á orðinu.. Sennilega í sumar þá :)
kv Birna Sif
Jú, nú gengur þessi bloggleti ekki lengur. Verð að fara að þrykkja í eina færslu.
Birna: Ég stakk einmitt uppá því að við myndum bara skella í eitt stykki barn fyrir næstu jól og málið væri dautt. Það var púað á mig.
Ég hef ár til að finna út hvernig jólakortin eiga að vera.
Takk kærlega fyrir okkur á gamlárs. Væri ekki vitlaust að gera þetta aftur.
Skrifa ummæli