Ætla að bjarga ykkur frá jólakortaumræðunni. Eins og þið hafið tekið eftir þá tókst ekkert voða vel að fá það í gegn að senda fyndin, hipp og kúl jólakort í ár. Nema auðvitað þið séuð bæjarstjóri Grundarfjarðar eða einhleypi skrifstofustjórinn, þá urðuð þið líklega vör við kort með mynd af kirkjunni í Grundarfirði. Hipp og kúl, segi ég og skrifa!
Við þökkum samt kærlega fyrir öll yndislegu kortin sem við fengum frá ykkur. Þau fóru öll með tölu uppá vegg og hanga þar enn. Munu líklega vera þar þangað til jólakort 2009 fara að berast. Á næsta ári sný ég vörn í sókn og sendi ykkur falleg og fyndin kort.
Ég er komin til DK aftur, heil á húfi eftir ótrúlega góða dvöl á Íslandinu góða.
Aðskilnaðarkvíðinn var alveg hræðilegur í þetta skiptið. Var með kökkinn í hálsinum og tárin í augunum í viku. Persónulegt met. Er nú samt öll að koma til núna, nema þegar ég fattaði að ég hafði gleymt öllu íslenska namminu sem ég keypti í krónunni. Djís hvað ég varð pirruð. Ætlaði að eiga þetta í prófatörninni til að halda geðheilsunni. Núna er ég gráti nær og sakna Nóa konfektsins ógeðslega mikið. Verð víst bara að láta Haribo viðbjóðinn duga, bið bara fólk að forðast mig eins og heitan eldinn þangað til 15 janúar. Er stygg.
Bauð mér í föstudagspizzu til mömmu í gær. Það var samt reyndar bara útaf því að Gúmmípabbi flaug til Doha í Qatar í nótt og því óvíst hvort við sjáum hann aftur, þannig að það var famelíustund í gærkvöldi...
Við erum öll voða spennt og hlökkum mikið til að eyða sumrinu á sólarströnd í Doha (vonandi)!
Annars er bara próflestur að hefjast og allir á haus í skólanum. Voða gott að vita að maður er ekki einn að standa í prófum í janúar. Ég er samt ofsa dugleg við að finna mér eitthvað annað að gera heldur að en lesa en þetta er samt allt að koma hjá mér. Ég hef mestar áhyggjur að ég verði felld/lækkuð um einkunn fyrir dönskuna mína, enda tala ég ekki einhverja hæstaréttardönsku þó ég kunni að segja aðeins meira en for helvede og bolle.
Hlýtur að hafast á endanum.
Ætti kannski að fá peysuna sem JP fékk í jólagjöf lánaða. En á henni stendur einmitt "þetta reddast".
Það eru myndir frá Íslandi á Fésinu. Þið sem eruð skráð þangað getið skoðað, en aðrir ekki held ég.
3 ummæli:
ég er líka í prófum í janúar, eða þeas einu prófi. Þú tekur þetta með stæl vinkona!
Helga Lovísa
Vei!!
Já við mössum þetta..Vonandi!
mikið var... ;)
sé þig vonandi sem fyrst... þó þú sért stygg... ég er líka stygg þessa dagana... omg ef einhver myndi hitta okkur saman... ble... er ekki alveg með hausinn í sambandi... later
Skrifa ummæli