7.1.09

Ég er hálf rotin heima hjá mér í náttbuxum og með hárband. Ofsa töff. Læri fyrir próf, eða þykist gera það en er líka ofsa dugleg við að finna mér annað að gera.

Það hefur líklega aldrei verið eins hreint hérna og er núna. Ekki rykörðu að sjá, ekkert leirtau í vaskinum og nánast tóm þvottakarfa. Hér er kveikt á kertum á hverju kvöldi, því ég held að það hjálpi mér við það að læra - nema núna eru kertin að verða búin og ég þarf einhvern til að fara í IKEA fyrir mig og kippa með eins og nokkrum pökkum.

Mynduð þið ekki líka segja að það væri alveg bráðnauðsynlegt að greiða sér svona í próflestri? Mér tókst í það minnsta að telja mér trú um að þetta væri lykillinn að velgengninni..

Annars gengur fínt. Eða sæmilega. Skammdegisþunglyndið alveg að fara með mig. Ég var búin að finna dálítið gott orð á þetta, en man ekki lengur hvað það var. Versta er að ég fíla þetta skammdegisþunglyndi alveg í ræmur. Sofa bara útí eitt og vera bara inni í hlýjunni.. Alveg ég.

Engin ummæli: