17.12.12

iPhone hulstur

Ég er búin að vera leita mér að fallegu hulstri utan um símann minn. Hingað til hef ég notað svokallaða bumpera en langaði núna að fá mér fallegt hulstur. Ég fann þessa síðu um daginn og heillaðist alveg. Rosalega falleg hulstur en mér sýnist því miður ekki vera nóg vörn fyrir framhlið símans, því er ég ekki alveg viss hvort ég eigi að fá mér svona. Ekki nógu gott ef hulstrið gerir ekkert gagn ef maður missir símann í gólfið.
Ef ég panta mér þá verður annað hvort þessara fyrir valinu:



16.12.12

Tom Dixon

Kopar ljósið eftir Tom Dixon myndi setja punktinn yfir i-ið í litla borðkróknum okkar í eldhúsinu - á eftir Eames stólunum ímynduðu að sjálfsögðu! Það kostar ekkert að láta sig dreyma :)



Mjög fallegt. Pant samt ekki ryksuga/þrífa þarna!




15.12.12

Fjörðurinn fagri

Við Hrappur fengum okkur gönguferð í góða veðrinu í gær og ég mátti til með smella af nokkrum myndum á símann minn þar sem útsýnið útá fjörðinn var svo dásamlegt :)







14.12.12

Ef ég ætti svona dáldið marga peninga sem ég þyrfti að eyða þá myndi ég skunda í Pennann og versla mér smá. Þeir eru með jólatilboð á Eames stólunum til dæmis.
Myndi alveg vera til í tvo Eames stóla með tréfótunum við eldhúsborðið mitt. Veit bara ekki alveg hvort ég myndi fá mér hvíta, dökkgráa eða svarta, þarf að hugsa það betur áður en ég fer og versla fyrir ímynduðu peningana mína ;)



13.12.12

Svefnrugl

Ég veit ekki alveg hvað er í gangi með svefninn hjá mér þessa dagana. Annað hvort er aldurinn farinn að segja til sín eða þá næturvaktirnar sem ég er búin að vera taka uppá síðkastið. Ég hallast að þessu síðarnefnda.
Allavega þá vaknaði ég klukkan 06.00 og gat ekkert sofnað aftur svo ég ákvað að fara bara framúr og taka daginn snemma. Brjóta saman þvott og fá mér svo góðan morgunmat. Hella uppá gott kaffi og kveikja á kertum. Núna ætla ég að baka eins og tvær smákökusortir og nýta daginn í að jólast aðeins hér heima :)


12.12.12

Hár

Ég er með hár á heilanum þessa dagana. Ég var með mjög sítt hár en lét klippa mig stutt síðustu jól því ég var komin með algjöran viðbjóð af síða hárinu og það var líka orðið svo skemmt eftir litanir og "hitanir". Ég ákvað því að hætta alveg að lita á mér hárið og hef ekki litað það síðan í mars og er því með fína rót sem er komin niður að eyrum svo það eru bara nokkur ár þar til allt hárið á mér verður með mínum náttúrulega lit - JEIJ!

Hér eru nokkrir hlutir sem mig langar í (bráðvantar!!) og á sennilega eftir að fjárfesta í einhverju af þessu eftir jólin. Borgar sig víst aldrei að kaupa neitt rétt fyrir jól.

Bókin "Hárið" eftir Theodóru Mjöll. Fletti þessari bók um daginn og fannst margt áhugavert í henni og margar greiðslur þarna sem ég gæti hugsað mér að prufa. Svo er líka fróðleikur um umhirðu hársins.

 Carmen rúllur. Á reyndar eftir að athuga hvort að svona leynist ekki í einhverjum skápum hjá konunum í fjölskyldunni. Þetta er örugglega til á mörgum heimilum og ekki í notkun.

 Krullujárn. Mig langar í krullujárn sem er ekki með svona klemmu eins og mörg járn eru með í dag. Á þessu er til dæmis engin klemma svo þú bara vefur lokknum utan um og heldur þar til það er komin krulla. Ætlaði að kaupa svona í London í mars en hætti við, sé enn eftir því!

Síðast en ekki síst er gott sléttujárn. Ég er búin að ætla kaupa mér almennilegt sléttujárn í þónokkrun tíma en læt aldrei verða að því. Nú er ég búin að óska mér svona í jólagjöf frá Byggingarfræðingnum en ef það klikkar eitthvað þá verður nýtt og gott sléttujárn keypt strax á nýju ári þar sem mitt er alveg úr sér gengið eftir margra ára notkun :(




11.12.12

Mikil ósköp sem sundferð getur bjargað deginum hjá mér. Ég var eitthvað agalega öfugsnúin í dag svo ég ákvað að tríta mig og skella mér í sund inní Hólm og kom endurnærð til baka. Það er bara eitthvað svo ótrúlega notalegt við að fara í sund, sérstaklega í svartasta skammdeginu. Synda nokkrar ferðir, liggja í pottinum og hlusta á gamla menn tala um pólitík og bókmenntir og bara anda að sér fersku lofti. Maður (allavega ég) nær svo svakalegri slökun og líður bara eitthvað svo vel þegar maður kemur uppúr. Kannski er ég bara svona skrýtin. Mér hefur alltaf fundist gott að fara í sund en held samt að ég kunni extra vel að meta sundlaugarnar okkar hér á Íslandi eftir að hafa búið í DK í mörg ár.
En áður en ég fór í laugina þá kíkti ég í eina búð sem selur House Doctor vörurnar. Sá nú margt fínt og fallegt en hef ekki getað hætt að hugsa um þennan púða sem ég sá. Hann er svo fínn og á svo góðu verði. Auðvitað keypti ég hann ekki en er búin að hugsa um hann alveg síðan ég kom heim. Spurning um að bjóða Byggingarfræðingnum í sund þegar hann kemur í land ;)


Agalegt krútt


10.12.12

Kókoskúlur

Ég hef ekki fengið kókoskúlur í mörg ár. En ég var ansi dugleg við að búa svoleiðis til þegar ég var lítil, enda auðvelt að gera, þarf ekkert að baka og smakkast mjög vel. Svo fór ég í heimsókn til Gumma frænda og Kristínar um daginn og þá bauð hún Auður litla dóttir þeirra mér uppá kókoskúlur og ég hef ekki getað hugsað um annað síðan. Í gær ákvað ég að búa til nokkrar kúlur og hef ákveðið að gera aðra uppskrift núna á aðventunni til að eiga í frystinum yfir jólin því ég hef grun um að skammturinn sem ég gerði í gær eigi eftir að klárast fljótt. Mér finnst þessar kúlur betri en besta konfekt. Hér kemur uppskriftin sem ég notaði.

Kókoskúlur
100 g smjör
1 dl sykur
3 dl haframjöl
2 msk. kakó
½ tsk. vanilludropar
2 msk. kalt kaffi

Setjið allt saman í skál, blandið saman og rúllið í litlar kúlur. Veltið síðan kúlunum upp úr perlusykri eða kókos. Setjið kúlurnar í ísskáp í stutta stund.

Ég setti aðeins meira af kakó og kaffi því ég vil hafa kúlurnar mjög bragðmiklar. Svo skellti ég þeim í frystinn og geymi þær þar. Mér finnst þær bestar alveg ískaldar með góðum kaffibolla. Mæli með að þið prufið, tekur korter að útbúa þetta gúmmelaði :)


9.12.12

Ikea óskalisti

Þetta teppi er sjúkt, verð að eignast það!

Nýtt rúmteppi. Við eigum eitt en það er of stutt á rúmið okkar.

 Kommóða í svefnherbergið.


Motta í stofuna. Held samt að ég fái seint samþykki fyrir þessari.




Steypujárns pottur, vantar pott sem hægt er að setja inní ofn.


Að lokum væri ég til í að biðja um nýtt eldhús með nýjum tækjum. Hvíta innréttingu með gegnheillri borðplötu og spanhelluborði. Ég bið ekki um mikið.. ;)

7.12.12

Kona fer með hund til læknis

Eins og báðir sem lesa bloggið mitt (halló Rut og mamma!) vita þá skrifaði ég um það þegar ég beraði brjóstin fyrir ólæknalegan lækni um daginn. Þið getið lesið um þá hræðilegu lífsreynslu hér. Svo virðist vera sem ég ætti bara að hætta að fara á staði þar sem læknar eru. Það er orðið ansi slæmt ef dýralæknar eru orðnir "off limits" líka.
Ég fór nefninlega með Hrapp í "þriggja ára skoðun"(förum með hann í skoðun, bólusetningu og ormahreinsun einu sinni á ári) til dýralæknis í vikunni, ætlaði ekki með hann strax en þar sem hann var farinn að klóra sér svo mikið í eyrun þá grunaði mig að hann væri að byrja að fá eyrnabólgu og ákvað að drífa mig með hann og láta tjékka á eyrunum í leiðinni. Það passaði, dýrið var byrjað að fá í eyrun svo það var ekki hægt að bólusetja hann þannig að læknirinn ákvað að geyma bólusetninguna í smá tíma og setja hann á sýklalyf við eyrnabólgunni og gefa honum frekar sterasprautu til að hjálpa eyrunum og losa um bólgurnar í eyrnagöngunum. Allt í góðu. Nema hvað að þarna erum við búin að vera frekar lengi inni hjá lækninum og Hrappur orðinn frekar kvekktur á þessu öllu saman enda búið að vesenast mikið með hann, kíkja ofaní eyrun á honum, þreyfa hann allan og gefa honum ormalyfin svo eitthvað sé nefnt og ofaná allt þá var hann nýkominn úr klippingu og sennilega alveg kominn með nóg af svona veseni :) Jæja læknirinn gerir sig líklega til að sprauta sterunum í hann, klípur í bakið á honum og þá kippist hundurinn eitthvað við þannig að hún missir takið á sprautunni sem hendist uppí loft og lendir að sjálfsögðu á bólakafi í ristinni á mér!!! Þetta var eins og atriði í Mr. Bean eða einhverju álíka, en ekki bara venjuleg heimsókn til dýralæknisins á þriðjudegi..!!
Nú ég lippast niður úr hlátri, greyið dýralæknirinn heldur að ég sé hágrenjandi og horfir á mig með stórum augum og ég skellihlægjandi ofnaí skoðunarborðið með sprautuna standandi reisnarlega uppúr ristinni á mér. Hún sér væntanlega loksins að ég er að hlægja og tekur sprautuna úr ristinni á mér og svo hlógum við bara saman að þessu þegar hún var búin að fullvissa mig um að hún hefði ekki verið búin að sprauta neinu í hundinn þannig að það ættu hvorki að vera sterar né hundablóð í fætinum á mér. Það blæddi náttúrulega eins og ég veit ekki hvað svo blóðið var komið í gegnum sokkana mína og skóna - mjög góður dagur til að vígja ljósu Converse skóna mína!
Þau á dýralæknastofunni voru náttúrulega miður sín yfir þessu og sögðu að þetta hefði aldrei komið fyrir áður og allt það. Þau báðu mig líka um að láta sig vita ef ske kynni að sárið myndi bólgna eða eitthvað slíkt en það hefur ekkert verið um það. Ég sagði líka við þau að ég myndi hringja ef ég færi að gelta óvenju mikið. Svona er ég fyndin og sniðug... ;)
Það endaði nú samt með að Hrappur fékk sprautuna og útskrifaðist frá lækninum í bili með sýklalyf og fleira "góss" í poka og reikning uppá 18.500 krónur - Já það er mjög dýrt að eiga dýr, sérstaklega ef þau veikjast ;)

Þetta með sprautuna er eitthvað sem kæmi bara fyrir mig. Svo mér datt í hug að þið hefðuð gaman af þessum hrakförum okkar Hrapps.

Nýklipptur hjá dýralækninum :)

6.12.12

Kanilkerti

Tók mig til og föndraði smá í kvöld. Hafði séð þessa hugmynd á Pinterest í haust og ákvað að framkvæma hana núna fyrir jólin. Mér finnst fátt jólalegra en kanill og kanillykt svo þetta var alveg tilvalið föndur svona snemma í desember.

 Það sem ég notaði var: Kubbakerti, límbyssa, snæri og kanilstangir. Þessar kanilstangir eru bara úr næstu matvöruverslun. Eini gallinn við þær er að þær eru svo stuttar, enda ætlaðar til að nota í matargerð. Ég hef verið að svipast um eftir lengri stöngum en hef ekki fundið neitt svo ef þið vitið um einhverja búð sem selur langar kanilstangir megið þið endilega láta mig vita :)
Ég límdi svo bara stangirnar á kertið. Batt smá snæri utan um og voila!

Mér finnst þetta rosa fallegt og væri til í að gera nokkur svona í viðbót í fleiri stærðum og hafa saman í smá þyrpingu. Þetta er alveg í stíl við jólaskraut heimilisins, sem ber þess merki að heimilisfólkið hefur búið í mörg ár í Danmörku og Noregi. En við erum bæði mest fyrir svona "skandinavískar" jólaskreytingar. Ekki mikið um glimmer og pallíettur í okkar jólaskrauti :)
  Eins og þið sjáið þá ná stangirnar ekki alveg nógu langt að mínu mati þarna á stæðsta kertinu, kannski kæmi betur út að líma þær ofar á stærri kertin, ég verð að prufa það næst :)

 Svo er það rúsínan í pylsuendanum. Þegar kanilstangirnar hitna þá kemur svo góð jólalykt í húsið! En munið bara að fylgjast með þessu og passið að setja kertin á disk eða bakka því vaxið lekur út um allt þegar þið brennið kertið :)

29.11.12

Kvöldið...

Lalalaaa :)
Ég fór á svo frábæra jólatónleika í kvöld að ég bara verð að segja ykkur frá því. Ég er algjör sökker fyrir jólatónleikum og finnst þetta ómissandi partur af undirbúningi jólanna að skella sér með góðu fólki á tónleika. Nú í ár eru nokkrir söngvarar að ferðast um landið (kalla tónleikaferðalagið Jólin alls staðar) fyrir jólin og halda þessa dásamlegu tónleika. Þetta eru þau Guðrún Árný, Jogvan, Guðrún Gunnars og Regína Ósk. Þetta var bæði hátíðlegt og líka hresst og skemmtilegt - svo skemmir ekki fyrir að þau eru öll miklir húmoristar, við Rakel vinkona mín flissuðum allavega oft eins og smástelpur milli laga ;)
Tónleikarnir sem ég fór á voru þeir fyrstu í röðinni og voru haldnir í Ólafsvíkurkirkju. Ég veit að það verða tónleikar í Stykkishólmi á föstudaginn og svo veit ég ekki meira, en þið getið fundið ykkur miða á miði.is.

Ég fór í fötum á tónleikana og þar sem ég málaði mig og allt ákvað ég að smella af mynd. Ég er nokkuð viss um að ég fái ekki verðlaun fyrir þessar speglapósur mínar en þær verða duga. Kannski fáið þið aðra mynd á morgun því ég er að fara í klippingu - sé að það veitir svo sannarlega ekki af, er komin með algjöran ljónamakka :)

Speglapósa
Mary Poppins skórnir mínir :)

Trefill - Farmers Market
Peysa//Buxur - H&M
Bolakjóll (orðskrípi ég veit) - Forynja
Mary Poppins skór - Zara
Úr - DKNY
Hringur - gamall frá tengdó

27.11.12

Kókosolía

Ég veit að það eru alltaf allir að tala um hvað kaldpressuð kókosolía sé frábær en ég bara verð að gera það líka. Þessi olía hefur oft bjargað mér með svo margt, eins og núna þegar það er byrjað að kólna frekar mikið þá þornar húðin á mér rosalega og ekkert bodylotion dugar til að næra húðina. En ef ég ber á mig kókosolíu af og til þá helst húðin mín silkimjúk og ég verð ekki eins og slanga í hamskiptum um leið og það frystir. Ég klíni olíunni líka í hárið á mér reglulega og nota sem djúpnæringu, gerði mikið kraftaverk fyrir hárið á mér þegar ég var með mjög sítt og mikið litað hár. Núna set ég hana aðalega í hársvörðinn á mér og sef með hana yfir nótt, því hársvörðurinn á mér þornar líka eins og líkaminn í svona kulda - svo heyrði ég að Khloe Kardashian beri kókosolíuna í hársvörðinn til að fá þykkara og fallegra hár :) Einnig eru margar konur sem nota olíuna til að fjarlægja maskara og þar af leiðandi nudda henni vel í kringum augun og nota sem augnkrem í leiðinni.

Á þessu heimili er ein krukka af þessari dásemd á baðherberginu og ein í eldhúsinu. Því olíuna má líka nota í matargerð. Ég nota hana mikið þegar ég vinn með sykurmassa og svo set ég oft eina skeið útí hafragrautinn minn á morgnana :)

Mæli með að allir skelli sér á eina krukku eða svo.



Jólatré

Við erum búin að vera miklum pælinum með jólatré. Við höfum alltaf verið með ekta tré, en þar sem við verðum ekki heima milli jóla og nýárs þá erum við að hugsa um að sleppa því í ár. JP vill kaupa sígrænt jólatré, en ef við gerum það þá veit ég að það verður ekki aftur ekta tré hérna hjá okkur á jólunum og það finnst mér ómögulegt - jájá, ég er frekjudós en mér finnst ekkert voða jólalegt við tré sem þarf að setja saman. Sennilega er þetta uppeldið, en í minni fjölskyldu eru allir með alvöru tré.

Allavega þá sá ég þetta efni í IKEA. Doldið töff að hengja svona upp á vegg og raða svo gjöfunum fyrir neðan á aðfangadagskvöld... ;)


22.11.12

Smáatriðin skipta máli

Ég rakst á skemmtilega mynd á facebook síðu Epal í gær. Þar var búið að líma skrautlímband utan um sprittkerti sem voru svo sett í glæran kertastjaka. 
Þar sem ég er sjúk í skrautlímbönd og kerti þá varð ég að prufa. Ég hef sankað að mér þessum límböndum hér og þar uppá síðkastið og virðist alltaf kippa með mér einu ef þau verða á vegi mínum, þó ég hafi ekki neitt sérstakt hlutverk í huga fyrir þau blessuð.

Myndin frá facebooksíðu Epal
Safnið stækkar með hverri Reykjavíkurferðinni

Föndrið mitt :)
Það er líka hægt að nota rafmagnsteip, ég prufaði það líka og setti svart teip utan um tvö kerti. Það kom rosa vel út.
 Mér finnst þetta frábær hugmynd og þetta gerir furðu mikið fyrir annars venjulegt sprittkerti í glærum stjaka. Sé fyrir mér að þetta gæti til dæmis verið hluti af fallegum borðskreytingum fyrir veislur eða bara til að lífga uppá dimm vetrarkvöld :)
 Fljótlegt og ódýrt!



20.11.12

Jólapakki

Fékk "jólagjöf" um helgina frá Byggingarfræðingnum. Við vorum búin að ákveða að sleppa jólagjöfum til hvors annars í ár þar sem við erum að fara út til Danmerkur og ætlum frekar að fara með jólagjafapeninginn í H&M. En sumir eru sætir og ákváðu að gefa mér þennan. :)

Þetta er ekki ég samt ;)

13.11.12

Af því ég er svo mikil blúnda..



Þetta sett er nú bara úr H&M!





7.11.12

Jón í lit

Get ekki ákveðið mig hvaða lit ég eigi að fá mér af honum Jóni. Hallast mest að gylltum eða svörtum. Ástæðan fyrir að ég vil fá mér svona? Af því að mamma var alltaf með mynd af Jóni Sigurðsyni uppi á vegg þegar við bjuggum í Danmörku - börnin hennar skyldu sko ekki missa tengslin við Ísland.. ;)


5.11.12

Outfit of the day

Ég lét loksins verða að því að kaupa mér vínrauða flík. Er búið að langa í eitthvað í þessum fína lit síðan snemma í haust og lét loks verða að því þegar ég fann einn bol á 3.990kr - gjöf en ekki gjald!
Hef ekki verlsað mér mikið uppá síðkastið þar sem við erum að spara fyrir Köben, ætla aðeins að bæta í fataskápinn minn í þeirri ferð get ég sagt ykkur!
Allavega þá var ég í nýja bolnum þegar við fórum á Landnámssetrið að borða um helgina. Hann er nú bara mjög venjulegur en ég er svo léleg að ganga í litum að mér finnst þetta góð viðbót við annars frekar svartan fataskáp :)



Peysa og Buxur - H&M
Bolur -Blómsturvellir 
Síður hlírabolur - VILA
Skór - Zara
Úr - Triwa

Helgin

Dásamleg helgi að baki. Fórum með góðum vinum í Borgarnes og gistum á Icelandair hótel Hamri sem var mjög gott, alltaf gott að fara á hótel :)
Við fórum í mjög skemmtilegan leik sem gekk útá að leysa hinar og þessar þrautir. Við stelpurnar áttum meðal annars að finna Bjössaróló og taka mynd af okkur þar og kaupa trúðaís fyrir fullorðinn einstakling í Hyrnunni. Strákarnir þurftu að mynda mannlegan pýramída með tveimur öðrum, ganga um í fötunum sínum á röngunni og fleira fyndið.
Fórum út að borða um kvöldið á Landnámsssetrið og mér fannst maturinn ÆÐI en fræðingurinn minn var ekki á sama máli en við erum líka eins og svart og hvítt. Ég allavega mæli með þessum stað, en ekki fræðingurinn.. ;)

Að gefa manni trúðaís í Hyrnunni :)

Að finna Bjössaróló

Allur hópurinn úti að borða!


 Elsku litli Hrappurinn minn átti svo þriggja ára afmæli á laugardaginn. Hann eyddi afmælisdeginum í Ólafsvík hjá Ásdísi og fjölskyldu meðan við foreldrarnir höfum það huggulegt á hóteli og drukkum freyðivín :)