Ég veit að það eru alltaf allir að tala um hvað kaldpressuð kókosolía sé frábær en ég bara verð að gera það líka. Þessi olía hefur oft bjargað mér með svo margt, eins og núna þegar það er byrjað að kólna frekar mikið þá þornar húðin á mér rosalega og ekkert bodylotion dugar til að næra húðina. En ef ég ber á mig kókosolíu af og til þá helst húðin mín silkimjúk og ég verð ekki eins og slanga í hamskiptum um leið og það frystir. Ég klíni olíunni líka í hárið á mér reglulega og nota sem djúpnæringu, gerði mikið kraftaverk fyrir hárið á mér þegar ég var með mjög sítt og mikið litað hár. Núna set ég hana aðalega í hársvörðinn á mér og sef með hana yfir nótt, því hársvörðurinn á mér þornar líka eins og líkaminn í svona kulda - svo heyrði ég að Khloe Kardashian beri kókosolíuna í hársvörðinn til að fá þykkara og fallegra hár :) Einnig eru margar konur sem nota olíuna til að fjarlægja maskara og þar af leiðandi nudda henni vel í kringum augun og nota sem augnkrem í leiðinni.
Á þessu heimili er ein krukka af þessari dásemd á baðherberginu og ein í eldhúsinu. Því olíuna má líka nota í matargerð. Ég nota hana mikið þegar ég vinn með sykurmassa og svo set ég oft eina skeið útí hafragrautinn minn á morgnana :)
Mæli með að allir skelli sér á eina krukku eða svo.

3 ummæli:
Er það málið?
seturu bara puttana oní krukkuna og makar þessu á þig?
mig vantar einmitt eh gott til að taka maskarann af, klútarnir og kremin og ruslið eru ekki að gera góða hluti fyrir mig... ætli hrukkurnar fari líka?? :)
Jább. Ég reyndar set hana stundum á mig í sturtu líka svo ég verði ekki alveg löðrandi í olíu.
Hef ekki prufað sjálf með að nota hana sem augnfarðahreinsi en um að gera að prufa, verður örugglega mjög ungleg ;)
Kókosolía er líka snilld við sveppasýkingu í leggöngum.... hef ég heyrt :O/
Skrifa ummæli