30.9.05

Til Hamingju með Árin 10 Mamma og (Gúmmí)pabbi :)


Kv, Kristín Alma, Vilborg Unnur, Sigríður Soffía, Ingibjörg Elín, Eyjólfur og Fróði



Þau eru sem sagt búin að vera gift í 10 ár í dag..
Ég keypti mér náttbuxur fyrir nokkru síðan, sem er ekki frásögufærandi nema hvað þetta eru æðislegar náttbuxur. En um daginn þá var ég að brjóta þær saman (ohh ég er svo húsmóðurleg) og var svona að snúa þeim við rek ég augun í einhverja litla miða sem eru saumaðir inní brækurnar. Ég var ekkert að pæla í þessu fyrr en í fyrradag, þá sé ég hvað stendur á miðunum. Miðinn sem að var framan á þar var stórt "F" og stórt "B" aftan á. Og ég fór að pæla hvað í fjáranum getur þetta verið?!
Ég pældi ekki lengi og þá var ég komin með svarið...F-ið stóð auðvitað fyrir FRONT og B-ið náttúrlega fyrir BACK!
Sko só sorrý en hver er svona heimskur? Ég vil líka benda á að ég er búin að vera í buxunum rétt allan þennan tíma, þó að ég hafi ekki kíkt á miðana, er ég kannski bara svona rosalega gáfuð??

25.9.05

Er maðurinn eitt af sköpunarverkum Guðs?
Eða er Guð eitt af sköpunarverkum mannsins?
- Nietzsche

Fann þetta "kvót" á netinu og finnst þetta alveg þess vert að velta sér uppúr. Ég persónulega trúi því að Guð sé eitt af sköpunarverkum mannsins.
Bara alltof margt sem að bendir til þess að hann sé ekki til.
Mér finnst mjög skrýtið að maður eyðir öllum 8.bekk í kirkju og fermingarfræðslu til að læra um guð og jesú, svo fermist maður, alveg kominn á þá skoðun að guð og jesú séu cool og bara góðir gæjar. Jæja, maður lifir á þessu þangað til í 9. bekk þegar að maður lærir það í náttúrufræði að guð hafi ekki skapað heiminn, heldur hafi jörðin orðið til með miklakvelli og að dýrin og við hefðum bara þróast svona eins og við erum í dag.
Frekar skrýtið að það sé farið að þessum málum á þennan hátt. Eða það finnst mér allavega...

Jæja, útí léttara hjal.

Ég var að skoða mbl.is í gær (nótt á ykkar tíma) og sá að það voru -2 gráður í reykjavík, og snjór sumstaðar á landinu!
Ég væri löngu dauð ef að ég væri á íslandi, því að hérna á kvöldin fer hitinn niður í 22 stig og ef að við sitjum úti á kvöldin, þá er ég alltaf í þykkum peysum og með heitt kakó við hendina.
Skil bara ekki hvernig maður getur orðið svona háður þessum hita. Enda hef ég alltaf sagt að ég sé "dårlig Islending"!
Annars er ekki mikið að frétta frekar en fyrri daginn. Þau fóru í gær á einhvern svona búgarð to pick a pumkin, ég nennti ekki með, var ekki alveg að nenna einhverri svona ferð þar sem að mauður velur grasker, dröslast um í 35 stiga hita í einhverju heyi og matar kiðlinga. Svo að ég og Alexandra vorum heima að chilla, horfðum á laguna beach og the real world Austin og höfðum það bara nice saman.
Ég er alltaf að pæla svo mikið, en er alltaf búin að gleyma öllum pælingunum þegar að ég sest niður til að blogga. Verð að gera eitthvað í þessu, því að þetta eru oft mjög áhugaverðar pælingar sem að ég ætti að deila með ykkur. Því að þetta blogg er orðið svo slakt eitthvað...

21.9.05

Klukk

Já það hlaut að koma að því, það er búið að klukka mig!
Þetta er einhver leikur sem að er í fullum gangi núna í netheimum, sem gengur útá að "klukka" fólk og þeir sem að verða klukkaðir eiga að segja frá 5 staðreyndum um sjálfan sig og klukka svo 5 aðra, sem eiga að gera slíkt hið sama á sínu bloggi.

Held að ég sé að fara með rétt mál.

  1. Ég er í fríi í dag og svaf til korter í tvö - það hefur ekki gerst síðan ég var í DK síðast.
  2. Mamma mín vann Kalla Bjarna í Söngvakeppni á Raufarhöfn árið 1998
  3. Mig hefur dreymt strák í fimleikabol
  4. Ég sef ennþá með Apaskottið mitt í rúminu mínu
  5. Í 10. bekk notaði ég alltaf "persónutöfrana" mína til að sleppa við sund - Gekk oftast ekki

Ég klukka hér með:

  • Ingu Rós
  • Mömmu
  • Lindu
  • Helgu
  • Sæunni

20.9.05

Jæja, sýndist það á kommentunum sem að ég fékk frá föður mínum á síðasta blogg að hann ætli að skutla mér í meðferð þegar að ég kem tíl íslands. Líklega vegna þessara grunsamlegu sveppa sem að maður fær að borða hérna í USA.
Annars er allt gott að frétta, ég fer til DK eftir tvo og hálfan mánuð og það á sko eftir að líða hratt, því að núna erum við með gesti sem að verða til 7 oktober, þann 10 oktober koma svo aðrir gestir og verða í 3 vikur, svo verður hrekkjavakan 30 oktober, íslendingamarkaður miðjan nóvember (nei, það er ekki verið að selja íslendinga þar, en íslenskar vörur og maður hittir fult af fólki) svo er thanksgiving i lok nóvember og þegar að Thanksgiving er búið þá koma útsölur sem ég gæti hugsanlega sleppt mér á, og svo loksins fer ég heim!
Eins og þið sjáið þá verður mikið að gera þangað til að ég kem heim svo að mér ætti ekki að leiðast. Ætla líka að fara að athuga hvort að maður ætti ekki að kaupa sér líkamsræktar kort eða sjá hvort að það eru einhverjir kvöldskólar hérna í nágrenninu sem að maður gæti skellt sér í, til að sýna sig og sjá aðra. Er líka aðalega að hugsa um að hitta annað fólk til að ná enskunni alveg 200% fyrst ég er hérna á annað borð.
Það er alltaf sami hitinn hérna, en mér fannst nú farið að kólna all verulega hérna um daginn, svo var keyptur nýr hitamælir og þá sýndi hann 35 gráður á celsius og er búin að vera um og yfir 35 stigunum núna allan september, og ég sem hélt að það væri komið niður í svona 25 gráður. Og þess má geta að það er alltaf sól og blíða, en ég er nú samt farin að drekka kaffi og um daginn fengum við okkur heitt kakó með rjóma í drekkutímanum, já þetta er klikkun að maður skuli vera orðin svona háður hitanum, veit ekki hvernig ég á eftir að vera í kuldanum á íslandi og danmörku um jólin.
Ég vil samt að þessar moskítóflugur fari að sofa í hausinn á sér, mikið voðalega er ég orðin þreytt á þeim. Ég er alltaf í síðbuxum og svona sweatshirt eftir klukkan hálf fimm á daginn, og ber á mig moskítóvarnir á hendurnar, andlitið og tásurnar, en það stoppar þær ekki neitt, í morgun vaknaði ég með tvo bit á sitthvorri hendinni, og annað bitð í liðamótunum á puttanum og puttinn á mér er 5-faldur, ÁN GRÍNS! Get ekki beygt puttann og klæjar og verkjar í þessu alveg til skiptis. Svo að í allan dag er ég búin að ganga um með svona benadryl penna útum allt í dag og hrúga þessu á hendurnar á mér á svona 2 min fresti.
Já, langaði líka að segja ykkur að ég var úti að leika með strákunum um daginn, og svo voru þeir að keyra eitthvað um garðinn á rafmagnsbílunum sínum og svo stoppar Christian og segir "Ég ætla að "park" á þessu "parkinglot"" og svo kom bara, Oh Oh, það er skjaldbaka hérna, og ég hleyp og tjékka á málunum, haldiði ekki að það hafi bara verið þessi líka myndarlega skjaldbaka föst ofaní svona holu, sem að var verið að gera til þess að setja niður staura, þið vitið, svona mjó og djúp. allvega þá var greyið skjaldbakan föst þar ofaní með rassinn uppúr, og hún var enn á lífi. Svo að ég tók málin í mínu færu hendur, og reddaði lífi skjaldbökunar, sem að var ekki lengi að koma sér í burtu!
Jæja, held að þetta sé allt í bili, vil minna á Gestabókina sem að "ég" setti upp, hún er þarna einhverstaðar...Froskurinn kveður að sinni...

Á meðan ég skrifaði þetta blogg drakk ég Hi-C blast fruit pow úr flösku - beat that!

18.9.05

Uhh, held að ferli mínum sem skyggn sé lokið!
Fékk símtal frá íslandi, var með hnút í maganum og allt þegar að síminn hringdi, en svo varð ég eiginlega bara fyrir "vonbrigðum" þar sem að það voru engar slæmar fréttir sem ég fékk.
Bara alveg glimrandi góðar og plús það þá er pakki með bankakorti og íslensku nammi á leiðinni, svo að þetta voru óþarfa áhyggjur.
En svo ætla ég að segja ykkur að þegar að litla systir mín fæðist þá mun hún að heita Berglind og ég mun að halda á henni undir skírn...
























Þó svo að þetta barn sé ógetið ennþá (held ég) þá dreymdi mig fyrir þessu barni og nafninu Berglind. Þetta er sem sagt mömmu megin en ekki pabba, (við þurfum nu að bíða í heil 13 ár eftir að pabbi komi með annað barn. Þannig að í Mars 2018 fæðist barn, samkvæmt mínum útreikningum. Þá verð ég 30 ára og líklega rétt búin að sækja fyrsta barnið mitt til Afríku.)
Allavega, þá á ég von á teimur litlum systkinum núna á næstu 13 árum.

P.S. vil taka það fram að þetta tengist ekki skyggnigáfu minni, heldur er þetta kenning.

13.9.05

Ég hef áhyggjur!
Mjög mikið af áhyggjum, þetta er ekki gaman!
Mjög skrýtið eiginlega, því að ég finn á mér að það er ekki allt með feldu á Íslandi og líka annar staðar.
Ég einhverstaðar útí heimi og get ekki gert neitt fyrr en ég fæ símtal...
Froskurinn kveður í þungum þönkum!

11.9.05

Orð dagsins er Aumingjabloggari.
Já og ætli það sé ekki bara best að bíta í það súra epli og sætta sig við það að ég hef ekki bloggað í 10 daga! Sem ég var ekki alveg að gera mér grein fyrir, finnst bara nokkrir dagar síðan að ég bloggaði síðast.
Oh, Well, Forvarnarstarfið er alltaf í fullum gangi hérna og er það að virka svona líka glimrandi að ég ætla ekki að eignast börn, allavega ekki fyrr en ég verð rík og fræg og borga einhverjum öðrum fyrir að ala þau upp! Ég verð svo gjörsamlega komin með ógeð af bleyjuskiptingum og þannig hlutum þegar að ég verð búin með árið, því skal ég lofa ykkur. En hef nú grun um að ég fái ekki algert ógeð en taki mér kannski pásu frá barnapíustarfinu í svona 10 daga, eða jafnvel 2 vikur. En þau eru nú svo yndisleg þessi börn sem að ég er að passa, þó að þau eigi það til að taka sínar aríur og öskra"sú dúgavabbi" á mann ef að maður er að skamma þau, en maður getur einhvernveginn aldrei nem bara brosað af þessum litlu manneskjum. Þessi börn sem ég er að passa eru til dæmis tvítyngd, og það er svo fyndið þegar að elsti strákurinn er að tala við pabba sinn einhvernskonar blöndu af íslensku og ensku, bara sætt..."no, pabbi þetta á að vera left, og má ég fá meet" krútt þessi börn.
En það sem að maður er með mikla heimþrá núna, jiminn, ég grenja náttúrulega yfir öllu, í dag var það "laguna beach og tarzan II" börnin eru hætt að biðja mig um að koma og horfa með sér því að það er ekki mikið skemmtilegt þegar að barnapían þarf að nota þrjá pakka af kleenexi yfir skrípó-inu. En ég man eftir því að ég tók svona tímabil í fyrra,eftir að ég flutti til DK og var með "Heimþrá" og hausverk eftir að hafa hlustað of mikið á dönsku. þá grét maður nú yfir pepsi auglýsingum í sjónvarpinu og hvað eina. En þetta tók enda. Svona er þetta, þetta er líklega bara mín leið til að fella tár, því að ég hef ekki yfir neinu öðru að gráta, það þýðir ekkert að vera vælandi yfir því að maður sakni landana sinna þegar að maður hefur sjálfur valið að vera hérna og líður vel.
En yfir í léttara hjal.
Amman og afinn eru hérna í heimsókn, voða gaman alveg eins og amma mín og afi séu í heimsókn, þó að það væri auðvitað miklu betra að hafa þau hjá mér, en þessi amma og afi duga nú alveg. Þau ætla að vera í heilan mánuð, og svo tveimur dögum eftir að þau fara koma aðrir gestir og verða í þrjár vikur. Þá er helloween næst á dagskrá og þar á eftir Thanksgiving. Daginn eftir Thanksgiving þá byrja útsölurnar og svo verður haldið af stað heim.
nenni bara engann veginn að blogga meira fyrir ykkur, því að ég er orðin vitstola af þreytu og ætla að skella mér í bað og svo að sofa, en þess má geta að ég er að breytast í nírætt gamalmenni hérna úti, er alltaf sofnuð fyrir allar aldir!!