Jæja, sýndist það á kommentunum sem að ég fékk frá föður mínum á síðasta blogg að hann ætli að skutla mér í meðferð þegar að ég kem tíl íslands. Líklega vegna þessara grunsamlegu sveppa sem að maður fær að borða hérna í USA.
Annars er allt gott að frétta, ég fer til DK eftir tvo og hálfan mánuð og það á sko eftir að líða hratt, því að núna erum við með gesti sem að verða til 7 oktober, þann 10 oktober koma svo aðrir gestir og verða í 3 vikur, svo verður hrekkjavakan 30 oktober, íslendingamarkaður miðjan nóvember (nei, það er ekki verið að selja íslendinga þar, en íslenskar vörur og maður hittir fult af fólki) svo er thanksgiving i lok nóvember og þegar að Thanksgiving er búið þá koma útsölur sem ég gæti hugsanlega sleppt mér á, og svo loksins fer ég heim!
Eins og þið sjáið þá verður mikið að gera þangað til að ég kem heim svo að mér ætti ekki að leiðast. Ætla líka að fara að athuga hvort að maður ætti ekki að kaupa sér líkamsræktar kort eða sjá hvort að það eru einhverjir kvöldskólar hérna í nágrenninu sem að maður gæti skellt sér í, til að sýna sig og sjá aðra. Er líka aðalega að hugsa um að hitta annað fólk til að ná enskunni alveg 200% fyrst ég er hérna á annað borð.
Það er alltaf sami hitinn hérna, en mér fannst nú farið að kólna all verulega hérna um daginn, svo var keyptur nýr hitamælir og þá sýndi hann 35 gráður á celsius og er búin að vera um og yfir 35 stigunum núna allan september, og ég sem hélt að það væri komið niður í svona 25 gráður. Og þess má geta að það er alltaf sól og blíða, en ég er nú samt farin að drekka kaffi og um daginn fengum við okkur heitt kakó með rjóma í drekkutímanum, já þetta er klikkun að maður skuli vera orðin svona háður hitanum, veit ekki hvernig ég á eftir að vera í kuldanum á íslandi og danmörku um jólin.
Ég vil samt að þessar moskítóflugur fari að sofa í hausinn á sér, mikið voðalega er ég orðin þreytt á þeim. Ég er alltaf í síðbuxum og svona sweatshirt eftir klukkan hálf fimm á daginn, og ber á mig moskítóvarnir á hendurnar, andlitið og tásurnar, en það stoppar þær ekki neitt, í morgun vaknaði ég með tvo bit á sitthvorri hendinni, og annað bitð í liðamótunum á puttanum og puttinn á mér er 5-faldur, ÁN GRÍNS! Get ekki beygt puttann og klæjar og verkjar í þessu alveg til skiptis. Svo að í allan dag er ég búin að ganga um með svona benadryl penna útum allt í dag og hrúga þessu á hendurnar á mér á svona 2 min fresti.
Já, langaði líka að segja ykkur að ég var úti að leika með strákunum um daginn, og svo voru þeir að keyra eitthvað um garðinn á rafmagnsbílunum sínum og svo stoppar Christian og segir "Ég ætla að "park" á þessu "parkinglot"" og svo kom bara, Oh Oh, það er skjaldbaka hérna, og ég hleyp og tjékka á málunum, haldiði ekki að það hafi bara verið þessi líka myndarlega skjaldbaka föst ofaní svona holu, sem að var verið að gera til þess að setja niður staura, þið vitið, svona mjó og djúp. allvega þá var greyið skjaldbakan föst þar ofaní með rassinn uppúr, og hún var enn á lífi. Svo að ég tók málin í mínu færu hendur, og reddaði lífi skjaldbökunar, sem að var ekki lengi að koma sér í burtu!
Jæja, held að þetta sé allt í bili, vil minna á Gestabókina sem að "ég" setti upp, hún er þarna einhverstaðar...Froskurinn kveður að sinni...
Á meðan ég skrifaði þetta blogg drakk ég Hi-C blast fruit pow úr flösku - beat that!
3 ummæli:
Já Krong leitt að heyra með puttann þinn en ég myndi nú bara vera fegin út af hitanum...fór niður í 3 gráður í dag og hér sit ég og kommenta í 2 peysum og 2 bolum!!! en hahaha djöfull ertu mikill dýravinur...ekki bara froskar lengur heldur skjaldbökur! hvað gerist næst....hmmm...kannski maður fari að búa til aðra sápuóperu...þ.e.a.s. ef ég hef tíma, allt BRJÁLAÐ að gera ;) oh well ég er farin að læra brauðið mitt...
hey hotstuff!
er lífið í útlöndum alveg buið að fara með íslenskuna þina barn?
"Ég vil samt að þessar moskítóflugur fari að sofa í hausinn á sér"
þu ert nu meiiirii kjéllingin;) þessi setning er ekkert að gera sig! hehe en bara þvi eg er svo klók þá fattaði eg hvað þu varst að segja:D aaa..yes we're liike...bonding;) thank god for hugskeiti! úff..eg verð að farað hætta að borða svonna mikinn sykur! eg verð alveg *tsjatsjíng*
en ja stina min! skemmtu þer þarna, bara ekki eyða öllum peningunum þinum i útsölunum þarna, verður nu að getað "spendað" eitthvað í horsens með mér þegar ég kem!:D;)
*hefurðu ekkert spáð í að ganga um í risastóru flugnaneti? - það mun örugglega virka;)*
well allíúbba darling!;*
haha .."ég ætla að fara að "park" á þessu "parklot"" shit, gæti hlegið mig máttlausa herna..og ég geri mer alltaf meir og meir grein fyrir því hve mikið ég sakna þeirra og ykkar allra þegar eg les bloggin þín..!
En allavega..hlakka til að sja u sæta..;)
-Karen Helga
Skrifa ummæli