Uhh, held að ferli mínum sem skyggn sé lokið!
Fékk símtal frá íslandi, var með hnút í maganum og allt þegar að síminn hringdi, en svo varð ég eiginlega bara fyrir "vonbrigðum" þar sem að það voru engar slæmar fréttir sem ég fékk.
Bara alveg glimrandi góðar og plús það þá er pakki með bankakorti og íslensku nammi á leiðinni, svo að þetta voru óþarfa áhyggjur.
En svo ætla ég að segja ykkur að þegar að litla systir mín fæðist þá mun hún að heita Berglind og ég mun að halda á henni undir skírn...
Þó svo að þetta barn sé ógetið ennþá (held ég) þá dreymdi mig fyrir þessu barni og nafninu Berglind. Þetta er sem sagt mömmu megin en ekki pabba, (við þurfum nu að bíða í heil 13 ár eftir að pabbi komi með annað barn. Þannig að í Mars 2018 fæðist barn, samkvæmt mínum útreikningum. Þá verð ég 30 ára og líklega rétt búin að sækja fyrsta barnið mitt til Afríku.)
Allavega, þá á ég von á teimur litlum systkinum núna á næstu 13 árum.
P.S. vil taka það fram að þetta tengist ekki skyggnigáfu minni, heldur er þetta kenning.
6 ummæli:
hahaha..þú ert svo REYKT..:p
-Karen Helga
ja...mjög svo spes elskan;)
HAHAHA!!
Ég held að ég ætti ekki að blogga þegar að ég er svona þreytt eins og ég var í gær þegar að ég skrifaði þetta!!!
Ég skil þetta varla sjálf!
Ertu á eiturlyfjum, barn.
kv, pabbi
Nei ekki svo ég viti.
En það er samt eitthvað grunsamlegt við þessa sveppi sem að mér er gefið hérna...svona ef að maður pælir útí það
hæj kristin min;) jæja eg er buin að fá mitt leyfi fyrir ferðinni:) ferðinni til Horsens til þin stelpa;)! eg er ekki alveg með það á hreinu hvenær ég er buin i prófunum, þarf að farað drífa mig að fá það á hreint svo ég geti panntað miðann sem fyrst (eru ódyrari nuna heldur en ef ég kaupi þá seinna...eins og þu eflaust veist;)) eg er á þvi að kaupa miðann bara nuna um mánaðarmótin! eg verð að sjálfsögðu i bandi við þig, og tala betur viððig um þetta:) en ju þu ferð semsagt til horsens um 6-7 des...eg kem líklegast vikunni eftir það, mátt buast við þvi!:D vá ...eg er orðin svo spennt að ég er við það að farað pakka niður:D haha verðum betur i bandi seinna elskan;* og skilaðu kveðju til mömmu þinnar og fjölskyldunnar í horsens:)
ps. kristin min, haltu þer frá sveppunum þarna;) mæli frekar með þvi að ganga með mini-gulrætur i poka;)
Skrifa ummæli