31.7.06

Sigur Rós




Við hér í Kórsölunum ákváðum að skella okkur á Sigur Rósar Tónleikana sem að voru haldnir á klambratúninu í kvöld. Auðvitað þurfti maður að gera sig tilbúinn, þið vitið, klæða sig rétt og vera samt vel til hafður og ekki of útilegulegur.

Hér eru myndir af annars vegar Pabba sem að vildi reyna að fitta inn og vera með Sigur Rósar húfu, dáldið ArtýFartý. Svo var það hún Þóra sem að var meira í því að vera klædd í hlébarðamunstur, máluð um augun og með nýlagað hár. (það var reyndar altalað á tónleikunum hvað hún var fín...segir hún.) Katla gerði ekki mikið til að undirbúa sig, enda fór hún bara í pass til ömmslu sinnar. En hún kann samt öll lögin.
Það náðust ekki myndir af mér í undirbúningnum, en þar sem að það var bara 18 stiga hiti þegar að við lögðum af stað þá þurfti ég að fara í síð ullarnærföt og kraftgalla á tónleikana. Svo rúllaði ég um tónleikasvæðið, gat ekki labbað sökum ofklæðnaðs.

Tussugóður Tónleikur. Get ekki beðið eftir næsta.

26.7.06

Yes you did, Mr. Hopkins


Ætla bara að koma mér beint að efninu, engar lélegar afsakanir fyrir bloggleysi eða Footlooseferðum.

Rakel mín og Benni eru búin að eignast svona litla sveskju. Fæddist 14 Júlí, eftir 12 daga bið, takk fyrir takk. En stjörnurnar láta víst bíða eftir sér, það þekki ég nú.

Svaka sæt - finnst voða gaman að sofa þegar að ég kem í heimsókn samt, eins og alltaf skilst mér.

Til hamingju dúllurnar mínar, þið eigið eftir að upplifa næstu átján árin, svefnlaus og áhyggjufull :)



Ég er annars búin að gera mikið síðan ég dritaði inn hérna síðast.
Var til dæmis í fríi í vinnunni á föstudaginn í góða veðrinu. Fékk Sölku lánaða og við skelltum okkur í útréttingar. Svo heimtaði barnið ís svo ég fór með hana niðrí samskip til Óskars og lét hann bjóða barninu ís. (alltaf að spara) Skilaði henni svo heim þegar hún var næstum klístruð við gólfið niðurfrá, hennti henni inní bíl hjá pabba sem að brunaði með sinni kokteilfamelíu á Snæfellsnes í tjald. Restinni af deginum eyddi ég á Austurvelli með Guðrúnu og hennar fylgifiskum og sleikti sólina. Bókstaflega. Vaknaði upp við vondan draum klukkan sjö, þegar að ég fattaði að það var búið að bjóða mér í leikhús klukkan átta. Brunaði heim, náði í litlu systir útá nes til ömmu og afa og við skelltum okkur á Footloose. (Gummi bauð okkur, en var svo veikur þannig að hann komst ekki)
Þetta var alveg fínt, ekkert stórkostlegt, en ágætt. Voru eiginlega tveir karakterar þarna sem redduðu sýningunni gjörsamlega, held að þið sem hafið séð þetta vitið hvað ég á við.

Fór svo í allskonar matarboð og ég veit ekki hvað og hvað um helgina.

Þetta er það eina sem ég hef gert, fyrir utan að vinna, vinna og vinna.
Mörkin í næstu viku, kvíðinn farinn að gera vart við sig....

Bæjó

12.7.06

Froggie Schumacher

Ójá.Náði prófinu með stæl, þrátt fyrir að hafa gleymt að gefa stefnuljós þegar að ég bakkaði inní stæði og keyrði á rúmlega 60, þar sem að 60 var speed limit.

Nú bíð ég bara eftir að Séð og Heyrt hafi samband...

6.7.06

Crazy

*Það er allt á fullu hjá mér þessa dagana.Vinna og svo sef ég þegar að ég er ekki að vinna.

*Óstjórnleg þreyta hefur gert vart við sig hjá mér uppá síðkastið. Þarf að sofa í minnst 10 tíma á nóttu og leggja mig aðeins í svona 1-2 klst þegar að vinnudegi lýkur.Skil þetta ekki.Held að þetta sé skammdegisþunglyndið sem heldur bara að það sé velkomið núna, þar sem að það er alltaf grámyglulegt. Skammdegisþunglyndið er velkomið í janúar/febrúar - þá er hægt að tækla það þar sem að það er önnur hver manneskja í alheiminum sem að þjáist af því, svo maður fer bara til doksa og fær smá prósak. Í júlí er öllu erfiðara að tækla þunglyndið.Hræðilegt ástand.

*Skötlaðist útum allan bæ á ömmu og afa bíl um daginn. Amma var með, mjög róleg. Kom svo og ætlaði að skila bílnum og ömmu til afa, og fá mér eldaðan mat. Afi heilsaði ekki, en spurði bara "hvað margar rispur" náfölur í framan. Svo kíkti hann á bílinn og kom aðeins húlitaðri inn.
Át hjá þeim og afi fékk smám saman aftur á sig manneskjulegan lit. Svo þurfti ég nú að komast heim svo að ég og amma ætluðum í bíltúr. Ég ákvað að vera kurteis og bjóða afa með í bíltúr. Han afþakkaði pent og sagði að í reglunum stæði að það mætti nú ekki hafa fleiri en einn farþega með sér. Ég sagði að það væri nú ekki rétt. Hann var fljótur að hugsa og sagði að það mætti alls ekki keyra með ellilífeyrisþega, Amma benti honum á að hann væri nú faktískt ekki "Þegi" ennþá. Þá lagðist hann niður og þóttist sofa - Afi deyr ekki ráðalaus.
Reyndar skil ég ekki hvaða áhyggjur maðurinn hefur. Þessi bíll sem að þau eiga er sko sá besti í heimi til að keyra, hann segir við mann þegar að maður er að fara að bakka á eitthvað og ef maður er kominn of nálægt. Voða skemmtilegir svona bílar sem að tala við mann, þá er maður ekki eins einn þegar að maður er úti að keyra. Samt kannski líka krípí, á sinn hátt.
Viðurkenni reyndar að ég er ekki besti bílstjóri í heimi, en svona er þetta þegar að maður er að taka þetta bílpróf núna á gamalsaldri. Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja.

*Nú er salkan mín í Svíþjóð. Hún var ekki viss hvert hún væri að fara til útlanda, vissi bara að hún ætlaði í flugvélina og í flugfreyjuna. Hún spurði mig svo hvert hún væri nú að fara, ég sagði nú til Svíþjóðar - hún varð alveg brjáluð og sagðist sko ekki vera að fara í neitt þríhjól!!
(Þríhjól-Svíþjóð, same shit þegar að maður er 3ára ;))
Svo gat ekki sagt svíþjóð, þannig að hún sagði bara "Sss-sjóð". Svoddan brandarakerling.

*Rakel mín var sett á sunnudaginn. Það er ekki komið barn ennþá. Ætli það komi nokkuð fyrir jól?

*Hvað ætli það séu margir sem tóku út sumarfríið sitt akkúrat meðan HM var/er? Ég veit um nokkuð marga, en þið?

*Þetta var useless blogg í boði frogz.is

**Berrössuð**

Djamm um helgina??
Verið í bandi, I need some Djamm ;)