
Ætla bara að koma mér beint að efninu, engar lélegar afsakanir fyrir bloggleysi eða Footlooseferðum.
Rakel mín og Benni eru búin að eignast svona litla sveskju. Fæddist 14 Júlí, eftir 12 daga bið, takk fyrir takk. En stjörnurnar láta víst bíða eftir sér, það þekki ég nú.
Svaka sæt - finnst voða gaman að sofa þegar að ég kem í heimsókn samt, eins og alltaf skilst mér.
Til hamingju dúllurnar mínar, þið eigið eftir að upplifa næstu átján árin, svefnlaus og áhyggjufull :)
Ég er annars búin að gera mikið síðan ég dritaði inn hérna síðast.
Var til dæmis í fríi í vinnunni á föstudaginn í góða veðrinu. Fékk Sölku lánaða og við skelltum okkur í útréttingar. Svo heimtaði barnið ís svo ég fór með hana niðrí samskip til Óskars og lét hann bjóða barninu ís. (alltaf að spara) Skilaði henni svo heim þegar hún var næstum klístruð við gólfið niðurfrá, hennti henni inní bíl hjá pabba sem að brunaði með sinni kokteilfamelíu á Snæfellsnes í tjald. Restinni af deginum eyddi ég á Austurvelli með Guðrúnu og hennar fylgifiskum og sleikti sólina. Bókstaflega. Vaknaði upp við vondan draum klukkan sjö, þegar að ég fattaði að það var búið að bjóða mér í leikhús klukkan átta. Brunaði heim, náði í litlu systir útá nes til ömmu og afa og við skelltum okkur á Footloose. (Gummi bauð okkur, en var svo veikur þannig að hann komst ekki)
Þetta var alveg fínt, ekkert stórkostlegt, en ágætt. Voru eiginlega tveir karakterar þarna sem redduðu sýningunni gjörsamlega, held að þið sem hafið séð þetta vitið hvað ég á við.
Fór svo í allskonar matarboð og ég veit ekki hvað og hvað um helgina.
Þetta er það eina sem ég hef gert, fyrir utan að vinna, vinna og vinna.
Mörkin í næstu viku, kvíðinn farinn að gera vart við sig....
Bæjó
1 ummæli:
Afhverju er ég ekki alltaf í svona matarboðum!!???
Skrifa ummæli