22.11.12

Smáatriðin skipta máli

Ég rakst á skemmtilega mynd á facebook síðu Epal í gær. Þar var búið að líma skrautlímband utan um sprittkerti sem voru svo sett í glæran kertastjaka. 
Þar sem ég er sjúk í skrautlímbönd og kerti þá varð ég að prufa. Ég hef sankað að mér þessum límböndum hér og þar uppá síðkastið og virðist alltaf kippa með mér einu ef þau verða á vegi mínum, þó ég hafi ekki neitt sérstakt hlutverk í huga fyrir þau blessuð.

Myndin frá facebooksíðu Epal
Safnið stækkar með hverri Reykjavíkurferðinni

Föndrið mitt :)
Það er líka hægt að nota rafmagnsteip, ég prufaði það líka og setti svart teip utan um tvö kerti. Það kom rosa vel út.
 Mér finnst þetta frábær hugmynd og þetta gerir furðu mikið fyrir annars venjulegt sprittkerti í glærum stjaka. Sé fyrir mér að þetta gæti til dæmis verið hluti af fallegum borðskreytingum fyrir veislur eða bara til að lífga uppá dimm vetrarkvöld :)
 Fljótlegt og ódýrt!



2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nokkur hætta á að kvikni í ?

Kristín Alma sagði...

Nei held ekki. Passa að hafa límbandið bara á álhringnum í kringum kertið og að það nái ekki uppfyrir það svo loginn nái ekki í límbandið :)