Ég hef ekki fengið kókoskúlur í mörg ár. En ég var ansi dugleg við að búa svoleiðis til þegar ég var lítil, enda auðvelt að gera, þarf ekkert að baka og smakkast mjög vel. Svo fór ég í heimsókn til Gumma frænda og Kristínar um daginn og þá bauð hún Auður litla dóttir þeirra mér uppá kókoskúlur og ég hef ekki getað hugsað um annað síðan. Í gær ákvað ég að búa til nokkrar kúlur og hef ákveðið að gera aðra uppskrift núna á aðventunni til að eiga í frystinum yfir jólin því ég hef grun um að skammturinn sem ég gerði í gær eigi eftir að klárast fljótt. Mér finnst þessar kúlur betri en besta konfekt. Hér kemur uppskriftin sem ég notaði.
Kókoskúlur
100 g smjör
1 dl sykur
3 dl haframjöl
2 msk. kakó
½ tsk. vanilludropar
2 msk. kalt kaffi
Setjið allt saman í skál, blandið saman og rúllið í litlar kúlur. Veltið síðan kúlunum upp úr perlusykri eða kókos. Setjið kúlurnar í ísskáp í stutta stund.
Ég setti aðeins meira af kakó og kaffi því ég vil hafa kúlurnar mjög bragðmiklar. Svo skellti ég þeim í frystinn og geymi þær þar. Mér finnst þær bestar alveg ískaldar með góðum kaffibolla. Mæli með að þið prufið, tekur korter að útbúa þetta gúmmelaði :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli