Spurning um að henda inn smá bloggi. Það hefur ekki mikið gerst síðustu vikuna þar sem ég hef þurft að halda mig mest megnis heima vegna furðuflensu. Ég er enn að berjast við að drukkna ekki í eigin hori og tala þar af leiðandi eins og æðstistrumpur. Gaman að því.
Fór til læknis í síðustu viku útaf einhverjum breytingum í öðru brjóstinu. Vissi að læknirinn okkar hér á Hjara væri ekki við svo mér datt ekki annað til hugar en að það væri einhver miðaldra krúttlæknir í gallabuxum og hlaupaskóm (eða klossum, það er ekki hægt að vera læknir án klossa) að leysa af. En nei, daginn sem ég fer til læknis til að láta skoða á mér brjóstin (ég fer mjög sjaldan til læknis og hvað þá útaf einhverju öðru en til að fá nýjan skammt af ofnæmislyfjum) er Brad Pitt að leysa af á Hjara Veraldar. Drepið mig ekki! Okei, kannski ekki Brad Pitt en ég myndi alveg segja að þetta hafi verið semí Dr. McDreamy, eða allavega ekki miðaldra krúttkall í gallabuxum og hlaupaskóm heldur svona þrítugur, myndar drengur, huggulegur til fara og tjah bara alls ekki það sem ég átti von á.
Nú þar sem hann birtist í dyrunum og kallar nafnið mitt þá fór margt í gegnum huga minn. Fyrsta var að hlaupa út - veit ekki af hverju ég hætti við það, virðist fín hugmynd þegar ég pæli í þessu núna eftirá. Annað var að þykjast ekki heyra/þykjast ekki heita Kristín Alma - það hefði ekki gengið upp vegna þess að konan í móttökunni veit hvað ég heiti og hver ég er. Þriðja var að finna uppá einhverri annari ástæðu fyrir að ég væri mætt til læknis, datt mér þá helst í hug að þykjast vera með verk í hnénu - var fljót að eyða þeirri hugsun þegar ég fattaði að ég væri víst með órakaðar lappir og ég gæti nú ekki farið að ota svoleiðis órækt að greyið drengnum.
Ekki datt mér eina sekúndu í hug að þykjast bara vera komin til að láta hann tjékka á þessari flensu/kvefi/whatever sem ég var þegar komin með þarna og það var ekki fyrr en hann spurði mig þegar við vorum búin að stúdera brjóstin á mér í korter hvort ég væri nokkuð lasin? Döhh..
Svo hringdi vekjaraklukkan mín í miðju viðtalinu, mjög classy, en þeir sem þekkja mig vita að ég sef frekar fast svo það er mjög erfitt að vekja mig (fólk hefur líkt því við að reyna vekja einhvern upp frá dauðum) og því er hringitóninn sem vekur mig ekki lag með Michael Buble. Skil reyndar ekki ennþá af hverju vekjaraklukkan hringdi þarna á þessum tíma en það er nú annað mál.
Ég lifði þetta af, get svo sannarlega þakkað fyrir að vera heilbrigð en er sennilega með varanlegt ör á sálinni eftir þessa lífsreynslu og vona að ég þurfi ekki að rekast á kauða aftur í lífinu, en til þess þarf ég að vera dugleg að forðast þyrlu landhelgisgæslunar skilst mér.
Kannski að ég taki líka fram að þessi læknir var mjög almennilegur og virkilega faglegur, ekkert hægt að kvarta undan honum, ég er nokkuð viss um að hann geti lítið að því gert að vera ungur, myndarlegur og ekki í klossum :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli