8.10.12

Kaupmannahöfn

Ég vaknaði eitthvað öfugsnúin eins og svo oft á mánudögum. Ákvað samt að láta daginn ekki allan fara í mánudagsfýlu og pirring yfir veðri svo ég bókaði flug til Kaupmannahafnar fyrir okkur Byggingarfræðinginn í desember.
Þetta var kannski ekki alveg svona, við erum búin að vera á leiðinni til DK lengi og ákváðum núna um daginn að skella okkur út í jólafríinu. Ætlum að gista á hóteli og ákváðum að vera ekki alveg á einhverju farfuglaheimili svo við ætlum að prufa hotel twenty seven sem er nýtt/nýlegt hótel á mjög góðum stað í borginni. Hlakka til að prufa þetta.
Hvað er svo must að gera/skoða/borða/drekka/kaupa í Kaupmannahöfn? Hvar eru bestu Genbrugsbúðirnar og Tyrkjabúllurnar? Ef einhver sem hefur búið í/komið til Horsens les þetta og þekkir til í Köben (halló Stjáni frændi) hvar er hægt að fá pizzur eins og á Delons?!

Við Byggingarfræðingurinn kynntumst í bænum Horsens á Jótlandi og bjuggum þar í nokkur ár áður en við fluttum hingað á Hjara Veraldar, við erum því ekki að fara í túristaferð heldur meira svona nostalgíuferð einhverja. Byggingarfræðingurinn ætlar í THansen, Harald Nyborg og Bilka meðan ég fer í H&M, Genbrug og Bahne. Svo ætlum við í Tivoli, fá okkur tómatsnakk, tivolistangir, McDonalds og Tyrkjabúllukebab.
Æj kannski ekki alveg, ætlum bara að njóta lífsins saman og tala dönsku :)

4 ummæli:

Rut R. sagði...

ohhh þetta soundar svo pööööörfekt!!!
og hótelið lúkkar vel :)
...ég er nokkuð viss um að tilfinningin sem ég finn sé ÖFUND!!! :)

Kristín Alma sagði...

Komdu bara með :)

Rut R. sagði...

neeee.... þetta soundar of rómó kærustuparaferð. Þið njótið ykkar bara vel og kelið í Tívolí og svona :)

við erum líka e-h ægilega upptekin milli jóla og nýárs...

Unknown sagði...

Það er enginn með slæsur eins og Delons það er bara svo einfalt! Það er aftur á móti fínasta kebab á tyrkjabúlluni sem er efst á Strikinu, man ekkert hvað hún heitir.

Djöfull væri ég til í að vera að fara með ykkur þarna út, Harald Nyborg og Bilka ussss það voru nú nokkrir klukkutímarnir sem að hurfu þar í Horsens.