7.10.12

Skrifstofa

Ég ætla að fara að koma upp skrifstofuaðstöðu í öðru hvoru gestaherberginu. Það gengur ekki lengur að hafa borðstofuborðið undirlagt af tveimur fartölvum, skóladóti og fleiru sem fylgir okkur Byggingarfræðingnum. Ekki mjög smart og engin ástæða til þar sem við búum í frekar stórri íbúð (amk miða við að við erum tvö) með tvö auka herbergi sem eru aldrei notuð.
Við erum sem sagt með tvö gestaherbergi sem eru mjög lítið notuð (hint til fjölskyldu og vina um að koma í heimsókn) og ég væri til í að leggja annað undir smá heimaskrifstofu. Það má alltaf bara skella dýnum á gólfið ef allt skyldi fyllast af næturgestum. Það væri líka gott fyrir mig að geta lokað mig af og lært þar sem ég missi auðveldlega einbeitninguna - nett ADHD alltaf í gangi hjá mér!
Hér er smá listi yfir það sem mér er búið að detta í hug varðandi litlu skrifstofuna okkar og svo nokkrar myndir fyrir smá innblástur.

  • Finna fallegt skrifborð. Helst gamalt og gera upp
  • Koma upp hillum
  • Finna sniðuga leið til að geyma geisladiska og DVD - mér finnst mjög ljótt að hafa þetta fyrir allra augum
  • Væri til í að "krítatöflu" mála fyrir ofan skrifborðið eða bara græja svoleiðis með gömlum ramma og smá "krítartöflumálingu"
  • Setja upp prentarann þannig að það sé ekki vesen að prenta út, eins og núna þegar skrifstofan er á borðstofuborðinu. Ég prenta mikið út þegar ég er að gera kökur þannig að það er eins gott að ég geti prentað út einn tveir og þrír :)
  • Kaupa fallegan stól við skrifborðið, helst ekki svona týpískan skrifborðsstól
  • Gera ráð fyrir bókahillu. Bækurnar okkar eru frammi á gangi eins og er en það stendur til að gera skáp þar þannig að bókasafn heimilisins þarf að flytja!
  • Koma skipulagi á hina ýmsu hluti
  • Lýsing
  • Finna fallega mottu á gólfið til að fá smá hlýleika í herbergið - eða til að fullnægja mottusýkinni sem hrjáir mig þessa dagana.. 









 Svo er hér póstur um "smá" skrifstofu makeover hjá Skreytum hús. Þið getið fundið fleiri færslur um skrifstofuna hjá henni undir "skrifstofa" í "flokkar" þarna öðru megin á síðunni.



4 ummæli:

Rut R. sagði...

lýst mega vel á þetta hjá þér!!!!
mundu samt að pæla í að stóllinn sé líka þæginlegur, ekki bara fallegur :) m&p eiga bjúúúútífúl antík skrifborðsstól, en það er ekki séns að sitja í honum lengur en 10mín :)

og btw ég er líka mottusjúk, og búin að vera lengi, en það er bara enginn staður hjá okkur sem höndlar fallega stóra mottu :/

Kristín Alma sagði...

I know, mun passa uppá það líka. Hefði náttúrulega helst viljað Eames stól við fallegt skrifborð.. Kannski þegar ég vinn í lottóinu!
Mottur eru æði, langar að setja eina stóra í stofuna okkar en Byggingarfræðingurinn er ekki eins hrifinn af þeirri hugmynd :/

Rut R. sagði...

heyrðuuu ég sá Eamesinn á tilboði e-hstaðar.... ótrúlega fallegur með trélöppum....ætlað ath hvort ég finn það...

Rut R. sagði...

hey Pennanum/Eymundsson
39.900 og 59.900 með tréfótum.