1.10.12

Bollakökur

Ég fæ oft spurningar um hvernig ég nái bollakökunum svona "beinum" sem sagt formið heldur sér alveg og þær "leka" ekki út um allt og verða skrýtnar í laginu eins og vill gerast. Svo ég ætla að sýna ykkur hvað ég geri þegar ég baka bollakökur/muffins/cupcakes - hvað þið viljið kalla þetta :)



 Ég nota alltaf svona sílikonmót. Fást í Hagkaup.

 Set venjuleg pappírs muffinsform ofan í

 Þessir einnota sprautupokar fást í Hagkaup - í pokadeildinni :)

Deigið komið í sprautupoka. Síðan þarf bara að klippa aðeins af endanum og sprauta ofan í muffinsformin. 

Deigið komið á sinn stað. Mér finnst þetta mikið snyrtilegri aðferð en að nota tvær teskeiðar. Líka mikið fljótlegra sem er gott, sérstaklega þegar maður þarf að gera mikið magn.

 Kökurnar komnar útúr ofninum voða jafnar og fínar. Þá er bara að skreyta!

 Afurðin fullunnin og á leið í 10 ára skvísuafmæli hjá litlu frænku Byggingarfræðingsins :)

Krúttkaka!

Engin ummæli: