Næsta sem mig bráðvantar eru nýjar gallabuxur og þar sem ég er mjög hrifin af Levis Curve ID þá var ég að hugsa um að senda múttu af stað í leiðangur í Levis outlet og finna á mig buxur. Fyrir þá sem ekki þekkja Levis Curve ID þá komu þeir út með þessa línu í fyrra (að ég held) og hún er gerð með það í huga að passa kvennlíkamanum, sama hvort við séum epli, pera, stundarglas eða hvað þetta heitir nú allt. "Designed to flatter a woman's natural shape". Þeir segja að þetta snúist ekki um stærð heldur snið sem passi líkama okkar. Mér skilst að buxurnar komi í þremur gerðum Slight curve, Demi Curve og Bold curve. Ég er til dæmis Demi Curve og svo velur maður bara snið, ég á "slim leg" sem eru bara frekar venjulegar en það er hægt að velja allskonar, skinny, boot cut og svo framvegis. Ég er ekki með nettasta rassinn í bransanum en mér finnst þessar buxur passa mér vel og svo er alltaf kostur þegar buxurnar ná uppfyrir lífbein en mér finnst ekki fallegt þegar konur/stelpur eru í buxum sem ná varla yfir rassaskoruna á þeim. Þessar buxur eru líka til í mjónu stærðum bara svo það sé á hreinu, þetta eru sem sagt ekki einhverjar bollubuxur ;)
Mér finnst svo gaman að Levis sé komin út með þessa línu, ég hef alltaf verið mjög hrifin af gallabuxunum þeirra en bara dáðst að þeim í fjarska svo það er gaman að eiga loksins svona fínt. En ég er líka bara svo hrifin af þessari línu því það eru ekki allar konur vaxnar eins og 14 ára fermingardrengir eins og margir gallabuxnaframleiðendur virðast halda.
Mæli með að skella sér í mælingu, það var alveg ótrúlega almennileg stelpa sem afgreiddi mig og mömmu þegar við fórum og létum mæla okkur. Ljóshærð stelpa, hávaxin og var í Levis búðinni í kringlunni. Þið megið samt ekki vera feimnar við þetta og reynið að sjá það fyndna í þessum aðstæðum þegar þið troðið ykkur í buxur sem þið eruð vissar um að séu tveimur númerum of litlar ;)
Þetta er status sem ég skrifaði á facebook þegar ég var komin heim í nýjum buxum:
Ég og afgreiðslustúlkan í Levis í Kringlunni áttum saman huggulega stund í mátunarklefanum í dag. Ég lá á gólfinu meðan hún tróð mér í níðþröngar brækur og svo tókst okkur í sameiningu að renna upp og hneppa. Hún sannfærði mig um að brækurnar myndu víkka svo nú sit ég hér hamingjusöm í rándýrum nýjum buxum, með kramið móðurlíf og næ ekki andanum! En mjög hamingjusöm með nýju buxurnar því þær eru jú Levis!!

3 ummæli:
hahaha... var ég búin að segja þér hvað mér finnst þú fyndin og skemmtileg? :)
En ég einmitt hitti á þessa fínu stelpu þína einn daginn, fékk kort í veskið og allt með uppl um hvernig buxur ég á að nota.... en svo fannst mér ég bara ekkert fín í þeim... en það var þá, þegar ég notaði ekki gallabuxur :)
Hahaha takk vinan, þú ert ekki sem verst sjálf ;)
Þú ættir að prufa aftur og kannski annað snið, ss skálmasnið. Þú ert voða fín í gallabuxum finnst mér :)
Haha. Kristín mín. Þú ert algjōr draumur. Það er svo gaman að lesa allt sem þú skrifar.
Það hefur verið fyndið og skemmtilegt í Borgarnesi.
Èg elska þig.........amma Stína
Skrifa ummæli