Jæja eins og áður hefur komið fram þá voru naglalökkin mín og bara það sem fylgir nöglum almennt að sprengja af sér baðskápinn. Svo ég ákvað að mála kryddhillu úr IKEA hvíta og skella öllu nagladótinu í hana. Á eftir að hengja herlegheitin upp, en það verður gert þegar bjútíhornið mitt verður græjað (sem fyrst því Fræðingurinn minn er pínu þreyttur á hálsmenum, hárspennum, varaglossum og öðru góssi útum allt hús).
Ég er ánægð með útkomuna og fannst ég ansi sniðug þarna! Þetta varð líka til þess að ég tók rækilega til í safninu góða og fækkaði lökkunum um heilan helling - nú get ég farið að kaupa fleiri :)
 |
| Þessi hilla kostaði heilar 795kr og ég gat sett hana saman sjálf! |
 |
| Málað á eldhúsgólfinu :) |
 |
| Lét skrautlímband á hilluna því mér fannst það fallegra |
 |
| Ég er sjúk í skrautlímbönd... |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli