29.6.08

5 dagar..

Goood, ég er við það að fá heilablóðfall af spenningi.

Fór til Vejle í gærmorgun. Fór með Svanhildi í brunch og búðarráp. Ekki leiðinlegt það. Keyptum líka lestarmiða fyrir föstudaginn. Ofsalega skipulagðar! Ræddum líka mikið hvað sé best að pakka mörgum pörum af skóm fyrir þetta ferðalag, hvaða föt þarf að taka með og hvaða ferðatösku sé best að pakka í.

Þetta eru 6 vikur. Og sko 6 vikur af vinnu, chilli, sveit, útilegum, djammi, kaffihúsaferðum, brúðkaupi, matarboðum, fótboltaleikjum, afmælum, ættarmótum og öðru skemmtilegu.

Sem sagt, maður þarf að pakka fyrir þetta allt. Það er nú bara hægara sagt en gert. Ég er allavega með Samsonite-ið tómt hérna fyrir framan mig og held það eigi eftir að vera þannig þangað til á föstudaginn þegar ég átta mig á að það er korter í flug og einhverju verður hennt ofaní tösku og svo farið að grenja loksins þegar ég kem heim til mín og uppgötva að ég hef gleymt kjólnum fyrir brúðkaupið eða afmælisgjöfinni hans Jóns Péturs.

Svo er víst búið að vera SPÁNARVEÐUR í Grundarfirði uppá síðkastið, alveg geggjað víst!
Þannig að ég er save með að á föstudaginn komi rigning og verði þannig út sumarið. Best að ég komi við í 66° á flugvellinum og splæsi í regngalla og ullarnærföt.

Jæja ætli það sé ekki ráð að byrja á því að henda í þvottavél og vaska upp áður en ég fer að hafa meiri áhyggjur af þessu.

Annars má ég til með að segja ykkur hvað ég á krúttaðan litla bróður.
Hann birtist hérna áðan með eldrauða hvítlaukspressu í hendinni og færði stóru systur.
Ég var nefninlega að tala um það heima hjá mömmu á föstudaginn þegar ég var að búa til hvítlauksolíu hvað það væri mikill munur að eiga hvítlaukspressu, því ég saxa alltaf hvítlaukin sjálf hérna. (Amma Stína gaf okkur samt sjúkt flotta Eva Solo hvítlaukspressu, en hún er í Grundarfirði og örugglega í stöðugri notkun eins og Kitchen Aid hrærivélin mín sem er líka þar)

Þannig að litli bróðir fór í Fakta og keypti hvítlaukspressu fyrir mig fyrir sína peninga.
Bara sætur.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sælar. Varð bara að komenta. Mjög krúttilegur littli bróðir. Rauð hvítlaukspressa er mjög góð gjöf og hugulsöm.

Kveðja Erla Jónatans

Nafnlaus sagði...

æj en hann sætur!

Nafnlaus sagði...

bráðum ferðu að telja niður í klukkutímum og þetta verður endalaust ferðalag, tala nú ekki um síðasta klukkutímann í flugvélinni hehehe hlakka mikið til að sjá þig eitthvað á þessum 6 vikum.

Brekamamma

Nafnlaus sagði...

við verðum góðar saman í flugvélinni ;) fáum okkur bara hvítvín til að slaka á... í lestinni, á flugvellinum og í vélinni... verðum hressar í leifsstöð :) hehehe

Kristín Alma sagði...

Erla: Gaman að sjá þig hér :) Langt síðan síðast!

Helga: Já hann er bara sætastur.

Brekamamma: Hehe, ohh svo gott að hafa einhvern sem skilur mann alveg fullkomnlega :) Mér finnst einmitt tíminn vera helvíti hægur að líða núna og föstudagurinn verður erfiður :)
Hlakka líka til að hitta þig og karlkynið í Lautinni. REynum að stefna að hitting :)

Svanhildur: Ég er ánægð með þig. Líst vel á þessa hugmynd, smá hvítvín skaðar engan :þ
Verðum bara að passa að verða ekki of fullar svo við drepumst ekki á leiðinni í bæinn, það yrði ekki vinsælt.