Ég er líka voða dugleg við að mála mig, plokka, vaxa, setja á mig krem, maska, skrúbba húðina með þar til gerðum hönskum og þar fram eftir götunum. Voðalega mikil stelpa.
Það vantar bara svo mikið uppá stelpuna í mér, því ég er svoo mikil brussa og ódömuleg í hreyfingum og líkamsburði, ef maður getur sagt það svo. Það virðist bara ekki lærast að standa, sitja og ganga eins og stelpa.
Hér er ég til dæmis á sunnudagsmorgni heima hjá mér í Grundarfirði að lesa bók. Klukkan var milli 10 og 11 og ég búin að fara í sturtu, blása hárið, klæða mig í pils, mála mig og guð má vita hvað. En það er greinilega ekki nóg.
Mér finnst þetta amk ekkert mjög dömuleg stelling sem ég er í þarna. Þakka guði fyrir að ég hata nælonsokkabuxur (sem eru þunnar og þá hefðuð þið eflaust séð hvað ég át í morgunmat þann daginn) og vil bara vera í þykkum leggings. Skil núna að það er engin sérviska, það er einfaldlega til að aðrir þurfi ekki að horfa uppí óæðri endann á mér.
Ég mæli EKKI með að þið stækkið myndina!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli