21.7.08

To me your wonderful..

Ætlaði bara að láta vita að ég er á lífi, svona fyrst ég var send heim úr vinnunni því ég var að rigna niður (var útidagur hjá mér í dag) og næstum fokin uppí Kirkjufell.
Hef það samt fínt í sveitinni.
Skeini og baða krumpaða og aðeins stærri rassa en ég hef áður gert, reyti arfa bæði í vinnunni og í frítímanum, mæti á fótboltaleiki í Ólafsvík og vanda mig voða mikið við að vera í sambúð.

Ég vinn oftast frá 8-16. Kem þá heim, legg mig, fer í sturtu og sit svo við eldhúsborðið hjá Frú Hjördísi (mömmu JP) og safna spiki meðan viðhengið sparkar í tuðru. Frú Hjördís hatar ekki þetta fyrirkomulag, ég reyndar ekki heldur en er þó farin að hafa áhyggjur af því að ég verði að kaupa mér tvö flugsæti þegar ég fer út aftur.

Meira seinna. Ætlaði að henda inn myndum með þessari færslu en fattaði svo að ég er búin að vera eitthvað löt við að taka myndir. Þá ætlaði ég að henda inn myndum sem Jón Pétur er búinn að taka en hann er með myndavélina sína í vinnunni, svo læt þetta bara duga.

Engin ummæli: