4.7.08

Eftir tólf tíma verð ég að hella í mig hvítvíni á Kastrup!
Jemundur minn hvað ég hlakka til.
Mér fannst einhvernvegin eins og ég væri búin að vera geðveikt dugleg að pakka í vikunni. Veit ekki alveg á hvaða töfrasveppi ég hef verið að éta í vikunni því það er nákvæmlega komið einar gallabuxur og ein afmælisgjöf ofaní tösku. Reyndar búin að finna hellings af fötum til, en samt.

Er búin að vera ógeðslega áfengisþyrst þessa viku. Kannski því ég hef ekki fengið áfengi í blóðið síðan ég var í köben (ekki það, að þá drakk ég alveg fyrir næstu árin, ef ekki meira).
Fór í gær og lét eftir þessari gífurlegu þörf í áfengi, þegar ég var komin á það stig að ég var við það að fara að blanda mér gin og tonic hérna heima þá ákvað ég að drösla mömmu og Írisi með mér út. Við Íris fengum okkur mojito og ég var ekki lengi að hætta við að fá mér annan því ég fann svo á mér eftir þennan eina! Kettlingur.

Jæja ætti væri ekki best að koma sér í að henda fleiru niðrí töskuna og drölla sér svo í klippingu. Svo ég hætti að vera með inilokunarkennd útaf öllu þessu hári mínu!!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ertu enn að jafna þig eftir hvítvínið....eða hvernig fór þetta..stoppuð í tollinum með skóruglu..hvar ertu??

Kristín Alma sagði...

hmm, nei ekki alveg. Bara brjálað að gera í að baða, mata og skeina!

Skal blogga bráðum, svo á ég síma líka. 848-5313

Nafnlaus sagði...

ef þú ferð ekki að blogga þá skrái ég mig úr "aðdáendaklúbb froskurinn.blogspot.com"