21.6.08

Brjáluð!

Guð minn góður. Sonofon er mesta skítafyrirtæki sem uppi hefur verið.

Sonofon er semsagt símafyrirtæki hérna þar sem ég hef verið með mitt númer í 2 ár. Aldrei verið neitt vesen, fyrr en núna.
Allt í einu fór ég að fá símreikninga sem pössuðu bara ekkert við það sem ég var að hringja og senda sms. Var sérstaklega ánægjulegt að fá reikning uppá einhvern 1000 kall danskar fyrir mánuð sem notunin mín var nánast engin því ég hafði verið á Íslandi og gleymt kortinu mínu þar, þannig að ég var símalaus í mánuð.
Síminn var sem sagt í full swing bæði meðan ég var á Íslandi og þegar kortið var aleitt á Íslandi. Reddaði þessu samt og allt í góðu.

Eftir þetta fékk ég reyndar áfram háa reikninga, en það er nú alveg ástæða fyrir þeim, sms til útlanda.

Svo núna fyrir svona 10 dögum þá lokuðu þeir á mig. Gat bara allt í einu ekkert hringt eða sent sms. Gat náttúrulega ekki hringt í þá og sagt þeim frá þessu þannig að ég sendi mail á þjónustuverið.
Tók 6 daga að fá svar og þá var það svar um að það tæki lengri tíma að meðhöndla málið en þeir gerðu ráð fyrir í upphafi.
Vill til að ég er ákaflega þolinmóð að eðlisfari og beið bara róleg eftir svari.

Núna áðan fæ ég svar um það að ástæðan fyrir að símanum var lokað er sú að ég hef ekki borgað síðustu tvo reikninga. Sem er kjaftæði, því það er ekki langt síðan ég borgaði 1300 dkk til þeirra.
Ég hef ekki fengið neinn reikning frá þeim síðan þá, sem passar alveg, því ég borga á tveggja mánaða fresti.
Þeir sögðu að þegar ég væri búin að borga rúmar 700 dkk fyrir apríl og rúmar 900dkk fyrir maí myndu þeir opna símann aftur (komnar sektir ofan á þessar 1300 sem ég er nýbúin að borga) Og að sjálfsögðu myndi bætast við 200 dkk fyrir að láta opna símann aftur, það tekur svo 5 virka daga að láta opna helvítis símann aftur.

Nenni ekki að taka þátt í þessu rugli lengur. Ætla ekki að borga tvisvar fyrir apríl og maí - Borgaði það á réttum tíma.

Sendi þeim til baka pirringsbréf um þetta og ætla svo að láta loka á þetta númer bara alveg.

Þið Íslensku danir, hjá hvaða símafyrirtæki eruð þið? Ætla að skipta um fyrirtæki á mánudaginn..!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Telmore rúlar, ódýrt og gott.

http://www.telmore.dk/

Nafnlaus sagði...

Þú hringir í Sonofon og segist vera lögfræðingur og að þú sért að hringja frá Íslandi fyrir hönd Kristínar Ölmu og að hún sé að íhuga kæru gegn fyrirtækinu.

Virkar alltaf gegn Dönunum, þá fyrst fara þeir á tærnar.

Kv.
Gummi Frændi

Nafnlaus sagði...

telia virkar fínt fyrir mig... :)

annars bara að láta þig vita (fyrst síminn virkar ekki) að ég komst heim í heilu lagi og þurfti ekki að bíða meira en hálftíma á lestarstöðinni... og eignaðist 3 nýja 18 ára vini :) löng saga ;)

Nafnlaus sagði...

hahaha okey, núna skil ég bloggið fyrir ofan þar sem þú varst að bölva peysunni! hættu bara að tala svona mikið i simann! eða komdu hingað heim og ekkert vera fara aftur út! gott að vera hjá símanum, ég skal meiraðsegja vera símavinur þinn (0 krónur! alltaf að spara!)