27.9.04

Ég komst að því í dag að ef að svefn gerir mann bara þreyttari.
Ég er mjog þreytt eftir þessa helgi, kannski verður maður það þegar að helgin byrjar á því að það er keyrt á mann, ég veit það auðvitað ekki. En ég er samt búin að vera að drepast í fætinum, fyrst hélt ég að þetta væru harðsperrur, en svo fattaði ég að þetta var bara öðru megin, og akkúrat þar sem ég klemmdist, svo að ég er bara stórslösuð eftir allt saman. En ég er nú öll að koma til.

Á laugardaginn skelltum við okkur í bíó, ég Lára og Mette. Það var hin ágætasta skemmtun, nema hvað að myndin var ekki uppá marga fiska. Þetta var víst einhver spennutryllir, og bjuggumst við við að skíta á okkur úr hræðslu, en viti menn, ég HLÓ frekar heldur en að mér hafi brugðið. Það gerðist alveg tvisvar að mér brá. Annars fínasta mynd og fínir leikarar.

Jæja ég ætla að fara að sofa, og svona, þó að ég hafi sofið í 3 tíma í dag, þá er ég bara massa þreytt.

Ég er svo víst að fara að fá lánaðar tvær myndir hjá Jokobi litla! "IT" og "Wrong turn" hlakka til að horfa á þær á morgun, en ég ætla að finna Friends fyrir Jakob litla...


7 ummæli:

Inga Rós sagði...

hahhahah wrong turn...uppáhaldsmyndin okkar :Þ

Nafnlaus sagði...

Kristín: Jiii minn eini:D Þú verður nú að vera duglegri að blogga stelpa...ég er að slá þér út:):) Hehehe, sjáumst krútta!

Kristín Alma sagði...

já kristín...eins og ég segi, ég hef misst hæfileikan til að blogga:( held að þú takir þetta bara:)

Nafnlaus sagði...

Eva æði sæði: Eða bara ég :Þ hehehe þú veist nú að ég er að koma alveg mjööög sterkt inn sko ;) Inga vitni af því :D En hvað er þetta..ég skil þig nú bara mjög vel ef blogg-áhugamálið fer eikkvað aðeins minnkandi. Þú ert nú búin að standa þig alveg massa vel =)

Kristín Alma sagði...

já eva! þú ert að koma sterk inní blogg-heiminn núna um þessar mundir!

Inga Rós sagði...

vitiðið ég er e-ð að missa áhugann hérna hehehe :Þ en þetta kemur víst allt með kalda vatninu ;)

Inga Rós sagði...

meinti að blogga sko :Þ