28.6.07

Það er kalt á toppnum

Skellti mér á Esjuna í gær. Komst ekki alveg uppá topp vegna veðurs. Það var svo mikill vindur að maður rétt svo náði andanum. En allavega þá fór ég nánast uppá topp og niður aftur. Finnst vert að taka fram að ég hafi farið niður aftur, því ég þjáist af svo mikilli lofthræðslu að mér finnst meira afrek að hafa farið niður Esjuna en upp.(Fjallganga er kannski ekki alveg besta hobbý-ið fyrir lofthrædda?)
Í dag fékk ég þessar líka fínu harðsperrur í rassinn svo ég er búin að staulast um allt eins og önd í allan dag.
Það var annars dásamlegt að drullast svona upp og niður Esjuna, þetta er ekkert smá góð hreyfing og í góðu veðri er þetta ólýsanlegt (Það var svo vont veður í gær að þetta var alveg lýsanlegt, ekki ólýsanlegt.) Það var ótrúlega mikið af fólki og það sem kom mér mest á óvart var það að fólk bauð góða kvöldið, þegar það mætti manni. Ég var svo orðlaus þegar að 2 voru búnir að bjóða góða kvöldið að ég gat ekki stunið upp nema "aften" á móti. Íslendingar bjóða nefninlega aldrei góða kvöldið, þess vegna var ég alveg viss um að þetta væri vegna þess að loftið væri svona þunnt þarna uppi. Kannski voru allir sem ég mætti bara glaðir, því að þeir voru nýbúnir að... Labba upp Esjuna?

Að öðru. Ég röflaði um daginn um það að ég saknaði þess að tala dönsku. Óskaði þess svo heitt að finna einhvern dana sem ég gæti spjallað við. Í dag var mér refsað fyrir það. Það var hringt í mig frá DK og ég auðvitað svaraði djöfuls símanum. Var þetta ekki leiðinlegasti og sjálfselskasti dani sem ég þekki. Og þekki ég nokkra þannig. Hann þurfti að segja mér allskonar sniðugt um hvað hann væri nú frábær og æðislegur og allt væri dásamlegt sem hann gerir. Svo kom hann sér að efninu. Haldiði að vinurinn sé ekki bara að koma til Íslands á Sunnudaginn. Verður í viku með vini sínum. Vildi að sjálfsögðu fá mig í einhvern túristaleik með þeim og sína þeim Ísland. Skyndilega mundi ég að það er brjálað að gera í vinnunni í næstu viku.. þarf örugglega að vinna til 12 á kvöldin og svo á ég ekki bíl, þannig að þetta yrði frekar erfitt fyrir mig. Einhvern vegin vissi kvikindið hins vegar hvar ég er að vinna..Hann spurði því hvernig gæti verið að ég þyrfti að vinna til 12 á kvöldin í eldhúsi, og sagði svo að þeir yrðu með bílaleigubíl, ég var við það að fá taugaáfall úr stressi, því ég er lélegasti lygari í heimi.. þegar að ég fékk frábæra hugmynd. Sagði að ég væri að fara í göng og það "Æri kket sambnd". Þegar að ég hélt að ég væri sloppin fyrir horn, búin að skella á kauða og setja síman í 300 metra fjarlægð frá mér, þá fattaði ég að ég hafði sagt 3 min áður að ég væri að labba á löngum gangi inní bygingunni sem ég vinn í...

Mig vantar felustað þangað til á Sunnudaginn eftir viku.. einhver?
Þið verðið að senda mér loftkeyti næstu daga, ég þori ekki að kveikja á símanum mínum.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æ vertu góð við hann greyið.....Han jo elsker dig...ikk??

Nafnlaus sagði...

Dugleg ertu kjella að skella þér í fjallgöngu. En ég er sammála þér, þetta getur verið erfitt fyrir lofthrædda. Ég fór upp á topp en hélt að ég þyrfti að fá þyrlu til að koma mér niður.... :(

Kv, Elín

Nafnlaus sagði...

Vá, Esjan, stoltur af þér...

Hehe, hvaða snillingur er þetta? Greinilegt að honum þykir mikið til þín koma;-)

Nafnlaus sagði...

Sting uppá að þú labbir næst uppá Keili, það er hrikalega gaman.

Ef ég byggi á Íslandi myndi ég labba á fjöll í hverri viku!

Gummi frændi