Þegar ég kom heim úr vinnunni og opnaði hurðina útí garð þá voru þar lítil börn að leik á rólóvellinum fyrir utan. Pældi ekki mikið í því og fór eitthvað að brasa. Síðan lít ég út, er þá ekki annað barnið að blaðra í símann, í rólunni. Mér fannst þetta svo fáránleg sjón að ég fór að hlusta hvað barnið var að segja í símann og þá heyrði ég að það var að spurja einhvern um að koma út að leika. Stuttu seinna bættist þriðja barnið við, með gsm síma um hálsinn.
Nú segi ég þessa fleygu orð "Þegar ég var ung" voru börnin með lykla um hálsin en ekki síma..
Er þetta normið? Þessi börn voru ekki deginum eldri en 5 ára. Katla er soldið seinþroska í þessum málum greinilega, rúmlega 15 mánaða og ekki með gsm.
Er annars með valkvíða. Veit ekki hvort ég eigi að hjóla inní Garðabæ, fara í sund eða skrölta upp Esjuna.
4 ummæli:
Ég mæli með Esjunni !! Fór þangað síðasta laugardag og ég get svo svarið það að ég er enn með harðsperrur .... YNDISLEGT ;)
Kv, Elín
Er ekki málið að gera bara allt þrennt? Og þetta með GSM símana er nátturulega bara orðin klikkun þarna á Íslandi.
Stjáni, þú hefur alltaf svo mikla trú á mér.
Maður hefði náttúrulega bara átt að hjóla að esjuni, labba upp upp og kíkja í sund á eftir..?
Við gerum það þegar þú kemur..múhaha
Maður verður bara þreyttur af að lesa svona aktívar pælingar. Var; borða snakk og horfa á video aldrei kostur eða?
Skrifa ummæli