Já. Þessi helgi var löng og ströng fyrir okkur námsmennina í Danmörku.
Það var byrjað á fimmtudaginn. Skellt sér í smá teiti. Átti bara að vera rólegt og ætlaði ég bara snemma heim. En annað kom nú á daginn. Skelltum okkur á varðeld þar sem var sungið og spilað á gítar eitthvað frameftir. Svo var það bærinn þar sem við Íris skelltum okkur á CrazyDaisy og enduðum á að dansa við einhvern homma langt fram eftir morgni.
Daginn eftir var maður rifinn upp á rassgatinu klukkan 12.00. Ferðinni var heitið á ströndina. Þar var legið og notið lífsins með einn kaldann. Svo var spilaður strandfótbolti. Það var erfitt, en við stelpurnar unnum strákana 5-1. Ekki slæmt það.
Þegar að fótboltinn var búinn var farið á pallinn hjá Gísla Blö og setið í sólinni með frozen margaritas á kantinum. Um kveldið var svo farið í bæinn og komið heim undir morgun.
Á laugardaginn þurfti ég nú aðeins að skreppa og hitta stórvinkonu mína, hana Beyonce. En hún var með tónleika í Álaborg. Tónleikarnir komu á óvart. Svaka flott show og bara stelpur að spila með henni. Það var töff. Hún er annars frekar heit þessi gella. Soldið mikið heit.
Eftir tónleikana var haldið á djammið í Álaborg með Írisi og vinkonum hennar. Skemmtum við okkur svona líka alveg konunglega. Herra Nílsen, Saltlagerinn og svo Cube, þar sem eftirpartíið fyrir Beyonce var. Komum heim klukkan 7 um morguninn, alveg búnar á því!
Sunnudagurinn fór í þynnku hjá flestum. Ég hafði rænu á því að halda mig við nokkra bjóra kvöldið áður og var því svona semí hress, en samt dauðþreytt eftir þessa helgi. Við Íris fórum bara á PizzaHut, belgdum okkur út af pizzu og fórum svo í roadtrip heim til Horsens.
Dáltið erfitt að vera svona námsmaður.
4 ummæli:
Jiiiii....greyið kellingin!! Þetta er erfitt já.
En þú gleymir alveg að nefna af hverju þú fórst á tónleikana.
Þú varst barnapía fyrir mig. Múúhahahahahaaaa.
Hef kíkt á þig í gegnum bloggið hans pabba þíns og verð bara að kvitta fyrir kurteisina... Þrusu skemmtilegur bloggari og greinilegt að þú eplið er ekki langt frá eikinni í húmor :)
haha gleymdir að segja frá öllum glösunum pjallan þín
Mamma: já, það gleymdist víst.
Bára: Takk fyrir það. Og velkomin :)
Íris: Já, mamma bannaði mér að segja frá þessu. Hún bíður eftir að ég komi heim með öskubakka og klósettrúllustanda frá diskótekunum ;)
Skrifa ummæli