30.5.07

Ammælis og flutningar..!

Ástkær móðir mín á 37 ára afmæli í dag.
Hingað til hefur hún borið aldurinn einstaklega vel og erum við oftar en ekki spurðar að því hvort að við séum systur. Það finnst mömmu æði en mér finnst það ekki alveg jafn skemmtilegt. Í gær hins vegar sýndi hún mér að aldurinn er farinn að taka sinn toll. Þegar að ég náði í hana í skólann í gær tuðaði hún heil ósköp yfir því að ég væri að spila System of a down í bílnum. Fannst lagið ASNALEGT!
Annars er þetta alveg besta mamma sem hægt er að hugsa sér og vil ég nota tækifærið og þakka henni fyrir að hafa nennt að þrífa af mér, elda ofaní mig og vera alltaf til staðar til að banna mér að gera einhverja vitleysu. Met það mikils.

Ég gaf móður minni bestu afmælisgjöfina og fór í dag og náði í lyklana af íbúðinni á kollegíinu. Er búin að flytja öll fötin mín þarna upp. Það voru 4 ferðir. Núna eru skórnir, rúmið og glösin eftir.

Í kvöld verður haldið uppá þetta allt saman með því að fara ógeðs gott út að borða.


Mamma með húfuna sem vinur hennar á hælinu gerði fyrir hana..!!

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ertu að meina þetta stelpa.....lagið er bara ógeðslega fyndið. En eigum við kannski að ræða KOMMÓÐUMÁLIÐ eitthvað ??

Nafnlaus sagði...

Já ræðum þetta kommóðumál aðeins, hvernig var það aftur?

Nafnlaus sagði...

thihi.....Kristín mín, hjálpaðu okkur aðeins. Hvernig var þetta aftur?

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með mömmu ungu;)

Nafnlaus sagði...

til hamingju með fluttningana og mömmuna. Hmmm kommóðumál spurning hvort að það sé ekki bara ágætt að sumt fari fram hjá manni á Íslandi hehehe varstu nokkuð mjög æst í þessum máli?

kv.
Brekamamma

Nafnlaus sagði...

bid ad heilsa mommu tinni... sa hana a lestarstodinni i horsens i sidustu viku og var ekki alveg ad fatta... eg var audvitad ad tala voda hatt i simann a islensku vid evu um einar og hun heilsadi... eg fattadi adeins seinna hver hun var... ta var half kjanalegt ad snua vid og finna hana og heilsa almennilega... jaja... segdu amk hæ fra mer :)

Nafnlaus sagði...

eKKI vera svona leiðinleg við Kristínu hún var ekkert búin að leggja sig nóg þennan dag svo að orkan var ekki nóg!!!!! Það gerist fyrir besta fólk haha það var samt eins gott að þetta var ekki sófinn hennar Lindu