Í lestinni rétt áður en við komum að Horsens ákvað ég að setja mér markmið. Og standa við það. Markmiðið er það að ég ætla að snúa sólarhringnum við, áður en ég kem aftur til Íslands um miðjan næsta mánuð.
Gekk vel fyrsta kvöldið. Þá sofnaði ég klukkan 01.00 - sem er um það bil tveim tímum fyrr en vanalega.
Í gær sofnaði ég um 02.00 - ekki gott. Var samt komin uppí rúm fyrr. Gat ekki sofnað.
Núna er ég glaðvakandi og klukkan er 03.15.
Hvernig snýr maður sólarhringnum við?
Ég reyndi að þreyta mig eins og ég gat í gær. Vaknaði snemma. Hjólaði í skólann. Hljóp 5.5 km seinni partinn og hjólaði 15 km í gærkvöldi.
Ég varð ekkert þreytt. Fékk bara myg bit og harðsperrur í rassinn.
Hjálp.
4 ummæli:
Það gæti virkað að sofa ekki á daginn, já eða vakna bara því mun fyrr á morgnana.
Ég er búin að sleppa lúrnum á daginn síðann ég kom.
Hvað er eiginlega að þér og þinni fjölskyldu! Hvernig getiði hlaupið svona mikið alltaf? Þið hljótið að eiga einhverja gormaskó eða eitthvað, þetta er ekki normal.
Gormaskór!
Það er frábær hugmynd Brynja! Förum í Bisness!!
Skrifa ummæli