18.5.07

Stjörnuspá dagsins

Fiskar: Einhver hefur flutt inn í hjartað þitt. Og þú sem tókst ekki eftir neinu! Hvernig sem þessi aðili fór að, þá muntu kunna að meta nýja íbúann. Indælt!


Enn og aftur virðist ég vera ótrúlega treg. Ég er ekki enn búin að taka eftir neinum nýjum í hjartanu mínu. Alltaf bara sama pakkið þar.
Ég vil vinsamlega biðja nýja íbúann að gefa sig fram. Það er ekkert bara hægt að flytja svona inn án þess að láta vita og sleppa að borga leigu!
Ætli það sé ekki hægt að skipta um stjörnumerki?

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vó ein þokkalega dofin, það hafa allir tekið eftir þessu

Kristín Alma sagði...

Haha. Já ég veit ég er dofin. Hver er þetta samt? ;)
Hver flutti inn til þín?

Brynja Björk sagði...

Vá gat nú verið að þú værir fiskur!

Ekkert skrýtið að ég dýrki þig:)

Nafnlaus sagði...

Ef þú bara vissir hehehe. Forvitin má ekki vita.

Nafnlaus sagði...

múhahaha I know I know... þú bara vilt ekki viðurkenna það fyrir sjálfri þér.. ætli það sé eitthvað fiskatengt?

Kristín Alma sagði...

Stjáni: Ég veit hver þinn er :D

Brekamamma: Ég held nefninlega að ég sé búin að leysa þessa ógurlegu ráðgátu. Og það er ekki aðilinn sem þú heldur að það sé. híhí.

Nafnlaus sagði...

Nú nú veistu hver minn er já hmmm, það er ég nú ekki svo viss um ha. hehehe