3.5.07

"Ég á engin föt"

Það flæðir bókstaflega útúr fataskápnum. Ég kem ekki öllum fötunum mínum þar og þess vegna eru þau útum allt herbergi. Ég er með skóskáp inní herbergi, sem er stútfullur af skóm. Ég er með sér hillu í skóskápnum inní forstofu, því það kemst ekki allt í skóskápinn minn. 10% af fötunum mínum er líka í fataskápum systra minna.
Ég fór samt í dag og verslaði fullt af fötum. Fyrir háa upphæð. Gaman.
Nú er ég komin í helgarfrí og á leiðinni á djammið. Ég á ekki eina flík til að fara í. Ekki eina!
Hvernig er þetta hægt?

Af hverju gat ég ekki fæðst með typpi? Þá væri lífið miklu auðveldara.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nú, ertu þarna megin? Komin á bloggvinalistann minn og stingur svo bara af? Hvurslag er þetta?

Nafnlaus sagði...

fokk jú