14.5.07

Vítahringur.

Ég hef komist að því sem að allar konur ættu að vita svona uppúr fermingu. En þar sem að kvennlegu genin mín komu frá pabba, þá er allt svona lengi að kikka inn.
Amma og mamma eflaust mjög glaðar að ég skuli loksins vera búin að ná þessu. Ég er ekki mjög glöð. Afskaplega leiðinlegt að ég hafi þurft að fatta þetta. En er samt þakklát fyrir þessi 19 ár sem ég þekkti ekki þennan hrotta.
Já börnin góð. Ég þvoði 5 vélar af þvotti í dag. Og núna er ég búin að fatta að það er ógeðslega leiðinlegt að þvo. Og að þvottur er endalaus. Þetta er ekkert annað en vítahringur.
En ég er ótrúlega góð í að komast upp með hluti (oft, ekki alltaf), þannig að ég ætla að komast upp með að sleppa því að þvo.

Hætta að ganga í fötum og spranga um í kartöflusekkjum?

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

5 vélar???? hvað áttu eiginlega mikið af fötum og hvar var þetta allt saman, undir rúmi?

Ragga Rokkar sagði...

Segi það sama !!!!

Kristín Alma sagði...

Mikið, greinilega.
Þetta var bara hér og þar í herberginu mínu.

Nafnlaus sagði...

hér og þar í herberginu... það er ekki eins og að þú sért í 50m2 herbergi. varstu farin að troða fötum oní búrið til Flosa

Kristín Alma sagði...

Já, honum var eitthvað svo kalt, greyinu.
Nei, þetta var bara útum allt í herberginu. Svo var ég líka að þvo af rúminu og allskonar. Og bol af Írisi ;)

Nafnlaus sagði...

biddu bara tangad til ad tu tarft ad brjota tetta allt saman... ta byrjar fjorid ;)

Kristín Alma sagði...

Haha.
Ég var einmitt að hugsa það. Finnst þvotturinn sem dreifir sér yfir allan sófan horfa á mig svolítið stingandi augnarráði...
Sem og opna ferðataskan hérna á gólfinu.

Nafnlaus sagði...

Úff og komast svo að því að skáparnir hafa minnkað síðan maður þvoði síðast...

Nafnlaus sagði...

Hahaha þú ert alveg ótrúleg! Ætlaru að segja mér það að móðir þín hafi alltaf þvegið af þér?

Nafnlaus sagði...

Alltaf kláarust!!!! Engillinn hennar ömmu........Stínu

Nafnlaus sagði...

Gafst upp á því fyrir löngu Helga mín. Og strympillinn minn........það var sko ekki bara þvotturinn sem horfði á þig með stingandi augnaráði...eins og þú kannski varðst vör við.