Jájá. Allt að gerast hérna megin.
Ég er að fara að pakka lífinu ofaní kassa og flytja svo með rúmið mitt, kommóðuna og Flosa á Kollegíið. 1. júní 2007.
Ég sem sagt fékk íbúð á Kollegíinu alveg óvart eiginlega. Ætlaði ekkert að fara þangað fyrr en í haust. En það eru víst langir biðlistar og þessi íbúð var að losna þegar að ég kom og var að tjékka á þessu þannig að ég skellti mér bara á hana. Systir mín elskar mig fyrir þetta, enda búin að bíða eftir að fá herbergið mitt síðan fyrir 3 árum þegar að við fluttum í þetta hús. Þessir unglingar.
Ótrúlega spennandi.
Svo eru það tölvukaupin, en við Stjáni fórum í leiðangur í gær og sáum ýmislegt sem okkur leyst vel á. Ég frysti maccan í bili, enda held ég að það sé skynsamlegra í þessu námi sem ég er í að vera bara með PC helvíti. Ég er svo skynsöm stelpa.
Íslandsferðin á miðvikudaginn eftir viku. Það er alveg spurning um að hætta við hana. Kostar alltof mikið að fara til Íslands, þó að flugið sé næsten gratis. Og svo er ekki ókeypis að flytja að heiman og heldur ekki að kaupa tölvu.
Eins gott að Samskip borgi mér vel í sumar!!!!
4 ummæli:
Það er hægt að setja windows í maccan !! Ef að það er málið !!
Hey!! Nafnlaus!!.....ekkert svona. Hún er að spara svo að hún komist að heiman þessi elska.
En takk samt, gott að vita.
Til hamó með íbúðina ;)
Nafnlaus: Vil vita hver þú ert. Og já ég veit það :)
Mamma: Róleg.
Ragga frænkz: Takk takk takk :)
Skrifa ummæli