Ég er ekki svo viss um það. Allavega á það ekki við í mínu tilfelli.
Álpaðist til þess að kaupa mér rándýra flík í einni af NTC verslununum. Fór í hana einu sinni og núna er hún eins og gatasigti. Saumsprettur og ógeðslega lélegur frágangur á þessari blessuðu flík, sem by the way kostaði alveg sitt.
Ég er alltaf að lenda í veseni með fötin þaðan. Það er nánast undantekning ef að ég þarf ekki að fara með flíkurnar aftur til að láta laga þær, Því það má jú ekki fá að skipta nema að það sé "gjafalímmiði" á flíkinni. Fáránlegt.
Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að maður borgi fyrir gæðin. Það á svo sannarlega ekki við í þessu tilfelli. Maður er að henda 7.000 kalli í boli, sem endast varla í korter. Svo fer maður í H&M úti, verslar bol á 700kr og hann endist og endist. Samt er þetta bæði bara einhverjar fjöldaframleiddar flíkur.
Held ég sé hætt að versla við þetta fyrirtæki núna, þetta er ógeðslega pirrandi. Bara kaupa fötin mín í SamsøSamsø. Þá endar maður líka ekki á að vera í eins fötum og önnur hver stelpa á Íslandi :)
2 ummæli:
veistu, ekki einu sinni mér dettur í hug að labba inn í þessa búð og kaupa mér hlírabol, því að það verður komið gat á hann um leið og ég máta hann í mátunarklefunum...
sammála, ekki hægt að versla þar, systir mín hefur þurt að laga hverja einustu flík sem komið hefur þaðan
Skrifa ummæli