25.4.07

Búin að kjósa í fyrsta skipti í lífinu..

"Þú verður bara mynda þér sjálfstæða skoðun á þessu og fylgja henni," hefur verið sagt við mig nokkuð oft síðustu daga. Nema 'frænka mín', Kristín Tómasdóttir. Hún sagði bara: Ef þú kýst ekki Vinstri Græn þá hætti ég að vera móðursystir þín í föðurætt.

Ég hef legið yfir heimasíðum flokkana síðustu viku. Bara svona tjékka á hverjir hafa lofað hverju og svikið hvað. Og svo hverju er búið að lofa að svíkja núna. Verð að segja að ég var búin að rokka frá vinstri til hægri og aftur til baka soldið mörgum sinnum áður en að ég komst að niðurstöðu.

Ég fór og kaus í dag. Fannst þetta ótrúlega spennandi. Labbaði út höfðinu hærri, búin að kjósa í fyrsta skipti í lífinu. Og þarna á þessu augnabliki sem ég krotaði bókstafinn á kjörseðilinn fannst mér ég vera orðin fullorðin. Loksins.

Kannski að bæta því við svona í lokin hvað ég kaus. Ég kaus rétt - en Kristín Tómasdóttir er ekki móðursystir mín í föðurætt lengur. Á eftir að sakna hennar :)

3 ummæli:

Ragga Rokkar sagði...

Hahah ;)
Já ég vona að þú hafir kosið rétt !!

Unknown sagði...

Tvífararnir eru algjör snilld. Ég hlóg mig máttlausa!
Kveðja frá hinni Röggunni sem er ekki eins rokkuð og hin Ragga frænka en samt skild þér í föðurætt...

Ragga Rokkar sagði...

Híhí ;)