Mest langar mig að fara til Íslands, ekki seinna í gær. En þar sem að ég er hitabeltisrotta ætla ég nú að láta mig hafa það að vera hérna í 20 stiga hita.
Skólinn er bara að drepa mig úr leiðindum. Er í einhverri hræðilegri skólalægð núna. Mæti bara og er þarna líkamlega, en hugurinn er einhversstaðar allt annars staðar en í Salg&Service eða ErhversØkonomi. Sem er ekki gott. Var svo dugleg alltaf. Ætli maður verði ekki bara að reyna að rífa sig uppúr þessu. Mæta með hausinn með sér í tíma, vinna vel og fara að undirbúa sig fyrir prófið í vor.
Er að hugsa um að reyna að vinna svolítið á kvöldin á næstunni. Þá er aldrei að vita nema maður kíki á klakann eina helgi eða svo í Maí. Maður má allavega láta sig dreyma. Kemur í ljós hvernig fer.
Litla krílið mitt er komið með heiftarlegt alnæmi. Bara spilar ekki lögin. Það er búið að reyna að restarta. Láta hann tæma batteríið og hlaða uppá nýtt og ég veit ekki hvað og hvað en allt kemur fyrir ekki. Hann neitar að spila lögin. Svo núna þarf ég að ræða við apple um að fá nýjann. Ég get ekki verið án hans. Dagurinn í dag var hræðilegur og mér fannst eins og ég væri nakin. Sem er ekki gott og heldur ekki hot.
1 ummæli:
Elsku múskatið mitt....þetta er ekki gott. Ég skal reyna að rífa mig úr tölvunni og sinna þér. Hittumst í eldhúsinu á eftir. Knús og kossar, Mamma.
Skrifa ummæli